Morgunblaðið - 09.05.2011, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 09.05.2011, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. MAÍ 2011 Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is Birt með fyrirvara um prentvillu. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku. Ath. að verð getur breyst án fyrirvara. Costa del Sol 6. og 15. maí í 9 nætur Heimsferðir bjóða tvær frábærar 9 nátta ferðir til Costa del Sol í vor. Í boði eru frábær sértilboð, með „öllu inniföldu“ á Griego Mar hótelinu sem var mjög vinsælt meðal farþega Heimsferða í fyrra. Ath. mjög takmarkaður fjöldi herbergja í boði á þessum kjörum. Frá kr. 109.900 með „öllu inniföldu“ Gríptu þetta frábæra tækifæri og njóttu lífsins í vor á Costa del Sol á ótrúlegum kjörum. Verð kr. 109.900 Netverð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli í 9 nætur með öllu inniföldu á Hotel Griego Mar ***. 15. maí í 9 nætur Heimsferðir bjóða tvær frábærar 9 nátta fe Í frábæ a 9 nátta ferð til Þýskt útgerðarfélag Reykjafoss, sem Eimskip leigði til Ameríkusigl- inga, hefur lýst yfir sameiginlegu sjótjóni vegna óhapps sem varð á leið skipsins að bryggju í Argentia á Nýfundnalandi 29. apríl síðastlið- inn. Upplýsingafulltrúi Eimskips segir félagið ekki hafa átt neinn þátt í yfirlýsingu um sameiginlegt sjótjón. Sameiginlegt sjótjón þýðir að eigendur farms í skipinu þurfa að taka þátt í kostnaði sem hlýst af óhappinu. Draga þurfti skipið að bryggju og afferma áður en það var dregið í slipp til viðgerðar. Þeir sem höfðu tryggt farminn þurfa ekkert að borga því farmtrygg- ingin tekur til sameiginlega sjó- tjónsins. Farmurinn var síðan fluttur um borð í annað skip og hingað til lands, en Reykjafoss var á leið frá Norfolk í Bandaríkjunum til Ís- lands. Ekkert tjón varð á farm- inum. Ólafur William Hand, upplýs- ingafulltrúi Eimskips, segir Eim- skip hafa hreyft mótmælum við yfirlýsingu um sameiginlegt sjótjón og muni skoða réttarstöðu sína og viðskiptavina sinna varðandi þá ákvörðun. Kannað verði hvort grundvöllur sé fyrir því að lýsa yfir sameiginlegu sjótjóni. Hann segir félagið ekki hafa fengið tæmandi upplýsingar um hvað í raun gerðist þegar Reykjafoss fékk á sig högg á leið til hafnar í Argentia. Ólafur sagði það vera mál útgerðarinnar og kanadískra yfirvalda. Þrír Íslendingar voru um borð þegar óhappið varð. Lýstu yfir sam- eiginlegu sjótjóni  Eimskip hreyfði mótmælum við yfir- lýsingunni og skoðar réttarstöðu sína Eimskip Reykjafoss varð fyrir höggi 29. apríl síðastliðinn. Þórður Gunnarsson thg@mbl.is Mörgum milljónum getur munað á eftirstöðvum lána eftir endurú- treikningi bankanna annars vegar og endurútreikningi lögfræðinga og endurskoðenda sem ekki starfa hjá bönkunum, hins vegar. Guð- laugur Þór Þórðarson alþingis- maður hefur látið útbúa reiknivél sem aðgengileg er á heimasíðu hans, gudlaugurthor.is. Svo virðist sem bankarnir taki ekki tillit til inngreiðslna á höfuðstól gengis- tryggðra lána með réttum hætti, að mati Gunnlaugs Kristinssonar endurskoðanda. Bankar endurreikna gengis- tryggð húsnæðislán með þeim hætti að vextir Seðlabanka Íslands eru reiknaðir ofan á höfuðstól lánsins. Að 12 mánuðum liðnum frá upphaflegum lántökudegi verð- ur til nýr uppreiknaður höfuðstóll. Á sama hátt er vöxtum Seðlabank- ans bætt ofan á innborganir. Eftir- stöðvar lána eru meðhöndlaðar með sama hætti. Guðlaugur Þór bendir á að ekki sé tekið tillit til inngreiðslu á höfuðstól á lánstím- anum með réttum hætti með þess- ari aðferð. „Ef menn taka ekki til- lit til greiðslu inn á höfuðstólinn á lánstímanum kemur það sér illa fyrir lántakendur. Enda reiknast hærri vextir á hærri höfuðstól. Í öðru lagi skiptir máli hvort menn reikna vexti Seðlabankans ofan á lánið eftir að dómurinn féll eða endurreikna vextina frá uppruna- legum lántökudegi,“ segir hann. Gunnlaugur Kristinsson, endur- skoðandi hjá GK endurskoðun, segir að hans útreikningar miðist við að lög viðskiptaráðherra númer 151/2010 um endurútreikning lána haldi. Hann segir að bankarnir beiti svokallaðri vaxtavöxtun sem ekki er heimil samkvæmt lögun- um. „Þeir bæta vöxtum inn í höf- uðstólinn á 12 mánaða fresti. Ekki er gert ráð fyrir því í lögunum,“ segir hann. Aðferð Gunnlaugs gengur út að reikna vexti Seðla- bankans frá lántökudegi, en draga höfuðstólsgreiðslur frá í hverjum mánuði. Veritas-lögmenn ganga enn lengra en Gunnlaugur í túlkun sinni á hvernig endurreikna eigi erlendu lánin. Skarphéðinn Pét- ursson hæstaréttarlögmaður seg- ist telja að miða eigi endurreikn- ing á vöxtum við hvenær dómur Hæstaréttar féll. Ekki hefur reynt á þá túlkun fyrir dómi. Munar fleiri milljónum  Deilt um hvernig skuli endurreikna erlend lán  Þingmað- ur segir bankana ekki taka tillit til greiðslna inn á höfuðstól 15 milljón króna lán tekið 1.janúar 2004 Lánstími: 40 ár Vaxtaálag: 2% USD 25% CHF 20% JPY 10% EUR 45% Bankaútreikningur 22,5 milljónir GK endurskoðun 19 milljónir Veritas lögmenn 11,5 milljónir 50 milljón króna lán tekið 1.júní 2007 Lánstími: 40 ár Vaxtaálag: 2% USD 25% CHF 20% JPY 10% EUR 45% Bankaútreikningur 55,5 milljónir GK endurskoðun 53 milljónir Veritas lögmenn 41 milljón 35 milljón króna lán tekið 30.nóvember 2006 Lánstími: 40 ár Vaxtaálag: 2% USD 25% CHF 20% JPY 10% EUR 45% Bankaútreikningur 40 milljónir GK endurskoðun 36 milljónir Veritas lögmenn 25,5 milljónir Endurútreikningur lána 40 milljón króna lán tekið 1.janúar 2006 Lánstími: 40 ár Vaxtaálag: 2% USD 25% CHF 20% JPY 10% EUR 45% Bankaútreikningur 48 milljónir GK endurskoðun 44 milljónir Veritas lögmenn 31 milljón Skúli Á. Sigurðsson skulias@mbl.is Íslenskir starfsmenn um borð í Norrænu eru óánægðir með að fá lægri laun en aðrir sem vinna á ferj- unni. Kjör þeirra fara eftir íslensk- um kjarasamningum. Að sögn Jón- asar Garðarssonar, formanns Sjómannafélags Íslands, er þetta heimilt þótt það leiði til lakari kjara Íslendinganna og Norræna sigli undir færeysku flaggi. Kjarasamn- ingarnir sem um er að ræða runnu út í fyrra. Rúni Vang Poulsen, fram- kvæmdastjóri Smyril Line sem rek- ur Norrænu, segir að meginástæða launamunarins sé lágt gengi ís- lenskrar krónu gagnvart danskri. Laun Íslendinganna eru ákveðin í íslenskum krónum en laun Fær- eyinganna í dönskum. Munurinn milli íslenskra starfsmanna og fær- eyskra nemur að sögn Íslending- anna 29%. Jónas segir rétt að laun Íslendinganna séu lægri en kveður muninn vera nær 12-15%. „Það er ekki verið að bera saman epli og epli,“ segir Jónas. „Það þarf að tína alls konar hluti til til þess að búa til heildarmynd af þessu. Til að mynda per- sónuafslátt og lífeyrissjóð því útlendingar sem vinna á skipum í Færeyjum borga ekki í lífeyrissjóð.“ Af þessum sökum segir Jónas að munurinn sé langtum minni en haldið er fram. Þá fái Íslendingarnir borgað hátíð- arálag sem aðrir fái ekki og af þess- um sökum segir Jónas að júnímán- uður komi jafnvel betur út fyrir Íslendingana en aðra. Var stillt upp við vegg „Þessi störf hefðu ekki verið í boði fyrir [Íslendinga] nema á ís- lenskum samningum,“ segir Jónas ennfremur og hann segir að í raun hafi Sjómannafélaginu verið stillt upp við vegg í málinu. Að endingu hafi verið talið réttast að fallast á að fara eftir íslenskum kjarasamn- ingum frekar en að Íslendingarnir yrðu alfarið af störfunum. Að sögn Íslendinganna sem starfa um borð höfðu þeir ekki fengið að sjá hina nýju samninga þegar þeir hófu störf. Poulsen segir þetta ekki rétt og hann segir að eftir því sem hann viti best hafi fólki verið gerð sérstaklega grein fyrir því að kjör þeirra færu eftir íslensku samning- unum. Þá hafi þeir sem unnið höfðu áður um borð og töldu sig njóta kjara samkvæmt fyrri samningum fengið að vera áfram undir þá settir. Fá síðri kjör vegna íslenskra samninga  Íslendingarnir með lægri laun vegna íslenskra samninga Íslendingarnir sem starfa um borð í Norrænu segja að niðurlæging og lítillækkun felist í því að vera veitt síðri kjör en samstarfsfólk og vinir um borð fá fyrir sömu störf. Þeir eru hræddir um að þeim verði sagt upp störfum sætti þeir sig ekki við verri kjör en þau sem Færeyingar um borð njóta. Þetta kemur fram í tölvubréfi frá Ís- lendingunum. Með bréfinu fylgdi undirskriftalisti þar sem um fimmtíu starfsmenn Norrænu, íslenskir og færeyskir, höfðu ritað nöfn sín til að lýsa yfir andstöðu við launamuninn. Munu það vera um 90% starfsmanna um borð og í bréfinu segir að þeir sem ekki skrifuðu undir hafi óttast eftirmál af því. Þar segir einnig að Íslendingunum finnist Smyril Line vera að nýta sér bágan efnahag Íslendinga og takmark- aða atvinnumöguleika hér á landi. Kjaramunurinn niðurlægjandi 50 STARFSMENN NORRÆNU ÓÁNÆGÐIR MEÐ LAUNAMUNINN Morgunblaðið/Sigurður Bogi Norræna Íslendingar sem vinna um borð í ferjunni Norrænu fá lægri laun en Færeyingar fá fyrir sömu störf.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.