Morgunblaðið - 09.05.2011, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 09.05.2011, Blaðsíða 19
✝ Ingibjörg J.Gíslason fædd- ist í Reykjavík 30. apríl 1915. Hún lést á elliheimilinu Grund 22. apríl 2011. Foreldrar hennar voru Ragn- heiður Thorarensen og Jón Hjaltalín Sigurðsson, yf- irlæknir og prófess- or. Systkini hennar voru Guðrún, Gerður, Bergljót, Sigríður, Grímur og Bergljót, sem öll eru látin. Ingibjörg giftist 14. sept. 1935 Bergi G. Gíslasyni, f. 6. nóvember 1907, d. 22. maí 2008. Foreldrar hans voru Garðar Gíslason, stór- kaupmaður í Reykjavík og Þóra Sigfúsdóttir. Dætur þeirra eru: 1) Þóra, f. 1938, maki Hallgrímur Sandholt, f. 1936, d. 2005. Börn þeirra eru: a) Bergur, maki Theodóra Stella Hafsteinsdóttir, börn þeirra eru Ása, Sigrún, Ágústa, Hafdís, Bergur og Haf- steinn. b) Kristín, maki Ingvar Vilhelmsson, börn Hallgrímur, Fanndís og Ingunn Klara. c) Ingi- björg, maki Ómar Sveinsson, börn Egill og Þóra Kristín. 2) Ragnheiður, f. 1942, maki Þór- arinn Jónasson, f. 1944, börn þeirra eru: a) Dísa, maki Bjarni Grímsson, börn Christófer, Ingi- björg Sóllilja, Skjöldur, og Brynja. b) Þórunn Lára, maki Jón Svan Grétarsson börn Sunna, Þórarinn og Grétar. c) Haukur Hilmar, börn Kristján Ari og Júlíus. 3) Gerður, f. 1943, d. 1994, maki Gísli Gestsson, börn þeirra eru: a) Ragnheiður, maki Einar F. Hilm- arsson, sonur Bjarni. b) Bergur, maki Linda S. Guð- mundsdóttir, börn Gísli Garðar og Guðmundur Fróði. 4) Bergljót, f. 1943, maki Gunnar Bernburg, f. 1943, þau skildu. Synir þeirra eru Páll, maki Margrét Braga- dóttir, börn Ingunn og Karen Ósk. b) Jón Gunnar, maki Eydís Sverrisdóttir, börn Jóel og Atli Hrafn. 5) Ása, f. 1950, maki Ólaf- ur R. Magnússon, f. 1951, dóttir þeirra er Hrafnhildur Ýr, maki Róbert Þór Guðmundsson, sonur þeirra er Viktor Óli, fyrir átti Ólafur soninn Magnús. Barna- barnabörnin eru sex. Ingibjörg ólst upp á Lauga- vegi 42, gekk þar í skóla, fór síð- an í árs nám til Þýskalands. Þeg- ar heim kom kynntist hún Bergi og hófu þau búskap í íbúð við Þorfinnsgötu, byggðu fljótlega að Laufásvegi 64, fluttust þangað og bjuggu þar saman alla tíð. Ingibjörg var heimavinnandi húsmóðir. Útför Ingibjargar fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík í dag, 9. maí 2011, og hefst athöfnin kl. 15. Elsku amma mín, vonandi hef- urðu það gott þarna uppi. Ég gleymi þér aldrei. Það var svo gaman þegar við lágum uppi í stóra og góða rúminu þínu og horfðum á alla sjónvarpsdag- skrána saman. Ég kom alltaf líka eftir skóla til þín og fékk ristað brauð með sultu og þú varst líka oft búin að geyma nammi fyrir mig. Og svo allar sögurnar sem þú sagðir mér. Til dæmis með konuna sem borðaði skip og hús, mér fannst þú alltaf vita allt. Það var alltaf langbest að tala við þig, þú skildir mig svo vel. En það allra besta við þig var að þú gast alltaf brosað og hlegið, sama hvernig aðstæður voru. Þú hefur líka alltaf verið svo falleg, amma, þú hefur alltaf geislað fyrir mér. Og ég vona að ég verði jafn frá- bær og þú. Svo veit ég líka að þú átt eftir að passa mig eins og þú hefur alltaf gert, ég veit að þú ert á góðum stað núna. Ég elska þig, amma. Ástarkveðjur frá nöfn- unni þinni. Ingibjörg Sóllilja. Ingibjörg Gíslason HINSTA KVEÐJA Til ömmu minnar. Þú ert mitt lífsins ljós og litla rós. Þú er fallegasta sál sem ég hef snert. Ég sakna þín. Dísa. MINNINGAR 19 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. MAÍ 2011 ✝ Sunna Karls-dóttir fæddist í Vestmannaeyjum 12. september 1945. Hún lést að heimili sínu, Æsu- felli 4 Reykjavík, 26. apríl 2011. Foreldrar henn- ar voru hjónin Karl Guðjónsson kenn- ari og alþing- ismaður, f. 1. nóv- ember 1917, d. 7. mars 1973 og Arnþrúður Björnsdóttir kenn- ari, f. 1. apríl 1918, d. 17. jan- úar 2007. Systkini Sunnu eru: Harpa, f. 1947, Lilja, f. 1952 og Breki, f. 1957. Sunna giftist þann 10. sept- ember 1962 Andra Val Hrólfs- syni, f. 29. mars 1943. Synir þeirra eru 1) Ívar, f. 6. apríl 1962, kvæntur Sigrúnu Guðna- dóttur. Börn Ívars eru: a) Andri Valur, f. 1980, í sambúð með Guðnýju Nielsen , b) Anna is verslunarstörf. Árið 1972 hóf hún nám við Verslunarskóla Ís- lands og lauk þaðan versl- unarprófi 1973. Það vor hóf hún störf sem skrifstofumaður og bókari á Veðurstofu Íslands og starfaði þar til ársloka 1980. Hún vann síðan hjá Bú- vörudeild Sambands íslenskra samvinnufélaga frá ársbyrjun 1981 til ársins 1990, þar sem hún sá um afurðarlán og ýmis banka- og fjármál fyrir deild- ina. Þegar SÍS hætti rekstri fór hún að vinna fyrir Málarann á Grensásvegi og samhliða fyrir Metró í Hallarmúla. Þar ann- aðist hún bókhald og sá jafn- framt um alla innheimtu. Hún vann síðan sem bókari hjá Þýsk-íslenska verslunarfélaginu þar til hún hóf störf á virð- isaukaskattsdeild Skattstofu Reykjavíkur í mars 1997. Þar vann hún óslitið þangað til hún lét af störfum 1. maí 2010, þeg- ar Skattstofa Reykjavíkur var lögð niður. Sunna verður jarðsungin frá Fossvogskirkju í dag, 9. maí 2011, og hefst athöfnin kl. 13. María, f. 1980, í sambúð með Jó- hanni Páli Krist- björnssyni, þeirra dóttir er Ylfa Vár, f. 2007, c) Saga Ýr, f. 1994. 2) Ólafur Darri, f. 1. desem- ber 1963, kvæntur Kristjönu Bjarna- dóttur, f. 1964. Börn Ólafs Darra eru: a) Sindri, f. 1990, b) Rán, f. 1992. Sunna ólst upp á Heiðarveg- inum á miklu menningarheimili þar sem tónlist var í hávegum höfð og stjórnmál oft til um- ræðu. Eftir barnaskóla stundaði hún nám við Reykjaskóla í Hrútafirði og lauk þaðan prófi 1960. Sunna bjó í Vest- mannaeyjum þar til haustið 1973 að undanskildum 2 árum sem hún og Andri bjuggu á Seyðisfirði. Meðan Sunna bjó í Vestmannaeyjum vann hún ým- Sunna amma hefur lokið lífs- göngu sinni og við viljum minn- ast tímans er við vorum henni samferða í fáum orðum. Amma var hörkukona á svo margan hátt. Hún vissi svo margt, hafði sterkar og miklar skoðanir á flestum hlutum og var mjög annt um sitt fólk. Hún bar hag okkar ömmubarnanna fyrir brjósti og var ætíð áhuga- söm hvernig okkur gengi í námi og tómstundum. Þeirri tilfinn- ingu munum við seint venjast, að koma í Æsufellið eða upp í Torfur og hitta þar enga ömmu. Elsku amma, við munum allt- af vera þakklát fyrir þær stund- ir sem við áttum með þér. Þú varst óhrædd við að leggja okk- ur lífsreglurnar og veita okkur ráð sem hafa og munu nýtast okkur í lífinu. Á göngu lífsins er mikilvægt að horfa fram á veginn. Ekki er síður mikilvægt að bera með sér minningar af förnum vegi. Það munum við gera. Minning Sunnu ömmu á sér stað í huga okkar og mun fylgja okkur um ókomna framtíð, minning sem getur alltaf kallað fram hjá okk- ur hlýju og bros. Elsku afi. Hugur okkar er hjá þér á þessum erfiðu tímum, þú hefur staðið þig eins og hetja. Okkur þykir óendanlega vænt um þig og erum þér ávallt innan handar. Andri Valur, Anna María, Rán, Saga Ýr og Sindri. Að heilsast og kveðjast, það er lífsins saga. Og nú hefur Sunna mágkona mín sagt „hæ“ í síðasta sinn. Hún lést þann 26. apríl eftir erfið veikindi um nokkurn tíma, sem vissulega tóku sinn toll af henni og henn- ar nánustu eins og svona veik- indi gera alltaf, en þau hafa staðið saman eins og klettur og þá gengur þetta. Sunna kom inn í mína fjöl- skyldu þegar ég var bara átta ára, svo hún hefur verið hluti af mínu lífi ansi lengi. Hún sagði við mig um daginn: „Minning- argreinar eru asnalegar það er bara talað um hvernig viðkom- andi þekkti hinn látna, ekki hvernig hinn látni var.“ Sunna var ung þegar hún átti drengina sína tvo, innan við tví- tugt. Þá stofnuðu þau sitt fyrsta heimili, hún og Andri bróðir minn. Smá hlé varð nú á skóla- göngu hennar, en úr því bætti hún seinna og tók þá verslunar- próf. Og vann eftir það skrif- stofuvinnu alla tíð, lengi á Veð- urstofu Íslands en seinna á Skattstofunni í Reykjavík. Sunna var hæg og dagfar- sprúð kona. Hún elskaði fjöl- skylduna sína umfram allt. Allt vildi hún gera fyrir drengina sína og barnabörnin, eins og fyrir alla stórfjölskylduna. Ef hún var beðin um greiða þá lagði hún sig alla fram um að leysa málið. Alveg sama hvort það var nú að fá fólk í gistingu eða lána íbúðina á daginn svo hægt væri að lesa þar fyrir próf. „Fáðu bara lykill og vertu eins og heima hjá þér.“ Þannig var Sunna. Hún var líka góð dóttir. Hugsaði vel um mömmu sína til síðasta dags og þá meina ég ein- staklega vel. Saman hafa þau gengið lengi, Sunna og Andri bróðir minn, hún hæg og róleg, hann aðeins meira á ferðinni. Þau áttu sér sælureit í sumarbústaðnum, þar hafði hún yndi af því að vera og þar var gott að koma. Lestur góðra bóka var alla tíð aðal- áhugamál Sunnu, ásamt prjóna- skapnum. Ég held að það sé ekki ofsögum sagt að Sunna hafi aldrei sest niður nema með prjónana í höndunum, enda ófá- ar flíkurnar sem hún hefur búið til. Sunna hafði ákveðnar skoð- anir í pólitík og fóru þær skoð- anir alls ekki saman við mínar. En það var allt í lagi, hún var fyrir löngu búin að sjá að alveg sama hversu rökföst hún var, mér varð ekki haggað. Eins var það með trúmálin, þar hafði hún líka sínar ákveðnu skoðanir: „Maður á bara að vera almenni- leg manneskja og góð við aðra þá gengur þetta.“ Sunna mín, ég vona að þessar línur séu eins og þú vildir og að þær sýni að þú varst góð kona sem vildi öllum vel. Takk fyrir samfylgdina í fimmtíu ár. Ég og fjölskylda mín sendum bróður mínum og hans fjölskyldu okkar innilegustu samúðarkveðjur og biðjum guð að blessa minningu hennar. Bryndís Hrólfsdóttir. Seinni hluta aprílmánaðar gekk á með dimmum éljum dag eftir dag. Svo var einnig með síðustu daga Sunnu mágkonu minnar. Þessi fallega, hæfileika- ríka kona kvaddi eftir harða baráttu við þann vágest sem engu þyrmir. Ég kynntist henni fyrir fimmtíu árum þegar þau hófu búskap, hún og Andri bróðir minn. Ungu hjónin byggðu sér heimili og eignuðust tvo yndislega syni. Þau keyptu sér hús við Boðaslóð í Vest- mannaeyjum og þar bjó ég hjá þeim heilan vetur. Vel fór á með okkur Sunnu. Hún var mikil prjónakona og vakti hjá mér áhuga og löngun til að prjóna listaverk eins og léku í höndum hennar. Það var ekki aðeins ég sem naut gestrisni Sunnu heldur bjuggu oft hjá þeim hjónum ættingjar og vinir lengri og skemmri tíma. Sunna var afar barngóð og sonur minn sem er á svipuðum aldri og hennar synir á margar góðar æskuminningar frá heimili hennar. Þegar gaus á Heimaey 1973 flutti Sunna og fjölskylda henn- ar til Reykjavíkur. Hún hóf störf hjá Veðurstofu Íslands en síðustu árin starfaði hún á Skattstofunni. Þau hjón keyptu sumarbústað og þar átti Sunna sínar yndisstundir. Hún hafði gleði af að rækta og átti sinn þátt í að breyta hrjóstrugu landslaginu kringum sumarbú- staðinn í gróðursæla vin. Hún var heimakær og frekar fáskipt- in en hafði sterkar skoðanir og mikla réttlætiskennd. Þegar erfiðleikarnir steðjuðu að og Sunna greindist með hinn banvæna sjúkdóm vék Andri ekki frá henni. Hann virti vilja hennar til að vera heima og annaðist hana í veikindunum til hinstu stundar. Sunna var æðrulaus og til síðasta dags var velferð ættingja og vina henni ofar í huga en eigin veikindi. Ég kveð Sunnu og votta ást- vinum mína dýpstu samúð. Gunnhildur Hrólfsdóttir. Sumarið er loksins komið með öllum sínum töfrum og aft- ur er orðið hlýtt og bjart um bæinn. Kær vinkona okkar, Sunna Karlsdóttir, kvaddi í sumarbyrjun. Veturinn hafði verið henni og fjölskyldunni bæði langur og strangur vegna alvarlegra veikinda hennar. Fjölskyldan sameinaðist um að annast hana í veikindunum og sátu þau hjá henni öllum stund- um. Það fór ekki framhjá neinu okkar sem unnum með henni að fjölskyldan var henni mikils virði og hún þeim. Sérstakur svipur færðist yfir andlit hennar þegar einhvern úr fjölskyldunni bar á góma og í svipnum mátti greina bæði stolt og gleði. Sá notalegi indæli siður stóð um árabil í fjölskyldu hennar að all- ir ungir og gamlir söfnuðust heima hjá þeim Andra á fimmtudagskvöldum. Arnþrúður móðir hennar sem hafði lengi verið ekkja naut þess að hitta fjölskylduna og fylgjast með sínu fólki. Þær mæðgur voru af- skaplega samrýmdar og saknaði Sunna hennar mjög þegar hún féll frá fyrir örfáum árum. Auk fimmtudagskvöldanna átti fjöl- skyldan sér annan vettvang sem var í sumarbústaðnum undir rótum Þríhyrnings. Fátt var Sunnu kærara en að dvelja í sveitinni sinni með fjölskyldunni og njóta kyrrðar og fegurðar ís- lenskrar náttúru. Eitt haustið þegar hópurinn hafði lokið heimsókn til skattstjórans á Hellu bauð Sunna okkur í sum- arbústaðinn og áttum við þar góða stund í stórbrotnu um- hverfi. Sunna hóf vinnu á skattstofu Reykjavíkur skömmu fyrir alda- mót á virðisaukaskattssviði. Hún var mörgum góðum kost- um prýdd, samviskusöm og vandvirk. Hún hafði afar gott vald á íslenskri tungu bæði í mæltu og rituðu máli enda vel lesin. Sunna var hreinskiptin og föst fyrir og hélt sínu striki í skoðanaskiptum, en alltaf voru málin rædd af sanngirni. Hún hafði skemmtilega kímnigáfu, og var orðheppin þegar það átti við. Hún lét sér afskaplega annt um samstarfsfólk sitt og átti sinn þátt í því að skapa það góða andrúmsloft sem ávallt ríkti á vinnustaðnum okkar. Þegar veikindi hennar ágerðust á síðasta ári ákvað hún að hætta að vinna og njóta góðra daga. Gamli samstarfshópurinn henn- ar hittist á yndislegum haust- degi á síðasta ári. Tilefnið var ekki síst að hitta Sunnu sem var glöð í bragði og naut stund- arinnar með okkur. Þegar við nú kveðjum vinkonu okkar er gott að minnast þeirrar stundar. Fyrir hönd fyrrum samstarfs- fólks virðisaukaskattskrifstofu skattstjórans í Reykjavík, Kristín Norðfjörð. Kynni okkar Sunnu hófust árið 1973 þegar hún hóf störf sem bókari á Veðurstofu Ís- lands sem þá var til húsa í Sjó- mannaskólanum í Reykjavík. Við fyrstu sýn minnti hún mig á kvikmyndaleikkonur fyrri tíma, glæsileg, á háum hælum, reykti, var stuttorð og töff. Við nánari kynni kom í ljós að hún var traustur og góður vinnufélagi og mjög skemmtileg þegar hún vildi það við hafa. Hún ferðaðist mikið með fjölskyldu sinni til landa sem þá töldust utan hefð- bundinna ferðamannastaða og ég man að ég drakk í mig frá- sagnir hennar úr þessum ferð- um. Eitt sinn fórum við saman í vikuferð til Parísar, þar sem hún, heimsborgarinn, miðlaði mér af þekkingu sinni. Ég held að þar finnist varla sá staður sem við skoðuðum ekki, enda verður mér oft hugsað „déjà vu“ þegar ég kem þangað. Seinna urðum við svo samferða til Tulsa, Oklahoma þar sem börn okkar beggja bjuggu þá, ásamt fjölskyldum sínum og líklega hefði ég aldrei lagt í að heim- sækja þau ef ekki hefði komið til hjálpsemi og ferðareynsla þeirra hjóna, Sunnu og Andra Vals. Sunna hætti á Veðurstofunni árið 1981, en vináttan rofnaði ekki og við stofnuðum ásamt Helgu Þóru vinkonu okkar „menningarklúbb“. Saman fór- um við á tónleika, leikhús, óp- erur, kvikmyndir, allskonar sýn- ingar og uppákomur auk heimsókna á kaffihús og eru margar skemmtilegar minning- ar til frá þeim tíma. Sjaldnast vorum við sammála um hvað við vildum sjá næst og því skipt- umst við á um að velja viðburði, og af nógu var að taka. Ekki vorum við alltaf sáttar við val hinna, en fundum svo út að ef eitthvað stæðist ekki væntingar þá væri þó alltaf hægt að fussa yfir því – og stundum var mikið fussað! Oft ræddum við Sunna um pólitík og þó við hefðum svipaðar skoðanir, þá vorum við eiginlega aldrei sammála, svo merkilegt sem það nú er. Ég kom til Sunnu rétt áður en hún kvaddi þennan heim og sú minning mun líklega fylgja mér um ókomin ár. Svo friðsæl, á heimili sínu, umvafin hlýju ástvina sinna og fyrir utan gluggann breiddi víðáttan, land- ið og hafið úr sér og orð skálds- ins komu í huga mér: „Þar sem jökulinn ber við loft hættir land- ið að vera jarðneskt, en jörðin fær hlutdeild í himninum …“. Við Helga Þóra Jakobsdóttir þökkum samveruna og sendum Andra, Ívari, Ólafi Darra og öðrum aðstandendum innilegar samúðarkveðjur. Gunnur S. Friðriksdóttir. Sunna Karlsdóttir Lokað verður mánudaginn 9. maí frá kl. 13.00–15.00 vegna jarðarfarar INGIBJARGAR JÓNSDÓTTUR brigader í Hjálpræðishernum. ✝ Móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, INGELLA ÞÓRÐARDÓTTIR, Sóleyjargötu 10, Akranesi, verður jarðsungin frá Akraneskirkju miðviku- daginn 11. maí kl. 14.00. Margrét Ármannsdóttir, Þorvaldur Jónasson, Ármann Ármannsson, Sigurbjörg Ragnarsdóttir, Þóra Emilía Ármannsdóttir, Ásmundur Ármannsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, sambýlis- kona og amma, GUÐRÚN ÁSA BRANDSDÓTTIR, Reynimel 74, verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í Reykjavík á morgun, þriðjudaginn 10. maí kl. 15.00. Ásrún Laila Awad, Sylvía Kristín Ólafsdóttir, Kjartan B. Björgvinsson, Ágúst Þór Guðsteinsson og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.