Morgunblaðið - 09.05.2011, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 09.05.2011, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. MAÍ 2011 Meirapróf Upplýsingar og innritun í síma 567 0300, 894 2737 Næsta námskeið byrjar 11. maí 2011 Der Spiegel sagði frá því aðuppi hefði verið fótur og fit vegna nýrra frétta frá Grikklandi. BBC sagði frá því að blásið hefði verið til neyðarfunda innan ESB þegar Grikkir hefðu orðað það upp- hátt að kasta frá sér evrunni sem þeir hafa brúkað í 10 ár með þeim ár- angri sem allir þekkja og taka á ný upp drökmuna, sem þeir höfðu lát- ið duga sér þrjú þúsund árin þar á undan.    Þessum fréttum var vísað á bugúr öllum áttum. Gríski fjár- málaráðherrann sagði að það gerði efnahag landsins illt eitt að ræða slík mál og hann mætti ekki við neinu. Forsprakkar fjármála ESB byrjuðu á að segja að enginn neyð- arfundur hefði verið haldinn og fréttir um slíkt væru fráleitar.    Þegar í ljós kom að einhverjirfundarmanna á slíkum fundi höfðu þegar misst það út úr sér var breytt um kúrs og viðurkennt að óvæntur fundur fór fram, en á hon- um hefðu menn rætt um allt nema það að Grikkir vildu kveðja evru.    En markaðurinn, „sem erskepna skýr“ eins og sagt var um þorskinn forðum, trúði fremur BBC og Der Spiegel en búrókröt- um úr Brussel, sem líta á sannleik- ann eins og fágæti úr torræðum til- skipunum. Verðmæti evru lækkaði því um 1 prósent við tíðindin. Vera má að Grikkir séu ekki endilega á leið úr evrunni. Þeir séu einungis að hóta því til að fá hærri lán og lægri vexti á þeim gömlu, því staða þeirra sé jafnvel enn verri en ætlað var.    Takist þetta vel munu Írar verðanæstir til að fullyrða að þeir séu ekki heldur með ráðagerðir um að koma sér út úr evrunni. Ólíkindi í evrulandi STAKSTEINAR Veður víða um heim 8.5., kl. 18.00 Reykjavík 15 léttskýjað Bolungarvík 6 skýjað Akureyri 6 alskýjað Egilsstaðir 4 alskýjað Kirkjubæjarkl. 16 skýjað Nuuk 3 skýjað Þórshöfn 10 þoka Ósló 20 heiðskírt Kaupmannahöfn 17 heiðskírt Stokkhólmur 17 heiðskírt Helsinki 17 heiðskírt Lúxemborg 26 heiðskírt Brussel 23 heiðskírt Dublin 15 léttskýjað Glasgow 16 léttskýjað London 18 léttskýjað París 22 heiðskírt Amsterdam 22 heiðskírt Hamborg 23 heiðskírt Berlín 20 léttskýjað Vín 14 léttskýjað Moskva 17 heiðskírt Algarve 20 heiðskírt Madríd 20 léttskýjað Barcelona 21 léttskýjað Mallorca 22 léttskýjað Róm 18 heiðskírt Aþena 18 léttskýjað Winnipeg 13 skýjað Montreal 13 léttskýjað New York 20 heiðskírt Chicago 16 léttskýjað Orlando 27 heiðskírt Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 9. maí Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 4:33 22:16 ÍSAFJÖRÐUR 4:18 22:42 SIGLUFJÖRÐUR 3:59 22:25 DJÚPIVOGUR 3:58 21:51 Skúli Á. Sigurðsson skulias@mbl.is „Það er mikil gleði yfir því að þarna eigi að rísa nýtt prestsetur, […] þetta er sögufrægur staður og þarna hefur verið kirkja alveg frá því á tólftu öld,“ segir séra Elínborg Sturludóttir, sóknarprestur í Staf- holtsprestakalli, en hún tók á föstu- daginn fyrstu skóflustunguna að nýju prestsetri í Stafholti í Borgar- firði. Hún kveður kirkjuyfirvöld og íbúa á svæðinu hafa mikinn metnað til að hafa þennan sögustað í háveg- um. Sigríður Sigþórsdóttir arkitekt teiknaði prestsetrið og líst séra Elín- borgu vel á teikningarnar. „Þetta er látlaust og fallegt hús og hæfir vel staðnum, vel hugsað og kallast á við kirkjuna sem er friðuð, vígð 1877, og útihúsin og umhverfið. Þetta er mjög snoturt hús, það verður spennandi að fylgjast með þessum framkvæmdum í sumar,“ segir séra Elínborg. Naut stuðnings sóknarbarna „Það verður að segjast alveg eins og er að þetta hefur ekki gengið þrautalaust fyrir sig,“ segir Elínborg um aðdraganda hins nýja prestset- urs. Þegar Elínborg tók við Staf- holtsprestakalli árið 2008 var ætl- unin að byggja upp hinn fornfræga kirkjustað og byggja nýjan bústað fyrir sóknarprestinn þar sem hinn eldri var óíbúðarhæfur. Forsendur breyttust við efnahagshrunið það sama ár og varð því ekki af fram- kvæmdum um sinn. „Það var mikill stuðningur frá sóknarnefndunum í prestakallinu og frá sóknarbörnunum,“ segir Elín- borg en fólk í prestakallinu safnaði undirskriftum til að knýja á um að nýr prestsbústaður yrði reistur í Stafholti. Að lokum var verkið boðið út fyrr á þessu ári og stefnt er að því að prestsfjölskyldan geti flutt inn í húsið í seinasta lagi í lok ársins. Seg- ir séra Elínborg það sýna metnað kirkjustjórnarinnar að hún skuli hafa staðið við fyrirætlanir sínar og látið verða af því að reisa nýtt prest- setur. „Þetta er látlaust og fallegt hús“  Nýtt prestsetur mun rísa í Stafholti Ljósmynd/Birna G. Konráðsdóttir Fyrsta skóflustungan Séra Elínborg Sturludóttir tekur fyrstu skóflustung- una að nýju prestsetri í Stafholti með son sinn, Sturlu Jónsson, sér við hlið. Lögregla höfuðborgarsvæðisins stöðvaði akstur tveggja karlmanna á höfuðborgarsvæðinu í gærmorgun og gærdag en þeir eru grunaðir um að hafa sest undir stýri undir áhrif- um vímuefna, og leiddi vímuefna- skimun það í ljós. Auk þess fannst nokkurt magn efna í öðrum bílnum sem talið er vera ólögleg vímuefni. Annar maðurinn var stöðvaður á Hafnarfjarðarvegi á níunda tím- anum í gærmorgun en efnin fundust í bíl hans. Fleiri voru í bílnum og voru allir færðir á lögreglustöð þar sem tekin var af þeim skýrsla. Að skýrslutöku lokinni var fólkinu sleppt. Hinn ökumaðurinn var á ferð um Háaleitisbraut síðdegis í gær. Þá var akstur fimm ökumanna stöðvaður aðfaranótt laugardags en þeir voru allir undir áhrifum. Undir áhrif- um vímuefna í umferðinni

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.