Morgunblaðið - 21.05.2011, Qupperneq 51

Morgunblaðið - 21.05.2011, Qupperneq 51
MENNING 51 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. MAÍ 2011 Stuð Daniel er spenntur að koma til landsins. Hins vegar stoppar hann stutt en er staðráðinn í að koma fljótt aftur. Gunnþórunn Jónsdóttir gunnthorunn@mbl.is Það verður fjör á Nasa annað kvöld þar sem tónlistarmaðurinn Daniel Victor Snaith, betur þekktur sem Caribou, mun troða upp. Tónleik- arnir hefjast kl. 19:00 og verða til um 22:00. Áður en Caribou grípur í mun hljómsveitin Sin Fang sjá um að koma stemningunni í gang. Breytir um tónlistarstefnu Tónlistina sem Caribou spilar er erfitt að skilgreina þar sem hann skiptir um tónlistarstefnur. Til dæmis er platan Andorra sem kom út árið 2008 mjög frábrugðin plöt- unni Swim, sem kom út í fyrra. Lögin Sun og Odessa af þeirri plötu hafa fengið mjög góðar undirtektir. Platan hefur vakið mikla athygli og má greina hana sem einhverskonar minimal teknó. Hann segist sjálfur reyna að forðast þá spurningu, hvernig tegund tónlist hans sé. „Ég þarf ekki að skrifa greinarnar um mig, það er eitthvað sem ég þarf ekki að spá í,“ segir Daniel og hlær. „Tónlistin mín hefur breyst mikið yfir árin. Ég verð fljótt leiður og þarf að breyta um. Mig langar ekki að fá það á tilfinninguna næst þegar ég gef út plötu að hún hljómi alveg eins og t.d. Swim. Þá fer ég að hugsa „Hver er eiginlega tilgangurinn með þessu?“ Ég hef aldrei hugsað um tónlist í teg- undum. Þetta snýst meira um hug- myndir“. Aldrei vandamál að semja Aðspurður hvar hann fengi inn- blástur við að semja sagði hann það aldrei vera neitt vandamál. „Ég er alltaf að vinna að einhverri tónlist, vegna þess að það er gaman, en ekki vegna þess að ég sé að kreista einhverju saman í plötu. Ég er allt- af að hlusta á tónlist og tónlist er alltaf ný fyrir mér, hvort sem hún er gömul eða ný tónlist. Almennt ætti því svarið að vera: frá sjálfri tónlistinni. Það er ekki eins og að ég sitji á einhverjum akri með gít- arinn minn og bíði eftir að andinn komi yfir mig.“ Breytti nafninu fyrir Herra „Handsome Dick“ Caribou var eitt sinn þekktur undir nafninu Manitoba en þurfti að breyta því vegna kæru sem hann fékk á sig árið 2004, frá forsvars- manni hljómsveitarinnar The Dictators, en hann kallaði sig Rich- ard „Handsome Dick“ Manitoba. Daniel ákvað því að breyta nafninu í Caribou. Hann var þó ekkert sér- staklega sáttur og sagði að þetta væri eins og hljómsveitin The Smiths myndi kæra mann sem héti John Smith. Stoppar stutt en kemur aftur Caribou stoppar stutt á Íslandi og finnst það frekar fúlt en er stað- ráðinn í því að koma aftur og ná þá að skoða landið betur. Caribou verður kampakátur á Nasa  Hugsar ekki um tónlist í tegundum  Erfitt að greina eigin tónlist Tónlistarmaðurinn Caribou kemur til landsins á morgun og mun spila fyrir áhorfendur á Nasa. Caribou sem heitir í rauninni Daniel Victor Snaith er með doktorsgráðu í stærðfræði. Hann telur að ástæðan fyrir því að honum líki svo vel við tónlist og stærðfræði sé vegna bæði sé óhlutbundið eða abstrakt. „Það er eins og að vinna að einhverju vandamáli eða ráð- gátu og finna síðan lausn. Það er einhverskonar abstrakt rými í tónlistinni og á einhvern hátt heillar það mig“. Stærðfræði og tónlist DANIEL VICTOR SNAITH Ástarmál leikkonunnar Jennifer Aniston eru alltaf í sviðsljósinu. Síðastliðinn miðvikudag sást til hennar snæða með Justin Theroux sem er þekktur rithöfundur og leikari. Margir töldu nýtt ástarsam- band vera í deiglunni en Aniston og Theroux munu aðeins vera góðir vinir. „Þau eru frábærir vinir. Þeg- ar Justin kemur til Los Angeles frá New York eyða þau oft miklum tíma saman,“ sagði heimildarmað- ur um málið. Þau mættu á veitingastaðinn hvort í sínu lagi. Máltíðin tók þrjá tíma og þau fóru saman heim til Aniston eftir hana. Aniston mun hafa verið í mjög góðu skapi og þau höguðu sér ekki eins og par. Aniston og vinur snæða saman Reuters Aniston Á marga aðdáendur. SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ BORGARBÍÓ 5%NÁNAR Á MIÐI.IS NÁNAR Á MIÐI.IS NÁNAR Á MIÐI.IS GLERAUGU SELD SÉR “BESTA ‘PIRATES’ MYNDIN” - M.P FOX TV P.H. BOXOFFICE MAGAZINE NÁNARI UPPLÝSINGAR OG MIÐASALA Á PIRATES 4 3D KL. 1 (TILBOÐ) - 2 - 4 - 5 - 8 - 10 - 11 10 PIRATES 4 3D Í LÚXUS KL. 2 - 5 - 8 - 11 10 PRIEST 3D KL. 6 - 8 - 10.30 16 GNÓMEÓ OG JÚLÍA 3D KL. 1 (TILBOÐ) - 3 - 6 L FAST FIVE KL. 8 - 10.40 12 THOR 3D KL. 8 12 RIO 3D ÍSLENSKT TAL KL. 1 (TILBOÐ) - 3.40 L JACK SPARROW ER MÆTTUR Í STÆRSTU MYND SUMARSINS! - STÓRKOSTLEG ÞRÍVÍDDARÆVINTÝRAMYND HEIMSFRUMSÝNING! THOR 3D KL. 8 12 PAUL KL. 6 - 8 - 10 12 FAST FIVE KL. 3.50 (TILBOÐ) - 10 12 PRIEST 3D KL. 8 16 GNÓMEÓ & JÚLÍA 3D KL. 3.50 (TILBOÐ) - 5.40 L WATER FOR ELEPHANTS KL. 3 (TILBOÐ) - 5.30 - 8 - 10.30 L GNÓMEÓ OG JÚLÍA 3D KL. 4 (TILBOÐ) - 6 L FAST FIVE KL. 6 - 9 12 PRIEST 3D KL. 10.30 16 HÆVNEN KL. 3 (TILBOÐ) - 5.40 - 8 12 HANNA KL. 8 - 10.20 16 RIO 3D ÍSLENSKT TAL KL. 3.30 (TILBOÐ) L LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar Þú færð 5% endurgreitt í Laugarásbíó ef þú greiðir með kreditkorti tengdu Aukakrónum GILDIR Á ALLAR SÝNINGAR MERKTAR MEÐ RAUÐUTilboð í bíó PAUL Sýnd kl. 4, 5:50, 8 og 10:10 GNÓMEÓ OG JÚLÍA 3D ÍSL TAL Sýnd kl. 2(950kr) og 4 GNÓMEÓ OG JÚLÍA 2D ÍSL TAL Sýnd kl. 2(700kr) og 4 FAST & FURIOUS 5 Sýnd kl. 7 og 10 THOR 3D Sýnd kl. 7:30 og 10 HOPP ÍSLENSKT TAL Sýnd kl. 2(700kr)  „Brjáluð afþreyingarmynd sem mun gefa þér nákvæmlega það sem þú sækist eftir, hvort sem þú ert aðdáandi seríunnar eða hasarfíkill almennt.” T.V. - kvikmyndir.is / Séð og Heyrt STÆRSTA OPNUN ÁRSINS Í USA EIN SKEMMTILEGASTA OG FLOTTASTA GAMANMYND SUMARSINS! T.V. - kvikmyndir.is / Séð og Heyrt  A.E.T - MBL -bara lúxus sími 553 2075 Miðasala og nánari upplýsingar www.laugarasbio.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.