Teningur - 01.06.1989, Page 33

Teningur - 01.06.1989, Page 33
nefnir" (mana) orm, sem nú stígur fram á sviðið og gjörbreytir atburða- rásinni. Hann stingur undrahvönnina sem veitt hafði Jónasi skjól fyrir brennheitum geislum hádegissólar- innar þar á eyðimörkinni, og jafnskjótt visnar tréð. Vesalings Jónas! Þar sem hann sat í hreysi sínu var hann nú sviptur þessum svalandi skugga, og hefur þá geðið að draprast á ný. En ekki fær lesandinn lengi að brosa út í annað munnvikið af þessum spaugilegu óförum Jónasar, því nú færist alvara í leikinn. Kímnin snýst í alvöru áminningarinnar. Drott- inn er að kenna Jónasi lexíu og kennsluaðferðin er afdráttarlaus. Drottinn „útnefnir“ (aftur notuð sama sögnin) nýja persónu til sögunnar: hinn brennheita eyðimerkurvind (sirocco nefnist hann á vorum dögum á tungum Evrópumanna og gerir mönnum lífið leitt) og þessi heiti vindur, hlaðinn sandkornum af eyði- mörkinni, færir Jónasi sólsting, svo hann verður máttvana. Og þá stynur hann upp sömu setningunni sem fór um varir hans um borð í Tarsis-skip- inu og hann hafði nýsagt: „Ég vil heldur deyja en lifa.“ Hér virðast örlög Jónasar ráðin. En sögunni er ekki lokið. Það á eftir að koma í Ijós að það sem á undan er gengið hafði allt annan tilgang en þann að Jónasi yrði að ósk sinni. Nú tekur Guð nefnilega til máls: Þá sagði Guð við Jónas: „Hyggur þú að þú reiðist með réttu vegna rís- inusrunnans?" Hann svaraði: „Ég geri rétt er ég reiðist til dauða.“ Og þá loks birtist lokasvar bókar- innar, guðmælið sem er hið eiginlega spámannsorð hennar. Það er að vísu ekkert svar, gátan er ekki leyst og endanleg örlög Jónasar eru ekki greind. í tvíræðni lokasvarsins birtist skýrum stöfum eigind þessarar bókar: kímnin sem lætur lesandanum það eftir að ráða í eyðurnar. Það hljómar svo og er niðurlag bókarinn- ar: Þú kennir í brjósti um rísinusrunn- ann, sem þú hefur ekki haft erfiði af né alið upp, - sem óx á einni nóttu og visnaði á einni nótt, - en ég á ekki að FRIÐRIKA BENÓNÝS AÐ SAMA BRUNNI í auganu í múrinn í auganu höndin yrkir Mínótárus dauðinn fálmandi blóm sefur kemur í hins illa og vill Ijósið koma ekki vaka fluga stönglar og fer hvassir fyrir lítið í mjúkan múr eldarnir loga náttkaldir svipir blossa kenna í brjósti um Níníve, hina miklu borg, þar sem eru meira en hundrað og tuttugu þúsund manns, sem þekkja ekki hægri hönd frá vinstri, og fjöldi dýra. Bókinni lýkur þannig á spurningar- merki. Lesandinn hefði mátt búast við því að Jónas, sem hafði stigið niður til undirheima (í gervi stórfisksins) og verið bjargað þaðan til lands lifenda, hefði breyst við þessa reynslu sína og beitt henni í viðskiptum sínum við íbúa Níníve. En það þurfti augljóslega til kímileitt bros Guðs til að breyta Jónasi og koma honum í skilning um þetta, - ef hann skildi það þá yfirleitt. Því að sinnaskipti hans, ef þau áttu sér þá stað, gerast utan bókarinnar í hugarheimi lesandans. 31

x

Teningur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Teningur
https://timarit.is/publication/820

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.