Teningur - 01.06.1989, Page 45

Teningur - 01.06.1989, Page 45
aftur þar rekandi flóttann og eirsólirnar Ijóma svo í ennum aö svíður og brennir í augum mér og lófum en ósköp þau líða á burt líkt og veðrin og elding í jörðu og askan og súrinn í munninum hverfur um síðir og ég tek að kyrrast að fleiðrum mínum og sári - og tek til að snúa upp á frestinn magnaðan hnút - ég ég megna vel og ég megna lengi og ég megna lok við hæfi geng svo inn til veggjar míns teygi hendurnar óravegi; dreg betri sýnir aldraða drauma dreg mér öllum hamingjublindu ónæmissælu yfir mig allan - og þá finn ég ekki lengur til að raftárin standa storkin í augum gyðju minnar og táknin flökta döpur og dauf á æðaberum veggjum 4 5 allt hljótt í helli mínum blátt Ijós varla sjáanlegt lengur rennur í myrkrið mammútloðið og mjúkt og umlykur allt miklum krafti öllu er brugðið sjónarmunur á birtunni þeyrinn er kaldur og rakur og ég allur tekinn að sölna út frá augunum - og eg ég skal mana þá mana þá upp ægifagra og viðbjóðslega svona líka andskoti ógeðslega hressa - og sveipirmr fullkomnir sveipir snjóa og myrkra á snúningi aftur snautlega að fótum mér flaðrandi ég seiði þá fram með ennin öll logandi og glæsta kistla herðanna gráhvíta í framan og rauða um neglur ég magna þá magna þá svona og upp óvörum að stökkva úr kolbrunnu koki sólar og sökkva í rotin sín dimm - þá er ekki kuldinn í beinunum bjarmar lengi af ofsa og kulnar seint meðan óttinn smýgur myndina safnast í svartan eld úruxans og hala og heift mín hún herðist í odda augna minna og dýranna - og ég ég legg svo á og mæli svo um að þeim verði eins og mér návindur í nösum vefurinn fyrir vitum undanhaldið langt hringast og storkna við eldinn í tröllslegar myndir langfeðga minna - og ég ég dreg mér björg úr hverju tári 6 þegar neanderthalis þótti öllu því eytt sem grandað yrði þá gróf hann gyðju sína í gori þakti tákn sín af ástúð veggina alla með blautri ösku hlóð upp í hellismunnann og tók stefnu út og vestur fjöll allan þann dag hafði hann veður af æti og nærri almyrkt orðið þegar hann tók eftir því að sá sem fer síðastur sinna varpar engum skugga á hjarnið 43

x

Teningur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Teningur
https://timarit.is/publication/820

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.