Einherji - 22.09.1966, Qupperneq 2
2
EINHERJI
Fimmtudíigur 22. september lft66
Blað FramsóÉtnarmanna
f Norðu rlandsbjördiwni vestra
Ábyrgöarmaður:
Jóhann Þorvaldsson
Árgjald kr. 50,00.
Gjalddagi 1. jálí
Siglufjarðarprentsmiðja
Uppgjafarvitni
Þorri manna rœðir eltki um annað meir en þá óðaverð-
bóigu, sem nú geysist fram með æ vaxandi hraða. Hún
ríður húsum um gervallt land, svo að hriktir í öllum við-
mn Framleiðslan stynur undir oki verðbólgunnar. Oddvit-
ar landbúnaöar, útgerðar, iðnaðar — allir eru þeir á einu
máli um, að öli framleiðs'a sé á heljarjjröm. hkipafélögin
kvarta, fiugféiögin kvarta — allir kvarta, þeir sem ein-
hvern rekstur hafa með höndum. Launameim og verka-
meinn telja sig vanhaldna. Verðbólgan setur allt úr
skorðum. . i i
öll f járfesting er skipulagslaus. Tuguiii og hundruðum
milijóna er ausíð í framkvæmdir, sem engan arð færa
þjóðarbúinu, þótt fáir einstaklingar kumd þar að draga
vænan drátt. Þarna má ekki stinga við fótum- Það væru
„höft“. Framleiðslan er afskipt um lánsfé. Samvinnufé-
lögin, sem samkvæmt hinnm háþróaða félagsmálaskiln-
ingi Morgunbl. eru „þröng sérhagsmunaklíka,“ eru af-
skipt nm lánsfé. Þó er þeim gert að skyldu að láta af
hendi milljónir af aflafé sinna mörgu félagsmanna til
frystingar í Seðlabankanum. Þetta og þvíumlíkt eru ekki
,>höít“, samkvæmt skilgreiningu hagfræðifrófessorsins.
Það er frelsi, dæmigert íhaldsfrelsi. Snöru má ekki nefna
í hengds manns húsi.
Ríkisstjómin lofaði í öndverðu að stöðva verðbólguna.
Lífverðir hennar hafa að vísu borið á móti þessu, þ.á.m.
hagfræðiprófessorinn. Hann kemst raunar ekki fram hjá
hinmn frægu og hreinskilningslegu ummælum Ólafs heit-
ins Thors. En hann er nógu forsjáil til að segja: ,^Ég
fyrir mitt leyti legg allt annan skilning í þessi ummæli
hans, sem stjómarandstæðingar í seinni tíð hafa svo oft
vitnað til.“ Hinn persónulegi skilningur hagfræðiprðfess-
orsins á mæltu máii er sem sé aimar og sjálfsagt æðri
mikln öllum skilningi almennings.
Ríkisstjórnin hefur ekki getað efnt loforð sitt um
stöðvun verðbólgunnar. Þetta vita allir- Hún hefur ekki
einu sinni haft neina raunhæfa tilburði í þá átt að hamla
gegn hraðvexti verðbólgunnar, heldur hið gagnstæða.
Ihaldsprófessorinn og sálufélagar hans vilja firra ríkis-
stjórnina allri ábyrgð á ástandinu. Prófessorinn segir í
Morgunbl. 23. júni: „En á framleiðslukostnaðinn getur
hið opinbera lítil bein áhrif haft, þar sem hann er fyrst
og fremst kaupgjald þeirra, sem að framleiðslunni vinna,
en kaupgjaldið er ákveðið af samningum milli atvinnu-
rekendana og launþega, sem ríkisvaldið getur aðeins haft
óbein áhrif á.“
Hann minnist ekki á rekstrarvörur atvinnuveganna,
ekki á vexti, ekki á skatta, söluskatt né aðra. Hafa þessir
liðir þá engin áhrif á framleiðslukostnaðinn og þróun
verðbólgunnar? Hefur hið opinbera beitt áhrifiun sínum
til lækkunar þessum liðum — eða hækkunar?
Prófessorinn sér ekkert nema kaupgjaldið. Og þar
leyfir hann sér að umhverfa þeim sannleika, að það eru
ekki atvinnurekendur, heldur sjálft ríkisvaldið, sem verið
hefur hinn raunverulegi samningsaðili gagnvart launþeg-
um í öllum meiri háttar kjarasamningum að undanförnu.
Prófessorinn talar um óheiðarlegan málfiutning and-
stæðinga. Þetta er víst hinn „heiðarlegi“ málflutningur.
1 þvílíkt öngþveiti geta jafnvel mætir menn rekizt í vörn
íyrir vondum málstð. Um Morgunbiaðið þykir slíkt ekki
tUtökumál.
Ríkisstjórnin er engilhrein. Stundum er það þjóðin,
stundum stjórnarandstaðan, sem á alla sök. Hún er hinn
svarti sauður. Nú hælast stjórnarblöðin um yfir því, að
ríkisstjórnin hafi óskorað traust meiri hluta þjóðarinnar.
Til hvers má ætlast af ríkisstjórn, sem hefur öruggt
meirihluta fylgi? Á hún ekki að hafa forystu? Á hún
ekki, með tilstyrk sinnar öruggu áhafnar, að sigla fley-
inu út úr ölium ólgusjó? Á hún að láta illviljaðan minni-
hluta taka af sér ráðin og sigia öllu norður og niður?
Eða er hún rekald eitt, sem veltur sitt á hvað í brim-
garðinum? Hvernig á að koma því heim og saman að
rikisstjóra, sem státar af öruggum meirihluta, skuii ekki
geta stjómað með tilstyrk þessa meirihluta og fundið
færa leið út úr þeim ógöngum, sem þjóðin hefur ratað í
— undir hennar forystu?
Sannleikurinn er auðvitað sá, að stjómin hefur löngu
gefizt upp við að stjóma. ólafur Bjömsson, hagfræði-
prófessor, viðurkennir þetta hreinlega og orðar það svo:
„Það er raunverulega aðeins um tvær stefnur í efna-
hagsmálum að ræða, að halda áfram sömu stefnu sem
fylgt hefur verið eða hverfa aftur að haftafyrirkomu-
laginu.“
Með öðrum orðum: Annað hvort æ vaxandi óðaverð-
bólgu eða óþolandi höft-
Mundi ekki þessi helzti málsvari ríkisstjómarinnar í
efnahagsmálum vera talinn nægilega öraggt uppgjafar-
vitni?
Gísli Magnússon.
Reytingsafli. Stirðar gæftir.
Heyskap lokið.
Skagaströnd, 16. sept.
iíér lieíui- verið góu uð, piurua-
samt og flestir lokið heyskap.
Heyfengur er minni en oft áður
en nýting góð.
jÞrír bátar stunda enn snurvoð
og fiska sæmilega pegar gefur,
en gæftir eru stirðar. jEinstaka
fara á færi. Helga Björg og Húni
H. stunda enn sildveiðar fyrir
austan og fiska sæmilega.
Sauðfjárslátrun mun hefjast hér
um 20. sept. Gert er ráð fyrir að
siátra 4—5 þús. fjár. — P.J.
KENNABI og SKÓLASTJÓRI
í 43 ÁR
....PáU Jónsson, skólastjóri, Skaga
strönd, hefur nú látið af skóla-
stjórn sökum aldurs og eigi vit-
að um hver við tekur. PáU hefur
fengizt við kennslu í 43 ár og
þar af skólastjóri í Höfðahr.
síðan 1939 og var hann fyrsti
kennari er skipaður var þar,
þegar hreppnum var skipt.
PáU hefur reynzt góður og far-
sæU skólamaður. Ágæt fyrirmynd
nemendum sínum, bæði í orði og
verki, og sUkt eru beztu eftirmæli
sem góður skólamaður getur
hlotið. Skagabyggðir hafa því
PáU mikið að þakka.
Heyskap lokið. — 1 Reykja-
skóla verða 120 nemendur.
Reykjaskóla, 16. sept.
Heyskap er lokið hér um slóðir,
enda tið hagstæð nú um skeið.
Heyfengur mun vera með minna
Samþykktir um héraðsmál Framhald at 8 síðu
sóknir og sölustarfsemi í þágu útflutningsatvinnuveganna, og leggur
áherzlu á framkvæmd þeirra ályktunar.
6. FRAKVÆMD AÁÆTLUN :
Kjördæmisþingið telur nauðsynlegt að nú þegar sé hafizt handa
um gerð framkvæmdaáætlunar fyrir Norðurland vestra. Telur þingið
sérstaka nauðsyn á því vegna hins alvarlega atvinnuástands í þeim
landshluta. Jafnframt bendir þingið á, að æskilegt sé, að þingmönn-
um kjördæmisins sé gefinn kostur á að eiga beina aðild að gerð
þeirrar áætlunar.
7. ATVINNUMÁLANEFND :
Kjördæmisþingið samþykkir að kjósa Atvinnumálanefnd Fram-
sóknarflokksíns í Norðurlandskjördæmi vestra.
Nefndin skal skipuð 6 mönnum auk alþingismanna flokksins í
kjördæminu.
Nefndina skal kjósa til tveggja ára í senn og í fyrsta sinn á nú-
verandi kjördæmisþingi. Nefndin velur sér formann og ritara.
Nefndin skal fylgjast vel með ástandi og horfum í atvinnumálum
í kjördæminu og gera tillögur til þingflokksins um þær útbætur,
sem hún telur farsælastar tii árangurs hverju sinni.
8. TEKJUSTOFNAR SVEITARFÉLAGA :
Kjördæmisþingið skorar á næsta Alþingi að gera eftirfarandi breyt-
ingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga.
1. Aðstöðugjöld verði hlutfallslega jafnhá um allt land, hjá þeim
sveitarfélögum, sem nota þann tekjustofn. Þó er sveitarfélagi heimilt
ef þörf krefur að leggja allt að 5% ofan á álögð aðstöðugjöld, enda
sé ákveðin hlutfallslega sama hækkun á útsvörum frá lögákveðnum
útsvarsstiga hjá sveitarfélaginu.
2. Hækkun útsvara, frá lögákveðnum útsvarsstiga, fari ekki fram
úr 5%, í stað 20% í gildandi lögum.
9. L ANDBÚN AÐ ARMÁL :
Kjördæmisþingið styður eindregið þá kröfu Stéttarsambands bænda
að ríkissjóður greiði fullar útflutningsuppbætur á landbúnaðarafurðir
á meðan bændur eru að breyta framleiðslunni eftir markaðsmögu-
leikum, enda á sá halli, sem orðið hefur á útflutningi landbúnaðaraf-
urða, rót sína að rekja til efnahagsmálastefnu ríkisstjórnarinnar.
Þá lýsir þinglð fylgi við frumvörp Framsóknarmanna á Alþingi um
eflingu Veðdeildar Búnaðarbankans, samvinnubúskap og bústofns-
lánasjóð.
10. S JÁVARÚTVEGSMÁL :
Kjördæmisþingið skorar á stjórn Síldarverksmiðja rikisins að
halda áfram á þeirri braut, sem farið var inn á við kaup á síldar-
flutningaskipinu Hafernlnum.
Jafnframt verði gaumgæfilega athugaðir möguleikar á því að flytja
fisk til fiskvinnslustöðva í kjördæminu, sem vantar hráefni.
Þá skorar kjördæmisþingið á Síldarútvegsnefnd að hafa forgöngu
um, að flutningar á síld til söltunar verði hafinr á komandi sumri
til hafna á Norðurlandi.
11. IÐNAÐARMÁL:
Kjördæmisþingið leggur áherzlu á, að iðnaður verði aukinn og
efldur í kaupstöðum og kauptúnum kjördæmisins, í þeirri trú, að
með því sé stefnt að lausn á árstímabundnu atvinnuleysi og tryggð
verði sem bezt lífskjör.
Auk framleiðslu á margs konar nauðsynjavörur til notkunar inn-
anlands, verði lögð höfuðáherzla á vinnslu sjávar- og landbúnaðar-
afurða til útflutnings.
Tollamál iðnaðarins verði tekin til endurskoðunar og nauðsynlegra
leiðréttinga.
Einnig telur þingið eðlilegt og sjálfsagt, að iðnaðurinn njóti sömu
aðstöðu og sjávarútvegur og landbúnaður um endurkaup framleiðslu-
hráefnavixla.
Kjördæmisþinglð samþykkir að skora á ríkisstjómina að láta koma
til framkvæmda lögin um lýsisherzluverksmiðju á Siglufirði.
Jafnframt lýsir kjördæmisþingið stuðningl sinum við þá fyrirætlan
Siglfirðinga að byggja og reka dráttarbraut á Siglufirði og skorar því
á vitamálastjóra og rikisstjóm að yeita leyfi til þess og aðra nauð-
synlega fyrirgreiðsla.
móti en nýting góð. Nokkuð bar
á kali á sumum bæjum og er
heyfengur ali misjafn af því.
Mun verða fargað meira af stór-
gripum en venjulega.
Skóiinn tekur hér til starfa um
næstu mánaðamót. Er það gagn-
fræðadeild, 3. bekkur, er þá kem-
ur í skólann. 1. og 2. bekkur
koma um miðjan okt. Það verða
120 nemendur í skólanum í vetur
og er það meira en fullsetið.
Kennarar verða 6 auk skóla-
stjóra. Þess er vænzt að hægt
verðl að taka í notkun hluta af
nýrri byggingu, heimavist fyrir
28 nemendur, og bætir það nokk-
uð úr húsrými skólans. Er það
um helmingur þess, er koma
skal. — Ó.K.
Kartöfluspretta sáralitil.
Heyfengur sæmilegur.
Ganguamenu við Langjökul
tala heim í Vatnsdal.
Ási, Vatnsdal, 16. sept.
Góð tíð undanfarna daga og
lok heyskapar því farsæl. Háar-
spretta er hér litU og sums stað-
ar engin og töðufengur því
minni en oft áður. Nokkuð hafa
menn bætt sér það upp með þvi
að heyja á eylendi (flæði engj-
um), einkurn í Sveinsstaðahr.
Kartöfiuspretta sáralítU og
sums staðar engin, enda féUu
kartöflugrös víða í ágúst. Menn
munu fækka kúm og nautpeningi.
Féð virðist heldur lélegt og mjög
misjafnt.
Nú eru menn í göngum. Fóru í
fyrradag en koma ekki tíl rétta
fyrr en á laugardag og sunnn-
dag. 1 dag eru þeir stáddir suður
undir LangjökU og segja að sér
Uði vel og allt gangi að ósktun.
Við getum sem sagt talað við
þá, því þeir hafa talstöðvar meö
sér og geta haft samband við
byggð og líka hver við annan. Er
það í fyrsta skipti sem slíkt er
gert. Réttað verður hér á suunu-
dag og mánudag. Aðalréttirnar,
vestan Blöndu, eru: Undirfeils-
rétt, Tungurétt og Auðkúlurétt.
Farið verður í hrossasmölun 28.
sept og stóðið réttað 1. okt, og
er þá taUð að öUum réttarn só
lokið. — GJ.
Sauðárkróki 14. sept.
Sauðfjárslátrun er hafin hjá
Kaupfélagi Skagfirðinga. Hófst
hún 12. sept. og mun ljúka um
miðjan okt Áætlað er að slátra
41 þús. fjár. Er það um 2 þús.
fleira en í fyrra. Slátrað er um
1400 kindum á dag 5 daga vik-
unnar og vinna yfir 100 manns
við sláturhúsið.
Vænleiki dilka virðist í meðal-
lagi. Áður en sauðfjárslátrun
hófst var slátrað 100 stórgripum,
og þegar sauðfjárslátrun lýkur
mun verða lógað stórgripum, lík-
lega fleirum en nokkru slnni fyrr.
NORBURLAND
FRAMHALD AF 1. SÍBU
arnir 12.531. 1 kauptúnum 2.968
og í sveltum 5.656.
NORÐURLAND VESTRA
Þar voru íbúarnir 10.267 í
tveimur kaupstöðum og þremur
sýslufélögum og hafði aðeins
fjölgað um 26 á síðustu 5 árum.
I kaupstöðunum 2, Siglufirði og
Sauðárkróki voru aðeins 8.862 í-
búar, í kauptúnunum 5 1918 og í
sveitum 4.487 íbúar.
Á Sauðárkróki hafði íbúunum
fjölgað um 185 á síðustu 5 árum,
eða 15.3%. í Siglufirði hafði þeim
fækkað um 208 á fimm árnm. I
kauptúnunum 5 hafði þeim fjölg-
að um 95 en í sveitunum fækkað
um 46, eða 1%. Eins og þessar
tölur sýna, hefur orðlð óeðlileg
fólksfækkun á elnstöku stöðum á
Norðurlandi vestra, og eru orsak-
irnar fyrst og fremst hin mögru
ár sjávarútvegsins á þessum stöð-
m