Lífið - 01.01.1936, Page 84

Lífið - 01.01.1936, Page 84
80 LÍFIÐ €ftir í sárum og skelfingu. Svo kom hungursneyð, drepsótt og stjórnarbylting. Veröldin var í verra reiðileysi en nokkru sinni áður. Hann hafði dreymt óumræðilega fagra drauma, en sjálft lífið var enn kvalafyllra en áður. En hann hélt áfram að dreyma. Hann gat ekki annað en dvalið í draumi. Stundum hafði hann innan um aðra drauma dreymt um gyðju, sem venjulega er AST kölluð. — Hann dreymdi um stúlku með eldheitri sál, sem var í insta eðli sinu eins björt eins og morgunroðinn, og eins hrein, skær og fögur og himinhvelfingin bláa, þar sem fjöldi voldugra sólna horfa til vor, eins og blikandi neistar, og eru því stjörnur nefndar — gyðja lista, unaðar og ástríðu. Loks bast hann trygðum þeirri, sem hann hugði, í loga ástarbálsins, að væri þessi mikla hugsjónamynd. Hún hét honum eilífri trygð. En hún var ekki gyðja. Samt varð öll þrá hans, von og ást fjötruð við hana. Það var tryltur leikur um lífið eða dauð- ann. En jafnvel þá vissi hann ekki til fulls, hve ógurlegur veruleiki sorgarinnar er fyrir hina stærstu sál. Dag nokkurn stökk hún á brott og kom ekki aftur. Að svo búnu steypti hann sér í botnleysið eilífa —• dauðann. J. B. Tímax-itið Lífið kemur út í 4 heftum ái'lega. Hvert hefti minst 5 arkir. Áskriftarverð 5 kr. árgangurinn. í lausasölu kostar hvert hefti 2 krónur. Prentað í ísafoldax-prentsmiðju h.f.

x

Lífið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lífið
https://timarit.is/publication/674

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.