Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.04.2000, Qupperneq 11

Freyr - 01.04.2000, Qupperneq 11
Burðartímaskipting 1999 % 15 10 5 0 / / / / /// / * Mynd 4. Hlutfallsleg skipting á burði kúnna eftir mánuðum árið 1999. anburðar við fyrri ár. Af búum með fleiri en 10 árskýr voru 638 (599) sem náðu þessu marki árið 1999, eða meginþorri búanna í skýrslu- haldinu. Af þeim voru 193 (127) sem náðu 5000 kg markinu og af þeim 19 (11) sem voru yfir 6000 kg að meðaltali og í þeim hópi var í fyrsta skipti í sögunni eitt bú sem náði 7000 kg markinu. Áberandi er hin mikla fjölgun á milli ára í hópi búa sem ná að skila mjög miklum afurðum. Fyrsta bú með yfir 7000 kg meðalafurðir á kú í töflu 2 er yfirlit um þau 19 bú sem voru með fleiri en 10 árskýr skýrslufærðar árið 1999 og voru með yfir 6000 kg meðalafurðir eftir hverja árskú. Þama skipar efsta sætið að þessu sinni félagsbúið í Baldursheimi í Mývatnssveit. Þar voru árið 1999 á skýrslu 15,4 árskýr og voru meðal- afurðir þeirra 7160 kg af mjólk, en kjamfóðumotkun var 1302 kg að meðaltali á hverja kú. Þó að mjólk- urmagnið sé feikilega mikið þá er jafnhliða mjög hátt efnamagn mjólkur því að próteinprósenta mælist að meðaltali 3,42% og fitu- prósenta 4,03%. Þetta er frábær árangur sem ekki næst nema saman fari góðir gripir, góð umhirða og fóðmn gripa. Lesendum skal bent á viðtal við bændur í Baldursheimi á öðram stað í blaðinu. Rétt er að leggja áherslu á að hér er, eins og lesendur margir þekkja enginn ný- græðingur á þessum lista á ferðinni því að þetta bú hefur á þriðja áratug ætíð verið í flokki afurðahæstu bú- anna á landinu og árið 1983 var það fyrst búa á landinu til að brjóta 6000 kg múrinn í búsmeðaltali. Til gamans má rifja það upp að þá var kjamfóðumotkunin á hverja kú að meðaltali nær nákvæmlega hin sama og nú. I öðm sæti er að þessu sinni sama bú og skipaði það sæti á síðasta ári. Þetta er búið hjá Daníel Magnús- syni í Akbraut í Holtum, en árið 1999 vom hjá honum 16 árskýr sem skiluðu að meðaltali 6899 kg af mjólk og fengu að jafnaði 1276 kg af kjamfóðri. I framhaldinu kemur síðan röð af búum sem hafa skipað með sér efstu sætunum á landinu á síðustu ámm. Þriðja í röð er búið hjá Reyni Gunnarssyni í Leirulækjarseli í Borgarbyggð með 6864 kg að með- altali, fjórða búið er hjá Ragnheiði og Klemens á Dýrastöðum í Norð- urárdal með 6758 kg, í fimmta sæti Ragnar og Magnús í Birtingaholti I í Hrunamannahreppi með 6655 kg og í sjötta sæði em Hlynur Snær og Guðlaug Björk á Voðmúlastöðum í Austur-Landeyjum með 6635 kg af mjólk eftir hverja kú að meðaltali. Margoft á síðustu ámm hefur verið á það bent að eðlilegra geti verið að skipa efstu búum á gmnd- velli samanlagðs magns verðefna í mjólk (mjólkurfítu + mjólkurpró- tein) en mjólkurmagns. Þegar það er gert þá riðlast röð búanna örlítið. Búið í Baldursheimi stendur að vísu óhaggað á toppi og yfirburðir þess ef til vill enn skýrari þar, en röðin lítur þannig út; Baldursheimur 533 kg Birtingaholt I 509 kg Akbraut 506 kg Voðmúlastaðir 505 kg Dýrastaðir 493 kg Leirulækjarsel 491 kg Áður hafa bú hér á landi ekki náð 500 kg viðmiðuninni í þessum sam- anburði þannig að þama koma nú fjögur bú sem bæta um betur það sem áður var best þekkt hér á landi. Á mynd 4 er sýnd á hefðbundinn hátt skipting í burðartíma kúnna. Rétt er að minna á þá annmarka, sem em á þessum tölum, vegna þess að þær em unnar eins og skrár em um áramót. Vegna þess er eitt- Afurðir eftir burðarmánuðum 1999 6000 5000 4000 3000 2000 1000 0 •f / / Á 4' # <4 6«? Mynd 5. Afurðir fullmjólka kúa flokkaðar eftir burðarmánuðum árið 1999. FREYR 3/2000 - 11

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.