Freyr

Volume

Freyr - 01.04.2000, Page 19

Freyr - 01.04.2000, Page 19
að huga að því að þessar kýr séu á hverjum tíma sæddar með sæði úr þeim nautum sem í notkun eru sem nautsfeður. Um leið og horft er til fleiri eigin- leika í ræktunarstarfmu er eðlilegt að sá grunnur, sem byrjað er að huga að nautsmæðrunum frá, breikki. Þess vegna er enn haldið þeim gömlu mörkum að til greina sem nautsmæður komi kýr sem fá 110 eða meira í kynbótamat um af- urðir. Með þeim miklu farmförum sem verið hafi í þessum eiginleika í kúastofninum á síðustu árum hefur þessi hópur stækkað feikilega mikið og eru nú orðnar um 3000 kýr sem ná þessum mörkum. í raun má samt segja að kýr, sem hafa þetta mat á bilinu 110-114, séu ekki áhuga- verðar nema um sé að ræða fágæta afbragðsgripi um mjaltir, skap, júg- ur, spena og efnamagn og hafi borið mjög reglulega og verið hraustar. í töflu 3 er gefið yflrlit um þær kýr sem hafa kynbótamat um af- urðasemi sem er 125 eða hærra. í þessum hópi eru að vonum þær kýr sem mesta athyglin beinist að á hverjum tíma sem væntanlegar nautsmæður. Mjög margar þeirra fylla að vísu þegar þann hóp. Þegar litið er til þeirra kúa sem eru með 130 eða meira í mati eru það allt sömu kýr og þar var að finna á síðasta ári nema ein, Bringa 96 í Geirshlíð í Flókadal. Þessi kýr er dóttir Hafurs 90026, en móðir hennar Snegla 85 var ein af úrvals- dætrum Suðra 84023, en í framætt- um hennar eru margar af hinum þekktu nautsmæðrum í Geirshlíð fyrr á árum. Þetta er feikilega mikil mjólkurkýr á góðum aldri. Hinar kýmar hafa skipt örlítið um röð, en í hliðstæðri grein á síðasta ári er gerð frekari grein fyrir þessum af- reksgripum og vísast til þess. Á nautsmæðraskránni er að finna nokkra feikilega stóra dætrahópa. Það er mikil breyting frá því sem var þegar skráin var fyrst á gmnni núverandi kynbótamats fyrir rúm- um hálfum áratug, en þá var þar nánast aðeins að finna dætur eins nauts, Tvists 81026, sem vart er þar lengur að finna. Þetta er aðeins einn af mörgum sjánlegum mælikvörð- un um hinar miklu erfðaframfarir sem em að gerast í stofninum. Langstærsti dætrahópurinn er eins og á síðasta ári dætur Andvara 87014 sem em hvorki færri né fleiri en 311, sem þama er að finna. Margar af þessum kúm eiga naut- kálfa á Uppeldisstöðinni eða naut á Nautastöðinni núna. Hins vegar grisjast þessi dætrahópur vemlega sem mögulegar nautsmæður vegna hins lága próteinhlutfalls í mjólk hjá þeim, þó að þessar kýr séu margar miklir kostagripir að öðm leyti. Þarna er að finna 170 kýr undan Svelg 88001. Nokkrar af dætrum hans eru þegar þekktar nautsmæð- ur og skemmst að minnast þess að besta naut 1993 árgangsins, Blakkur 93026, er dóttursonur hans. Ur þessum hópi hljóta að koma fjölmargar öflugar nauts- mæður á næstu misserum vegna þess að margar þeirra eru miklir kostagripir með tilliti til fleiri eiginleika. Óli 88002 á 158 dætur í þessum hópi og þeim á vafalítið eftir að fjölga verulega á næstu ámm. Þama er feikilega mikið af alhliða kosta- gripum sem miklu skiptir að nýtist sem allra mest. Dætur Daða 87003 eru þarna 155. Allmargar þeirra eiga þegar syni nýkomna í noktun eða í upp- eldi. Dætur Daða eru nokkuð breytilegar en öflugustu kýmar í þeim hópi eru margar á meðal þeirra allra athyglisverðustu í dag eins og tafla 3 vitnar um. Holti 88017 er þama með 149 dætur og þær munu áfram streyna inn á skrána á næstu misserum vegna þess hve margar þeirra eru núna að koma í framleiðslu. Vegna mikilla yfirburðakosta um júgur- gerð, auk einstakra mjalta hjá mörgum af þessum kúm em þær ákaflega áhugaverðar í nauts- mæðrahópinn núna. Þráður 86013 á 143 dætur. Nokk- uð er um að þær séu þegar í hópi nautsmæðra en þessum kúm er sér- stök ástæða til að veita athygli vegna þeirra yfirburðakosta sem hafa verið að koma í ljós hjá dætmm Þráðar, sérstaklega um júgurhreysti. Bassi 86021 er með 138 dætur á skrá. Þama koma kýr sem hafa yfir- burði á allt öðm sviði, en sem sár- lega vantar. Þar er hið feikilega háa próteinhlutfall mjólkurinnar sem er að sækja. Vegna þess að þessar kýr em ekkert sérstaklega afurðaháar, mælt í mjólkurmagni, hafa þær ef til vill ekki notið sannmælis. Þama ætti að mega finna mikið af úrvals nauts- mæðmm því að þetta em öflugar kýr með ágæta júgurgerð. Skaphöfn þeirra er að vísu nokkuð breytileg. Hólmur 81018 á 118 dætur á skrá. Þessar kýr em á ákaflega breyti- legum aldri vegna hins óvanalega langa notkunartíma sem þetta naut hafði en langan tíma tók að sannfæra bændur um kosti þess. Nokkrar af þessum kúm em því þegar í hópi nautsmæðra. Hér er það hið háa próteinhlutfall sem em hin miklu verðmæti þeirra framar öðm. Hér hefur verið gerð grein fyrir stærstu dætrahópunum sem óneit- anlega munu mikið móta nauts- mæðrahópinn næstu árin. Til að forðast of mikla skyldleikarækt er samt veruleg ástæða til að horfa til úrvalskúa undan öðrum nautum. Að síðustu er eins og áður vemleg ástæða til að beina athyglinni sér- staklega að ungu kúnum sem eru ekki enn komnar með kynbótamat. Þar er allra bestu gripina tvímæla- laust að finna í dag þegar erfðafram- farir eru þetta miklar. Öllu varðar að nýta þessa gripi sem allra fyrst í ræktun. Til að það gerist verður að sæða þær með sæði úr nautsfeðmm. Einnig vil ég beina til bænda sem eiga úrvalsættaðar kvígur (undan bestu nautsmæðrunum og nautsfeðrum) að halda þeim á þennan hátt. Nautkálfar undan slík- um fyrsta kálfs kvígum em sann- anlega mjög áhugaverðir. Víða er- lendis má sjá að í dag er yfirleitt yf- ir helmingur allra nýrra nauta sem koma til notkunar þannig til komin. FREYR 3/2000 - 19

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.