Freyr

Volume

Freyr - 01.04.2000, Page 43

Freyr - 01.04.2000, Page 43
Sœnsk fjallakýr. Þessar kýr eru upprunnar í Norður-Svíþjóð enfátt er eftir af óblönduðum gripum. Helstu niðurstöður Niðurstöður varðandi blóðflokka og blóðprótein voru bomar saman við eldri rannsóknir á sömu atriðum sem gerðar voru á tímabilinu 1960 til 1970. Þar kom fram að breyting- ar á erfðasamsetningu hópanna hafa ekki orðið verulegar á þessu tímabili (30 - 40 ár) og kynin hafa haldið hvert sinni sérstöðu. Þó vom merki um tap á erfðabreyti- leika í sumum kynjum, bæði í stóru ræktuðu kynjunum og sumum gömlu kynjunum. Þama getur bæði verið um að ræða áhrif lítilla stofna og óbein áhrif skipulegrar ræktunar. Niðurstöður um tíðni erfðavísa sem stýra gerðum mjólkurpróteina sýndu að tíðni kappa, kaseins B er hærri í gömlu norrænu kúakynjun- um en í stóm framleiðslukynjunum. Þessi próteingerð hefur vakið áhuga manna á undanfömum ámm vegna jákvæðra tengsla við við nýt- ingu mjólkur til ostagerðar. Sama máli gegnir um tíðni beta-kaseins A2, sem var nokkuð hærri í göml- um kynjum, sérstaklega þeim sem eiga uppruna sinn norðarlega á svæðinu. Að öðm leyti kom ekki fram verulegur munur á tíðni mjólkurpróteina. Skyldleiki kynjanna innbyrðis var metinn út frá öllum tiltækum niðurstöðum og þá kom fram sam- hengi sem sýnt er á 7. mynd. í heild má segja að kynin raðist í fjóra aðalhópa, sem eru eftirfarandi: 1. Norðlæg gömul kyn, þ.e. ís- lenskar kýr, gömul kyn frá A- og V-Finnlandi, sænska fjallakynið og STN (Sidet Trpnder og Nord- landsfe) frá norðanverðum Nor- egi. 2. Suðlæg gömul kyn, þ.e. gömlu rauðu kynin í A- Noregi og Sví- þjóð, rauðar danskar kýr ásamt Telemark kyninu og dönskum stutthymdu kúnum (Shorthom). 3. Kyn, sem eiga rætur að rekja til Ayrshire og Friesian ræktunar, þ.e. rauðskjöldóttu og svart- skjöldóttu kynin sem standa undir nær allri framleiðslunni á Norðurlöndum, ásamt jóska kúa- kyninu í Danmörku. 4. Jersey kýr, sem ekki em skyldar neinum hinna hópanna. Auk þess vom þrjú norsk kyn sem ekki röðuðust í neinn af hóp- unum, þ.e. Dalakýr, Fjarðakýr í V- Noregi, og rauðar kollóttar í V- Noregi., og er sennilegt að inn- blöndun óskyldra gripa frá fyrri tíð sé orsökin. Ut frá þessum niður- stöðum má reikna fjölda kynslóða Kýr af norsku Fjarðakyni. Kynið er samsafn lítilla erfðahópa sem voru rœktaðir hver í sínum firði í N- Noregi og því er litafjölbreytni mikil. frá því kynin voru aðskilin í ræktun og ef það er gert fyrir íslenska kyn- ið og STN kynið í N- Noregi, sem stendur næst því íslenska, fæst 221 kynslóð eða 1100 til 1300 ár, miðað við 5-6 ára ættliðabil. Þetta fellur beint saman við sögulegar heimild- ir um landnám íslands. Önnur kyn eru fjær íslenska kyninu eða yfir 300 kynslóðir. Niðurstöðumar benda til þess að nautgripir hafí upphaflega komið til Norðurlanda bæði úr austri (norð- lægu kynin) og suðri (suðlægu kyn- in) og að uppruni íslenska kynsins sé í norðaustri. Rannsóknir á naut- gripakynjum í norðanverðu Rúss- landi gætu gefíð til kynna hvort þessi kenning stenst en ekki er vit- að til að þær hafí verið gerðar. Mat á erfðabreytileika innan kynjanna leiddi í ljós hlutfallslega svipaðan breytileika innan gömlu kynjanna, þar sem stofnamir em yf- irleitt litlir, og innan stóm fram- leiðslukynjanna og almennt er mun meiri breytileiki innan kynja en á milli þeirra. Breytileikinn virðist því ekki kominn að hættumörkum í litlu stofnunum þrátt fyrir fáa gripi og tekist hefur að forðast óhóflega skyldleikarækt. Þetta gefur vonir um að unnt sé að halda þeim við áfram ef þess er gætt að nota eins marga gripi og mögulegt er sem foreldra í hverri kynslóð. I sumum tilfellum má einnig breikka grunn- FREYR 3/2000 - 43

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.