Freyr

Árgangur

Freyr - 01.04.2000, Síða 36

Freyr - 01.04.2000, Síða 36
Meðalvaxtarhraði og jaðarvaxtar- hraði er sýndur á 3. mynd eftir stofnum (meðaltal nauta og kvíga). Það sem fyrst vekur athygli er að blendingarnir þurfa talsverðan tíma til þess að ná upp vaxtarhraðanum, sérstaklega Limósín blendingarnir. Islensku kálfarnir halda nokkuð jöfnum meðalvaxtarhraða út ævi- skeiðið frá fæðingu til sláturdags. Það tekur hins vegar Angus blend- ingana um 30-50 daga og Limósín blendingana tæplega 200 daga að ná sama meðalvaxtarhraða og ís- lensku kálfarnir hafa. Áberandi meiri deyfð Limósín blendinganna fyrstu dagana eftir fæðingu, sem margir hafa orð á, kemur hér greini- lega fram. Jaðarvaxtarhraðinn gefur hins vegar nákvæmari mynd af þessu og sýnir að í rauninni eru það einungis fyrstu tvær til fjórar vik- urnar sem Islendingarnir vaxa hrað- ar, en eftir það keyra blendingamir fram úr. Um ársgamlir fara Limósín blendingamir fram úr Angus blend- ingunum og bilið milli þeirra og hinna stofnanna eykst stöðugt út æviskeiðið. Það tók Limósín blend- ingana hins vegar um 20 mánuði að jafnaði að ná sama þunga á fæti og Angus blendingarnir á því fóðri sem notað var í tilrauninni. Allt er þetta samkvæmt bókinni. Angus er fljótþroskaðra kyn en Limósín. Annað atriði sem vert er að benda á er sérstaða þessara vaxtarhraðalína. Lögun þeirra ræðst mjög af þeirri fóðuráætlun sem farið er eftir og eðlislægri vaxtargetu gripanna á mismunandi aldri og þroskastigi. Hér var æviskeiðinu skipt í þrjú fóðurskeið, þ.e. mjólkurskeið, vaxt- arskeið og eldisskeið. Hvert þessara skeiða eru ólík með tilliti til orku- styrks (FE/kg þe.) fóðursins sem gripimir höfðu aðgang að (1. tafla). Fóðurstyrkurinn er mun meiri á mjólkur- og eldisskeiðinu en á vaxtarskeiðinu þar sem vaxtargetan er mest. Það leiðir til þess að þungaaukningin er mun línulegri (2. mynd) en ef fóðurstyrkurinn hefði verið jafn allt æviskeiðið. Eldisskeiðið leiðir til þess að í stað- inn fyrir að jaðarvaxtarhraðinn fari minnkandi á síðasta hluta ævi- skeiðsins eykst hann enn frekar, sérstaklega hjá Limósín blending- unum (3. mynd) sem taka best við sér. Líkast til er það vegna áhrifa frá kjamfóðrinu og vegna þess að Limósín er seinþroskaðasta kynið og sem á ennþá talsverðan vöxt eft- ir inni. Át, vöxtur og fóðurnýting Á 4. mynd er sýnt heildarþurrefn- isát nauta eftir stofnum sem fall af aldri og á 5. mynd sem fall af þunga (blendingar saman). í línunum er kynjum slegið saman, þó að línur fara í raun að skiljast að við 400 kg þunga og kvígur dragast aftur úr í áti miðað við þunga. Á myndunum sést að við sama aldur dragast íslensku kálfamir aftur úr í áti mið- að við blendingana, enda þyngjast þeir minna (2. mynd). Aftur á móti, ef skoðað er át miðað við sama þunga, éta íslensku kálfamir heldur meira en blendingamir, þó að mun- urinn sé vart marktækur. Af þessu má strax draga þá ályktun að fóður- nýtingin er lakari hjá íslensku kálf- unum en blendingunum. Mjólkurskeið Kálfamir vom að jafnaði 88 daga á mjólkurskeiði þar sem uppistaða fóðursins (62%) var ferskmjólk. Enginn munur var á áti, þunga, vaxtarhraða eða fóðurnýtingu á milli stofna. Hins vegar átu naut- kálfamir meira hey og þyngdust tæplega 100 g meira á dag en kvígukálfarnir á þessu tímabili. Þetta meira heyát leiddi til þess að heildar orkustyrkur (FE/kg þe.) fóðursins sem nautkálfarnir inn- byrtu reyndist lægri en hjá kvígun- um. Vaxtarskeið Lengsta fóðurskeiðið er vaxtar- skeiðið, sem var mislangt eftir slát- urflokkum, eða 336, 460 eða 578 4. mynd. Heilarþurrefnisát á dag hjá nautum af íslensku kyni og blendingsstojhi semfall af aldri. 5. mynd. Heildarþurrefnisát á dag hjá íslenskum naUt- gripum og blendingum (Limósín og Angus saman í línu) sem fall aflífþung. Meðaltal kviga og nauta. 36 - FREYR 3/2000

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.