Freyr

Árgangur

Freyr - 01.04.2000, Blaðsíða 24

Freyr - 01.04.2000, Blaðsíða 24
ar er hlutfall gripa með júgurbólgu samkvæmt mjaltaathugun fremur hátt, þannig að þar er ekki fullt samræmi í niðurstöðum. Astæða er þá um leið til að minna á þær niður- stöður sem áður hafa komið fram um afleitar mjaltir hjá þessum kúm. Ekki koma fram nein naut sem eru jafngreinileg júgurbólgunaut og stundum hefur verið, en þau naut sem helst sýna ábendingar um vandamál í þessum eiginleikum eru Gáski 93004, Fífill 93008 og Reyr 93017. Förgun á kúm - frjósemi Mat á endingu kúnna er eiginleiki sem á allra síðustu árum hefur komist mjög í sviðsljósið hjá þeim sem mest fjalla um kynbætur naut- gripa. Ljóst er að þetta er verulega mikilvægur eiginleiki og hefur lfk- lega aukið vægi á komandi árum. Hér er vandamálið aftur á móti það að geta fengið mat á þennan eigin- leika hjá ungum kúm. Þar er feiki- lega mikil þróun í gangi þar sem við vonandi getum mjög bráðlega sótt erlenda þekkingu og nýtt okkur á líkan hátt og gert hefur verið um aðra eiginleika á síðustu árum. Meðan slíkt er ekki fyrir hendi og þessi þáttur því ekki með í kynbóta- einkunn nautanna er samt full ástæða til að huga að þessum upp- lýsingum. Hér eins og með suma aðra þætti er vandamálið verulegt sem tengist mismunandi aldri kúnna í einstökum dætrahópum. Þegar gluggað er nánar í upplýsing- ar um förgun á kúm undan þessum nautum kemur í ljós ótrúlega mikill munur á milli dætrahópa og líklega meiri en nokkur dæmi eru um áður. Förgun á kúm undan Gáska 93004 og Fífli 93008 er með ólíkindum mikill, en ef til vill skiljanleg í ljósi þeirra upplýsinga sem fram hafa komið um dætur þeirra. Einnig er alltof mikil förgun á kúm undan Akk 93012 og Rey 93017. Hjá dætrum Snarfara 93018, Ými 93022, Gára 93023 og Ö1 93032 er hins vegar góðu heilli mjög hófleg förgun enn sem er. Verður þá samt að vekja athygli á því að þessi naut eru um leið þau þeirra sem eiga að jafnaði yngstar dætur. Því geta þetta ef til vill að hluta verið áhrif þess. Frjósemi kúnna er mikilvægur þáttur í rekstri kúabúa. Hins vegar sýna flestar rannsóknir að arfgengi á þeim þáttum, sem notaðir eru til að meta frjósemu kúnna, er lág. í kynbótamati eru notaðar upplýsing- ar um bil á milli burða sem mæli- kvarði um frjósemi kúnna. Það leiðir til þess að þær upplýsingar, sem liggja að baki einkunnum naut- anna fyrir þennan eiginleika, eru ónákvæmari en um aðra eiginleika. Auk þess eru einnig skoðaðar nið- urstöður um árangur sæðinga hjá þessum kúm. Eins og áður hefur verið bent á er oft mjög lítið sam- ræmi á milli þessara mismunandi mælikvarða um frjósemi, sem stað- festir aðeins hve erfðaþáttur þess- ara eiginleika er hlutfallslega lítill en það birtist í ónákvæmum meðal- talstölum. Ekki verður greint að einstakir dætrahópar skeri sig áber- andi úr um þessa þætti. I sambandi við þær einkunnir um frjósemi, sem fram koma í töflu 2, er ástæða til að vekja athygli á því að hjá Suðrason- unum þrem, sem þama em með langlægstar einkunnir, gætir veru- lega ættemismats, en eins og fram hefur komið er þessi eiginleiki mjög lakur hjá dætrum Suðra. Afkvæmadómurinn Kynbótamat nautanna um ein- staka eiginleika er sýnt í töflu 2, Tafla 2. Einkunnir nauta 2000 - árgangur 1993______________________________________________ Kyn- Kyn- bóta- Mjólk Fita Prót. Fita Prót. bóta- Frjó- Frum- Skrokk- Júg- Spen- Mjalt- eink- Nafn Nr. kg kg % % mat semi ur Gæði ur ur ar ir Skap unn Gáski 93004 104 104 101 97 89 99 107 80 82 127 83 72 88 129 95 Foss 93006 116 111 105 89 63 99 94 102 120 117 107 120 125 118 104 Fífill 93008 92 92 89 100 93 90 109 78 77 99 82 62 72 89 86 Akkur 93012 123 120 122 91 93 118 101 112 100 115 88 71 85 99 108 Hnútur 93013 115 107 111 79 84 107 100 98 94 110 96 76 95 130 103 Hraukur 93015 108 105 102 86 77 99 99 91 101 101 100 87 95 79 97 Hnokki 93016 115 114 114 100 97 112 104 91 105 105 84 70 93 115 104 Reyr 93017 99 99 101 103 100 101 104 81 83 104 97 71 91 107 97 Snarfari 93018 106 110 110 106 112 110 88 88 85 100 111 115 97 118 106 Hringur 93019 88 83 85 79 88 85 116 115 63 111 102 98 74 100 91 Klerkur 93021 113 109 113 89 98 110 90 114 104 103 119 96 95 105 108 Ýmir 93022 132 121 123 75 66 114 71 101 104 78 83 73 107 117 106 Gári 93023 130 122 124 83 77 117 79 99 117 78 72 79 104 106 107 Torfi 93025 118 114 110 92 77 105 105 83 91 122 97 96 96 112 101 Blakkur 93026 126 122 128 91 99 123 69 106 102 83 85 97 106 83 112 Svartur 93027 117 110 117 89 97 114 90 102 84 81 92 108 94 96 107 Ölur 93032 102 102 102 99 93 100 103 105 115 88 93 96 111 99 íor 24 - FREYR 3/2000

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.