Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.04.1919, Page 50

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.04.1919, Page 50
30 TIMARIT hJÓÐRÆKNISFÉLAGS ISLENDINGA liafði flutt með Eiríki rauða til Grænlands (uni 986) og- sezt þar að. Bjarni sonur hans var þá í Noregi og er hann samsumars kom út til íslands og frétti, að faðir sinn liefði farið af landi burt, vildi liann endilega halda til Grænlands þegar til fundar við föður sinn. Lögðu þeir af Eyrum (Eyrarbakka) og hafði enginn skipsliafnarinnar áður komið í Grænlandshaf. Sigldu þeir í þrjá daga unz land hvarf; þá tók af byrinn og lagði á norrænur og þokur og vissu þeir ekki, hvert þeir fóru, og skifti það mörgum dægrum. Loks sáu þeir sól og máttu greina áttir; þá sigldu þeir eitt dægur unz þeir sáu land; þeir sigldu nærri því og sáu að það var ófjöllótt og skógi vaxið, með smá- um hæðum. Létu þeir landið á bakborða og létu skaut horfa á land. Eftir tveggja dægra siglingu sáii þeir annað land. Það var slétt og viði vaxið. Eigi vildi Bjarni að heldur fara 'hér á land. Settu þeir nú stafn frá landi og sigla í liaf útsynningsbyr í þrjú dægur og sáu þá þriðja landið. Það var eyland hátt og fjöllótt og var jök- ull á. Enn settu þeir stafn við því og héldu í baf liinn sama byr og sigldu nú í fjögur dægur unz þeir komust síðla dags til Herjólfs- nes á Grænlandi einmitt þar sem faðir Bjarna hafði sezt að. Og segir nú, að Bjarni færi til föður síns og liætti siglingum. Þó er það næst frá honum sagt, að liann hafi farið á fund Eiríks jarls, er liann réð Noregi (sem því hefir verið eftir Svoldarbardaga árið 1000, fimtán eða sextán árum eftir Grænlandsferð Bjarna). Sagði Bjarni þar frá landafundum sín- um, en hlaut ámæli af því að hafa ekki gengið þar á land eða grensl- ast frekar eftir landskostum. Fór hann svo sumarið eftir til Græn- lands og varð þar nú umræða um landaleitan. Leifur Eiríksson fór til Bjarna og keypti skip hans og réð til sín hálfanf jórða tug manna. Bað hann Eirík föður sinn að vera fyrir förinni;* Eiríkur var tregur og mæltist undan, en lét þó tilleið- ast um síðir. Á leið til skips féll hann af baki og lestist fótur lians; fór Eiríkur því hvergi. Þeir Leifur létu í haf og komu fyrst að því landi, er Bjarni liafði séð síð- ast. Fóru þeir á land og sáu þar eigi gras; jöklar miklir voru alt hið efra, en sem ein hella væri alt til jöklanna frá sjónum, og sýndist þeim það land vera g'æðalaust. Kallaði Leifur það Helluland. Sigla þeir nú í burtu og finna ann- að land og ganga þar upp. Það var slétt og skógi vaxið og sandar livítir víða þar sem þeir fóru og ósæbratt. Leifur nefndi það Mark- land og hélt í burtu sem skjótast. Nú sigla þeir þaðan í haf land- nyrðings veður og voru úti tvö dægur áður þeir sáu land. Komn þeir að ey einni, er lá norður af landinu, og gengu þar upp; fundu þeir dögg þar á grasinu og brugðu *) 1 þættinum stendur: “Leifr baö föður sinn Eirek at hann mundi enn fyrir vera furinni.” petta enn hyggur prófessor Finnur Jónsson (Aarl)öger 1915, hls. 208—- 209) sýni, að ritari þáttarins hafi haft fyrir sér Eiríks sögu og það bendi til ferðar Ei- ríks með porsteini er þar getur um. petta virðist mér mjög ólíklegt. Höfundurinn hefir auðsjáanlega I huga leiðangur Eiriks til Grænlands; og Leifur biður föður sinn nú eins og þá að vera fyrir förinni.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178

x

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga
https://timarit.is/publication/895

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.