Hugur - 01.06.2008, Page 30

Hugur - 01.06.2008, Page 30
28 Roger T. Ames nýmarxisma, afbyggingar, femínískrar heimspeki og svo framvegis. Gagnrýni þessara þölbreyttu hreyfinga beinist að sameiginlegu skotmarki sem Robert Sol- omon hefur kallað „forskilvitlega yfirvarpið" - hughyggju, raunhyggju, yfirsögu- legri skýringu, „goðsögninni um hið gefna“. Ennfremur hafa slík hnattvæðandi öfl innan bandarískrar fagheimspeki mynd- að eins konar uppstreymi sem knýr innfæddu hefðina upp á yfirborðið. A síðustu tíu eða fimmtán árum, einkum en ekki eingöngu í Bandaríkjunum, hefur átt sér stað endurvakning í klassískum pragmatisma sem birtist í sífelft fleiri fáguðum rannsóknum á þróun amerískrar heimspeki. Hnattvæðing sem sá möguleiki að öðlast innsýn í fjölmenningarleg sjónarmið gerir þá forgangskröfu að Ameríka öðlist innsýn í og hafi skilning á sínum eigin heimspekilega anda. Nýverið hefur einnig önnur breyting átt sér stað innan heimspekideilda í Am- eríku. Til skamms tíma hefur vestræn fagheimspeki getað leyft sér að hunsa as- ískar heimspekistefnur (svo ekki sé minnst á afrískar og íslamskar hefðir). Hún hefur einungis haft óljóst hugboð um inntak þessara hefða og því getað sært fram þá fullvissu sína að sh'kar hugmyndastefnur séu ekki eiginleg „heimspeki". Með þessu móti varð til í faginu hugtakið „samanburðarheimspeki", en þetta ein- kennilega greinarheiti á sér landfræðilega en ekki heimspekilega réttlætingu. Langt er nú liðið síðan heimspekideild Hawaii-háskóla tók að helga sig því verkefni að hnattvæða heimspekina. Hawaii er fjölmcnningarlcgt samfélag sem hefur tekið á móti innflytjendum frá öllum heimshornum og sér í lagi frá Asíu. Á þriðja áratugi síðustu aldar ákváðu þrír ungir menntamenn - Charles Moore, Greg Sinclair og Wing-tsit Chan - að námskrá heimspekinnar ætti að endur- spegla þessa staðreynd og tóku sér fyrir hendur að stuðla að framgangi veraldar- heimspeki. Það kann að vera heppileg tilviljun að deila sem nýverið hefur risið í Bandaríkj- unum um „grundvallarrit og fjölmenningu" hefur blásið þessu verkefni vind í seglin og verulega aukið framgang þess. Tilfinnanleg þörf fyrir „alþjóðavæðingu" grunnmenntunar í amerískum háskólum hefur haft þau óhjákvæmilegu áhrif að heimspekihefðir sem eru upprunnar utan Vesturlanda hafa greinilega gert áhlaup á námskrár heimspekinnar. Fyrir vikið hafa þeir hópar sem kenna sig við samanburðarheimspeki, þ.e. heimsþingið sem flakkar á milli staða hverju sinni, samanburðarklíkan í Honolulu og konfusíusarsinnarnir í Boston, alfir lagst á eina sveif og komið skriði á það sem til skamms tíma virtist einbert sísýfosarverk.s Fjölhyggjan sem nú er að koma fram í námskrám heimspekinnar sýnir hægt og bítandi hvernig öðlast má innsýn í fjölmenningarleg sjónarmið. Lítum þá næst til kínversku akademíunnar. Segja má að meðan samtímaheim- speki á Vesturlöndum hunsaði Kína hafi kínversk heimspeki verið gegndræp og lagt stund á beinan „samanburð" í þeim skilningi að taka inn hvaðeina sem veitti henni hvað mesta samkeppni. Þannig hefur kínverska akademían verið trú 5 Sigur fyrir hreyfingu samanburðarheimspekinnar er ennþá fjarlæg von, en ef og þegar hann verð- ur að veruleika þá verður hann blessunarlega pyrrískur. Með öðrum orðum felur árangur í þessari viðleitni í sér að þetta sérlega óeðlilega fagheiti, „samanburðarheimspeki", hverfi fyrir fullt og allt úr orðabók heimspekinnar.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180

x

Hugur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.