Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.1998, Blaðsíða 34
32 Félagsmál VFÍ/TFÍ
Menntamálanefnd VFÍ
Skipan nefndarinnar og fundir: Menntamálanefnd VFÍ var í upphafi starfsársins skipuð
eftirtöldum mönnum: Guðleifur M. Kristmundsson formaður, Steindór Guðmundsson ritari,
Guðjón S. Aðalsteinsson, Hilmar Sigurðsson, Jón Vilhjálmsson og Pétur K. Maack.
Þeir Guðleifur og Hilmar gáfu ekki kost á sér til áframhaldandi setu í nefndinni og á
fundi framkvæmdastjórnar VFÍ 13. maí 1997 var skipað í menntamálanefnd VFÍ sem hér
segir: Steindór Guðmundsson formaður, Gunnar Guðni Tómasson ritari, Eiríkur Bjarnason,
Guðjón S. Aðalsteinsson, Jón Vilhjálmsson og Pétur K. Maack.
Jón Vilhjálmsson er formaður ENSÍM-nefndar VFÍ, TFÍ og SV, sem hefur séð um endur-
menntunar- og símenntunarmál þessara félaga frá því að hún var stofnuð í desember 1995.
Jón situr auk þess í stjórn Endurmenntunarstofnunar HÍ sem fulltrúi VFÍ.
Um hlutverk og verkefni menntamálanefndar er fjallað í 20. grein félagslaga VFÍ.
Menntamálanefnd hélt alls átta reglulega fundi á starfsárinu og einn aukafund. Það voru
fundir nr. 174-182. Venjulegur fundartími er annar fimmtudagur hvers mánaðar. Auk þess
voru tveir fundir haldnir með menntunarnefnd TFÍ þar sem fjallað var um tæknimenntun á
háskólastigi. Þá sat menntamálanefnd einnig sameiginlegan fund stjórnar VFI og fulltrúa
Verkfræðideildar HI þar sem fjallað var um sama mál.
Umsóknir til félagsins: Umsóknir um inngöngu í félagið og leyfi til að kalla sig verkfræð-
ing voru á starfsárinu sem hér segir (innan sviga eru tölur frá síðustu árum, talið frá árinu í
fyrra):
Umsóknir um inngöngu í félagið: 21 (24 49 76 59)
Umsóknir um starfsheitið: 29 (24 49 69 36)
Umsóknir urn ungfélagaaðild: 0 ( 1 6 3 44)
Umsóknir alls 50 (49 104 148 139)
Þeir einstaklingar sem mælt var með að fái leyfi til að kalla sig verkfræðing og/eða fengu
samþykkta inngöngu í félagið voru alls 31 talsins. Þar af höfðu 13 lokið fjögurra ára verk-
fræðiprófi við Háskóla Islands, en fjórir þeirra höfðu auk þess tekið framhaldsprófgráðu
í verkfræði: þrír í Bandaríkjunum (2 M.Sc., I Ph.D.) og einn í Þýskalandi (Dipl.Ing.).
Hinir 18 einstaklingarnir höfðu ekki lokið þessu fjögurra ára verkfræðiprófi við HÍ og af
þeim voru 12 með norrænt verkfræðipróf (civ.ing.): sjö frá Danmörku (þar af sex frá Ála-
borg), þrír frá Svíþjóð og tveir frá Noregi. Loks voru þrír með Dipl.Ing. próf frá Þýska-
landi, en síðustu þrír voru með annars konar prófgráður, frá íslandi, Þýskalandi og
Skotlandi.
Heildarfjöldi umsókna var svipaður bæði tvö síðustu árin, en starfsár nefndarinnar nú
er reyndar einum mánuði styttra en árið áður. Athygli vekur að umsóknir um ungfélagaað-
ild eru nánast alveg úr sögunni, en fyrir nokkrum árum voru þær mjög margar, t.d. 44
starfsárið 1993/94 og 68 starfsárið 1992/93. Eftir það hafa nánast engar slíkar umsóknir
borist (0-6 á ári). Heildarfjöldi umsókna að frátöldum ungfélagaumsóknum hefur verið
óvenjulítill síðastliðin tvö ár miðað við árin þar á undan. Fjöldinn var um tvöfalt meiri
starfsárin 1995/96 og 1993/94 og þrefalt meiri 1994/95. Hvað veldur?