Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.1998, Blaðsíða 77
1.2.4 Skýrslur hagsmunafélaga TFÍ
Lífeyrissjóöur Tæknifræöingafélags íslands, LTFÍ
Afkoma LTFI var góð árið 1997.1 árslok voru heildareignir sjóðsins 3.063 m.kr., en í byrjun
ársins voru þær 2.594. Eignir jukust því urn 469 m.kr.
Iðgjöld á árinu 1997 námu alls 222 m.kr. sem er 19% hækkun frá fyrra ári. Lífeyris-
greiðslur á árinu 1997 voru samtals 9,2 m.kr. en voru 3,4 m.kr. árið 1996. Fimmtán sjóðfé-
lagar fengu greiddan lífeyri úr sjóðnum á árinu 1997.
Fjökli sjóðfélaga sem eiga inneign í LTFÍ var 1192 í árslok 1997 og hafði fjölgað um 85
á árinu. Virkir sjóðfélagar voru 770. Samkvæmt nýjum lögum um starfsemi lífeyrissjóða er
gert ráð l'yrir að lágmarksfjöldi virkra sjóðfélaga þurfi að vera um 800. LTFÍ mun væntan-
lega uppfylla það skilyrði á árinu 1998.
Raunávöxtun LTFI árið 1997 var 7,4%, sent er nokkur lækkun frá fyrra ári. Ávöxtun
sjóðsins var mjög góð á fyrri hluta ársins og má nefna að ávöxtun frá janúar lil ágúst var
10,5%. Síðustu mánuði ársins lækkuðu hins vegar nánast öll verðbréf í verði og því lækkaði
ávöxtun sjóðsins. Síðustu fimm ár hefur raunávöxtun LTFÍ verið að meðaltali 8,6% á ári.
Kostnaður við rekstur LTFÍ var 3,9 m.kr. eða 0,14% af eignum sjóðsins. Kostnaður
hækkaði nokkuð rnilli ára sem stafar fyrst og l'remst af kostnaði samfara hugsanlegrar sam-
einingar við Lífeyrissjóð arkitekta sem stefnt er að.
Þrátt fyrir nokkra kostnaðarhækkun eru kostnaðarhlutföll LTFÍ afar hagstæð. Til saman-
burðar rná nefna að meðalkostnaður allra lífeyrissjóða á landinu var 0,3% árið 1996.
Taflan hér á el'tir sýnir yfirlit um helstu kennitölur úr rekstri LTFÍ 1994-1997.
Kennitölur 1997 1996 1995 1994
Raunávöxtun,% 7,4 10,9 8,0 5,1
Heildareignir, rn.kr. 3.063 2.594 2.120 1.804
Heildarfjöldi sjóðfélaga 1192 1107 1052 1003
Virkir sjóðlélagar 768 717 630 615
Kostnaður í milljónum króna 3,9 2,8 2,9 17,7
Kostnaður sem % af eignum 0,14 0,12 0,15 0,67
Kostnaður sem % af iðgjöldum 1,8 1,5 2,0 8,2
Ný fjárfestingarstefna
Góð raunávöxtun LTFI á liðnum árum hefur m.a. stafað af mikilli hækkun á verði innlendra
hlutabréfa, en ekki er búist við jafnmiklum hækkunum á næstunni. Af þessum sökum ákvað
stjórn LTFl nýja fjárfestingarstefnu fyrir sjóðinn.