Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2004, Blaðsíða 28
1.2.3 Skýrslur KTFÍ og STFÍ
starfsárið 2003-2004
KTFÍ - Kjarafélag Tæknifræðingafélags fslands
Aðalfundur Kjarafélags Tæknifræðingafélags íslands var haldinn 28. febrúar 2003 að
Engjateigi 9. Gengið var til dagskrár samkvæmt lögum, flutt var skýrsla stjórnar og
nefnda. Fjölskyldu- og styrktarsjóður var kynntur og gerð var grein fyrir stöðu sjóðsins.
Tillaga var lögð fyrir fundinn um breytingu á reglum sjóðsins. Um var að ræða útfarar-
styrk upp á kr. 200.000 og var tillagan samþykkt. Tillaga var lögð fyrir aðalfund um að
hafa óbreytt félagsgjald og var hún samþykkt. Lögð var fram breytingatillaga að lögum
félagsins um að aðalfund skuli halda fyrir 1. apríl og var tillagan samþykkt.
Stjórnarkjör fór fram og formaður var kosinn Gústaf Adólf Hjaltason. Eftirtaldir voru
kjörnir í stjórn til tveggja ára: Jón ísaksson Guðmann, Bjarni Bentsson og Árni Þór Árna-
son. Varamenn til eins árs voru kjörnir Þór Sigurþórsson og Óli Jón Hertervig. Félagslegir
endurskoðendur voru kjörnir Sigurþór Guðmundsson og Guðjón H. Árnason, til vara
Brandur B. Hermannsson.
Fyrsti fundur stjórnar var haldinn mánudaginn 3. mars og skipti stjórnin þannig með sér
verkum: Formaður er Gústaf A. Hjaltason, varaformaður Bjarni Bentsson, gjaldkeri
Haraldur Sigursteinsson, ritari Jón Isaksson Guðmann og meðstjórnendur Árni Þór Árna-
son, Þór Sigurþórsson og Samúel Smári Hreggviðsson. Þeir Árni og Þór voru skipaðir
fulltrúar í stjórn TFI og Bjarni Bentsson fulltrúi í fulltrúaráð OBHM.
Ákveðið var að funda á mánudagskvöldum á hálfsmánaðar fresti. Alls voru nítján fundir
haldnir á árinu en frí var tekið yfir sumarið, frá 21. júní til 21 september.
Helstu verkefni stjórnar voru hefðbundin og verða þau helstu tíunduð hér á eftir.
Upplýsingamöppu skrifstofu um málefni KTFÍ var viðhaldið á árinu.
Kjarakönnun var gerð og gefin út á árinu 2002 og var um að ræða laun árið 2001 og
septemberlaun 2002. Kjarakönnun var einnig gerð á árinu 2003 og viðfangsefnið þar
var árið 2002 og septemberlaun 2003. Þessi könnun var gerð á netinu og tókst mjög
vel, svarhlutfall var um 50%. Þetta form kannana verður notað hér eftir.
Stofnaður var Orlofssjóður KTFÍ með sérkennitölu.
Fjölmörg mál komu til kasta stjórnar frá félagsmönnum og voru allmörg þeirra send
lögfræðingi félagsins til skoðunar og ályktunar.
Formaður og varaformaður sóttu norrænan launafund í Finnlandi í byrjun júni 2003.
Mörg málefni voru þar á dagskrá, sem dæmi má nefna: Norræn launakönnun, aukin
aðstoð við félagsmenn, þá sérstaklega sem snýr að kjaramálum og aðstoð við félaga
sem eru ekki á föstum kjarasamningum. Mikið var rætt um samruna félaganna á
Norðurlöndum og aukna samvinnu.
Orlofsmál voru ofarlega á baugi og óskaði stjórnin eftir því að allir meðlimir KTFÍ
yrðu meðlimir í OBHM. Unnið var að því allt árið að koma málefnum félagsmanna í
réttan farveg samkvæmt samningi við OBHM.
Unnið var að sameiningarmálum á árinu, en formaður var í nefnd um sameiningu
VFI, SV og TFI. Nefndin var sammála að mæla með sameiningu hið fyrsta.
2 6
Arbók V F í / T FI 2004