Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2004, Blaðsíða 96
V E G A M Á L
2
©
Bifreiðaeign
Samkvæmt tölum frá Skráningarstofunni hf. voru nýskráðar fólksbifreiðar 10.837 á árinu
2002 en 7.414 árið áður, sem samsvarar 47,2% fleiri skráningum. Á sama tíma voru
nýskráðar 108 hópferðabifreiðar en 75 árið áður, sem samsvarar 44,0% fleiri skráningum.
Nýskráðar vöru- og sendibifreiðar voru 1.674 á árinu 2003 en voru 1.003 árið áður og er
það 66,9% fjölgun skráninga.
Innflutningur og nýskráning bifreiða dróst saman á árinu 2002 og hefur ekki verið minni
síðan á árinu 1995. Fólksbifreiðaeign á hverja þúsund íbúa er nú komin í 561 samkvæmt
bráðabirgðatölum.
Bensíngjald
Bensínsala á árinu 2003 nam rúmlega 1.942 milljónum lítra og er salan 0,7% meiri en á
árinu 2002. Samkvæmt bráðabirgðatölum frá Fjársýslu ríkisins voru innheimtar tekjur af
bensínsölunni, þ.e. bensíngjaldið, 5.540 m.kr. árið 2003. Það er 106 m.kr. meira en tekju-
spá vegaáætlunar gerði ráð fyrir eða um 2% meiri tekjur.
Á síðustu fimm árum hefur bensínsala á ári verið mjög svipuð, þrátt fyrir aukningu í
bifreiðaeign landsmanna. Ástæðurnar má líklega rekja til þess að meðalakstur á bifreið
fari minnkandi með aukinni bifreiðaeign og að nýjar þifreiðir eru með sparneytnari vélar
en þær eldri. Aðalástæðan er samt líklega sú að díselbifreiðum, einkum díselfólks-
bifreiðum, hefur fjölgað hlutfallslega meira en bensínbifreiðum og hefur sú þróun verið
undanfarin ár. Bensínbifreiðir eru þó enn í miklum meirihluta á landinu og voru rúmlega
82% af bifreiðaeign í árslok 2003, en til samanburðar var þetta hlutfall 88,9% í árslok 1994.
Bensíngjald var ekki hækkað á árinu 2003 og hafði ekkert hækkað frá 1. júní 1999.
Bensíngjald hefur verið 28,60 kr./l. Þegar bensíngjald var hækkað 1. júní 1999 hefði
gjaldið mátt vera 31,16 kr./l ef fylgt hefði verið breytingum á byggingarvísitölu og hefði
mátt vera 38,01 k./l 1. janúar 2003. Gjaldið var hækkað 1. janúar 2004 í 30,89 kr./l.
í ársbyrjun 2003 kostaði lítrinn af 95 oktana bensíni 98,20 kr. frá dælu á bensínstöð með
fullri þjónustu. Verð á bensíni lækkaði síðan í febrúar 2003 í 100,80 kr. en lækkaði síðan
næstu mánuði og varð lægst í júní eða 95,30 kr./l. Verðið fór síðan hækkandi frá byrjun
júlímánaðar og kostaði lítrinn 1. september 100,10 kr. en lækkaði síðan aftur niður í 96,60
kr./l 1. október. Verðið hélst síðan þannig til 1. desember þegar verð fyrir lítrann hækkaði
í 99,90 kr. Verð hækkaði síðan í 100,90 kr./l 3. janúar 2004 sem jafngildir 2,8% hækkun frá
byrjun árs 2003.
Þungaskattur
Innheimtar tekjur af kílómetragjaldi námu alls 2.624 m.kr. á árinu 2003. Tekjuspá
vegaáætlunar hljóðaði upp á 2.549 m.kr. og var því innheimt 75 m.kr. meira en gert var
9 4
Arbók VFl/TFl 2004