Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2004, Blaðsíða 79
1999 2000 2001 2002
■ Vísitala neysluverðs
Húsnæði
Vísitala neysluverðs án húsnæðis
12 mánaða verðbreytingar.
Heimild: Hagstofa íslands.
Verðlag
Frá janúar 2003 til janúar 2004 hækkaði neysluverðsvísitalan um
2,4%. Þessi hækkun stafar mestmegnis af hækkun húsnæðisverðs
og hefur húsnæðisliður vísitölunnar hækkað um tæplega 8% sem
skýrir 1,4% eða rúmlega helming vísitöluhækkunarinnar. Verð-
hækkanir á opinberri þjónustu skýra 0,7% og hækkun á nýjum
bílum og varahlutum 0,3%. Breyting milli ársmeðaltala 2002 og
2003 nam 2,1%
Búskapur heimilanna
A síðasta ári dró nokkuð úr launahækkunum en kaupmáttur launa
hélt samt sem áður áfram að aukast þar sem verðbólga minnkaði.
Árið 2002 var áttunda árið í röð sem kaupmáttur launa jókst og
reiknað er með að sú þróun haldi áfram og að kaupmáttur launa
aukist um 3% í árið 2004 og um 2V4% á næsta ári. Kaupmáttur
ráðstöfunartekna heimilanna hefur einnig aukist ár frá ári þar til
árið 2003 en þá stóð hann í stað. Gert er ráð fyrir að hann hafi auk-
ist um V/í% árið 2003 og muni aukast um 2V4% árið 2004 og 4% 2005.
Kjarasamningar
Kjarasamningar á almenna vinnumarkaðnum sem ná til um 80%
vinnumarkaðarins gildtu flestir til síðari hluta ársins 2003 og fram
á árið 2004. Kjarasamningsbundnar hækkanir um áramót 2003 og
2004 voru á bilinu 3-3,4%, eða 0,4% hærri en upphaflega var samið
um, en það var ákveðið í lok árs 2001 til að bæta upp aukna
verðbólgu. Síðan hafa orðið mikil umskipti á sviði verðlagsmála og
við síðustu endurskoðun í febrúar 2003 mældist 12 mánaða
verðbólga vel innan þeirra marka sem samningarnir gerðu ráð
fyrir og kom því ekki til uppsagnar launaliðs samninganna.
Kjarasamningar við stéttarfélög ríkisstarfsmanna sem ná til rúm-
lega 10% vinnumarkaðarins giltu flestir út nóvember 2004.
Undantekningar eru þó samningar við Kennarsamband Islands
fyrir framhaldsskóla, Félag háskólamenntaðra starfsmanna
stjórnarráðsins og Kjarafélag Tæknifræðingafélags íslands sem rennu út í apríl 2004.
Ennfremur gilda nokkrir samningar fram á árið 2005. Allflestir samningar við aðildar-
félög ASI gilda hins vegar til næstu áramóta 2004 og 2005. Umsamdar launahækkanir um
áramót 2003 og 2004 voru á sama launabili og á almenna markaðnum, eða 3-3,4%.
2003
1999
2000
2001
2002
2003
■ Launavisitala
• Almennur markaður
• Opinberir starfsmenn og bankamenn
Kaupmáttur launa á hverj-
um ársfjórðungi.
Heimild: Hagstofa íslands.
Launaþróun
Launaþróun hefur að mestu leyti verið í samræmi við fyrri spár fjármálaráðuneytisins.
Launavísitala Hagstofunnar hækkaði um 5,4% frá desember 2001 til desember 2002 en
hækkunin milli ársmeðaltala 2001 og 2002 nam 7,1%. Áætlað er að laun hafi hækkað um
4,6% á árinu 2003.
Kaupmáttur launa
Kaupmáttur launa hefur haldið áfram að aukast en frá 2001 til 2002 jókst kaupmáttur að
meðaltali um 2,2% sem er svipuð aukning og árið á undan en þá voru bæði launa- og
verðlagshækkanir umtalsvert meiri. Kaupmáttur launa jókst um 3,7% árið 2003.
7 7
Tæknianná