Tónlistin - 01.11.1943, Side 59

Tónlistin - 01.11.1943, Side 59
TÓNLISTIN 57 sín taka á því sviöi, enda liggja eftir hann tugir ritverka. En í öllum verk- um Platons kemur þaö fram, aö fyrir honum vakir fyrst og fremst það með starfi sínu, að efla réttlæti, fegurð og hamingju á jörðunni, réttlæti i fari ein- staklingsins og réttlæti í skipun ríkisins. I bók sinni Ríkið dregur Platon upp mynd af því, hvernig hann hugsar sér fyrirmyndari iki, og skal hér í sam- bandi við framangreint lauslega vikið að nokkrum þeim kenningum hans, sem þarna koma fram. í fyrirmyndarríkinu sér hið opinbera um uppeldi allra barnaogalla þá fræðslu, sem látin er i té sem undirbúningur und- ir lífsstarf manna. Fram til tvitugsald- urs fá allir samskonar uppeldi, og er sú fræðsla og þjálfun, sem veitt er á þessum aldri, mestmegnis fólgin í lík- amsrækt og tónlistarfræðslu. Með íþrótt- um og leikfimi á að gera líkamann fagr- an og hraustan, og með tónmer.nt á að rækta sálina á tilsvarandi háli. Platon áleit, að þeim manni væri vart treyst- andi, sem ekki hefði tónræna samhljóm- an í sál sinni, því að skapgerð hans væri vanburða, ástríöur hans jafnvægislaus- ar, og skilningur hans á réttu og röngu væri ævinlega i molum. Platon finnur í tónlistinni grundvöll allrar samstillingar, hvort sem hún er heyranleg eða ekki. Slík samstilling varnar því, að heimurinn komist í upp- lausn. Hún er sál alheimsins, eins og jarð- og sólstjörnur eru líkami hans. Þess vegna er tónlistarfræðsla nauðsyn- legur þáttur í uppeldi hvers einasta manns, og fyrir tvítugsaldur þurfa allir drengir og stúlkur að hafa öðlazt góða undirstöðumenntun á þessu sviði. I hinu hugsaða lýðveldi Platons er það aðalviðfangsefni ríkisstjórnarinnar að tryggja heill og hamingju allrar þjóð- arinnar. Fólkið á að njóta góðrar heilsu, vera ánægt og eiga hæfilegar frístundir. Fegurð, réttlæti og ást á að rikja í hug- um manna og koma fram i orðum og athöfnum. Hinn góði maður og ham- ingjusami — en það að vera góður er að vera hamingjusamur — er hinn rétt- láti maður, hinn samstillti maður, sem hefir svo þroskaða skapgerð og vilja, að hann birtist alltaí sem réttur hijómur í tónverki þjóðfélagslegrar samvinnu. Þessi fyrirmyndarmaður i fyrirmyndar- ríki Platons helgar sig sköpun íegurðar, í lifandi afkvæmi, í góðum og göfugum dáðum, í listum og bókmenntum. Því að fegurð er lykillinn að ódauðleikanum. Með því að skapa fegurð yfirvinnum við dauðann. Slikar eru kenningar hins gríska heim- spekings fyrir 2300 árum síðan. Margí í þeim mun verða talið sígild speki og sannindi, og enginn mun efast um, að sá sem þessar kenningar flutti hafi verið gæddur framúrskarandi viti og þekk- ingu. En sé nú þetta athugað almennt, þykir mönnum þá liklegt, að Platon hafi með öllu missýnzt, er hann áleit, að tón- listarfræðsla væri einn nauðsynlegasti þáttur i uppeldi æskulýðsins? En sé á það fallizt, með tilliti til mannlegrar reynslu og þess, sem margir aðrir hinir vitrustu menn hafa sagt, að Platon hafi ekki missýnzt að verulegu leyti varð- andi nefnt atriði, sjá þá ekki allir hvi- líkur hörmulegur misskilningur það er að torvelda söng- og tónmennt svo sem gert er hér á íslandi, tneð þvi að leggja 50—80% verðtoll á hljóðfæri, sem keypt eru til landsins. íslendingar hafa lengi verið sundur- lyndir, og hefir það sjaldan kornið ber- ar fram en einmitt nú. Vantar eitthvað í uppeldi þjóðarinnar? Platon áleit, að almenn tónlistarþekk'ng væri einn af nauðsynlegustu þáttum í mennt þjóðar, og vildi hann með fræðslu og fyrir- greiðslu á þessu sviði alveg sérstaklega efla félagslegan þroska. I þessu efni er framkvæmdin hér á landi mjög á móti því, sem Platon vikli hafa, en hvort sem það er nú tilviljun eða ekki, þá fylgir það þó, að sundurþykkja íslendinga er mikil. Væri nú ekki rétt að gefa þessu nteiri gaum en verið hefir, og þar sem alltaf er verið að gera tilraunir nteð eitt og

x

Tónlistin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tónlistin
https://timarit.is/publication/922

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.