Fréttatíminn - 10.12.2010, Síða 45

Fréttatíminn - 10.12.2010, Síða 45
Spáð í Spilin Välj. Eða veldu eins og sagt er á íslensku. Nýtt samstarf SAS og Icelandair þýðir að núna áttu möguleika á að velja á milli miklu fleiri áfangastaða en áður. Við bjóðum nú uppá þann möguleika að bóka flug til Evrópu og lengra á frábæru verði á www.flysas.is flysas.is Ávallt með S AS Engin dulin g jöld - innritu n án endurg jalds - sætab ókun án end urgjalds Farangurshe imild án end urgjalds - Eu roBonus-pun ktar - 25% b arnaafsláttu r Bergen London París Frankfurt Peking Tokyo Bangkok Ósló Kaupmannahöfn Stokkhólmur Helsinki Gautaborg Stafangur Þrándheimur Berlín München Hamborg Varsjá Zürich Mílanó Vilníus Ferguson um Wenger „Þeir segja að hann sé gáfaður maður, ekki satt? Tali fimm tungumál! Ég er með fimmtán ára dreng frá Fílabeinsströndinni sem talar fimm tungumál.“ 1997 „Hann er byrjandi. Hann ætti að halda sig við skoðanir sínar á japanska fótboltanum.“ Apríl 1997 „Hegðun þeirra var sú versta sem ég hef séð í þessari íþrótt.“ Október 2004 „Wenger var að gagnrýna mína leikmenn í göngunum og kalla þá svindlara svo að ég sagði honum að láta þá vera og haga sér eins og maður. Hann hljóp að mér með útréttar hendur og spurði mig hvað ég ætlaði að gera í því. Að biðjast ekki afsökunar á hegðun sinna eigin leikmanna við annan knattspyrnustjóra er óhugsandi. Það er hneisa en ég geri ekki ráð fyrir að Wenger biðjist nokkurn tíma afsökunar. Hann er þannig manngerð.“ Janúar 2005 Wenger um Ferguson „Það er óeðlilegt að deildin sé lengd til þess að Manchester United geti notið hvíldar og unnið allt.“ Apríl 1997 „Allir halda að þeir eigi fallegstu konuna heima.“ Maí 2002 „Ferguson ætti að róa sig niður. Kannski hefði verið betra ef hann hefði stillt okkur upp við vegg og skotið okkur.“ Október 2004 „Ég skil ekki að hann skuli gera allt sem hann vill og þið farið allir á hnén fyrir framan hann.“ Janúar 2005 Lúðvík Arnarson um Arsenal Hvernig hefur Arsenal spilað í vetur? Arsenal-liðið hefur verið dálítið sveiflu - kennt í vetur, líkt og undanfarna vetur. Á góðum degi er liðið frábært og leikur fótbolta sem eingöngu Barcelona toppar. Vandinn er að hinir dagarn ir eru alltof margir þar sem liðið spil ar ekki eins vel og þá vantar oft þann eiginleika að ná fram sigrum á seigl- unni einni saman. Það er einhvern veginn ekkert plan B hjá Arsenal, sem er eitthvað sem bæði Chelsea og Man. Utd. hafa alltaf haft og er nauðsynlegt liði sem ætlar að vinna deildina. Á móti kemur að í Arsenal-liðinu eru margir einstaklingar sem geta unnið leiki upp á eigin spýtur líkt og Nasri gerði gegn Fulham um síðustu helgi. Styrkleiki og veikleiki Arsenal, bestu leik- menn og þeir sem hafa valdið mestum von- brigðum? Með tilkomu Fabianskis í markinu hefur markvarslan lagast enda var ekki úr háum söðli að detta þar. Varnar- leikur liðsins er hins vegar ekki nógu góður og svo virðist sem Wenger hafi ekki alltof mikinn áhuga á að laga þann hluta leiksins. Menn benda oft á varnar línuna og kenna henni um allt sem aflaga fer, en að mínu mati er það varnarleikur liðsins í heild sinni sem er vandamálið. Samir Nasri hefur hins vegar blómstrað í vetur og er af mörgum talinn einn besti leikmaður deildarinnar það sem af er. Eins hefur Chamakh komið mjög vel inn í liðið í haust. Hann leysir það sem mörgum hefur þótt vanta undanfarin misseri, sem er stæðilegur framherji sem getur haldið boltanum og tekur til sín varnarmenn, og ekki síst maður sem mætir inn í vítateiginn til að taka við fyrirgjöfum. United – styrkleiki og veikleiki? United-liðið er einhvern veginn ekki enn komið í gang, sem er spes þegar til þess er litið að liðið er taplaust á meðan Chelsea og Arsenal hafa tapað fjórum leikjum. Það hefur vantað eitthvert flæði í sóknarleik liðsins, sem er líka skrýtið, því þeir hafa skorað flest mörk. Varnarleikurinn er þeirra helsti styrkleiki, vegna þess að liðið verst sem heild. Samt hafa þeir fengið fleiri mörk á sig núna en oft áður á sama tíma. United-liðið er því fullt af þversögnum en eitt er víst: Þeir verða í baráttunni í allan vetur og að mínu mati núna líklegastir til að vinna deildina. Styrkleikinn felst í hefð og reynslu sem aldrei skal vanmeta. Veik- leikinn er að miðjan í liðinu er ekki eins sterk og oft áður. Hverjir vinna þennan leik? Ég er óvenjubjartsýnn fyrir þennan leik fyrir hönd minna manna. Hef ekki trú á markaleik og því þarf vörn Arsenal að halda, sem er nú ekki venjan. Nasri er sjóðheitur og ég spái því að hann geri gæfumuninn. Arsenal vinnur 1-0 eða 2-1. Ferguson vs. Wenger — Eftirminnilegustu ummælin Arsenal vinnur með einu fótbolti 45 Helgin 10.-12. desember 2010
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.