Læknablaðið : fylgirit - 01.12.1983, Blaðsíða 17
15
fjöldi 7. MYND.
Tími sem lidinn er frá því sjukl. vitjudu læknis fyrst.
byggður. Á þessari mynd eru ekki meðtaldir fá-
vitar og alcoholistar. Þeir fyrmefndu af augljósum
orsökum. Alcoholistamir eru ekki með vegna þess
að þá yrðu allir (74) sem vitjuðu áfengisvarnar-
stöðvarinnar, sem opnuð var 1. janúar 1953, að telj-
ast með þeim, sem veikst hafa á síðustu þrem mán-
uðunum áður en talningin fór fram. Slíkt er auð-
vitað fráleitt og verður því að sleppa þeim, og til að
skapa ekki óþarfa rugling er alcoholistunum sleppt
alveg á þessari mynd. Næstu þrjá mánuðina fyrir
talningardaginn vitjuðu 227 sjúklingar núverandi
læknis í fyrsta sinn, auk 7 alcoholista, sem leituðu
annarra en áfengisvarnarstöðvarinnar. Af sjúkl-
ingum, sem leituðu læknis á næstu þremur mán-
uðum þar á undan (þ.e. frá 15/9-15/12 1952), eru
enn 154 í meðferð talningardaginn og af þeim, sem
vitjuðu læknis á tímabilinu 15/3-15/9 1952, eru
enn 88 í meðferð og 160 þeirra, sem veiktust á
næsta ári þar á undan. Af þeim, sem veiktust fyrir
3-5 árum, eru enn hjá læknum 288. Samkvæmt
þessu er óhætt að gera ráð fyrir að 80-90% sjúkl-
inganna hverfi úr meðferð innan 2 ára og á næstu
þremur árum fækkar sjúklingunum enn um helm-
ing. Langflestum sjúklingunum batnar. Jafnvel
þótt dánartala þeirra sé eitthvað aukin, er það
ekki verulegt atriði í sambandi við hve fljótt
sjúklingum fækkar.
Aldur sjúklinganna, er þeir vitja læknis eða eru
Iagðir inn á spítala í fyrsta sinn, er hér talinn vera sá
aldur, sem þeir veikjast á. Þetta er auðvitað ekki
rétt í öllum tilfellum, en hins vegar það eina sem
byggjandi er á, sbr. það sem áður er sagt. Á 7.
fjöldi 8. MYND.