Kjarninn - 10.10.2013, Blaðsíða 14
03/03 kjarninn TónlisT
Sérstaða vínylplötunnar
Sala á vínylplötum er enn sem komið er
óverulegur hluti af heildartekjum vegna
tónlistar. Vöxtur hefur verið þó nokkur en
það eru ekki síst áhrif á ýmsa aðra geira
sem hafa farið vaxandi. Þannig hefur það
færst í vöxt víða erlendis að kaffihús séu á
sama stað og vínylplötuverslanir, sérstökum
verslunum fyrir ákveðna tegund tónlist-
ar sem gefin er út á vínyl hefur fjölgað, til
dæmis sér stökum verslunum fyrir djass,
sálartónlist og þungarokk. Sérstaða vínylsins
felst ekki síst í því hversu stór plötuumslögin
eru og oft mikið lagt í útlit þeirra. Á stöðum
þar sem vínylplötur eru í hávegum hafðar
eru húsakynnin oftar en ekki skreytt með
umslögunum, eins og sjá má meðal annars í
versluninni Lucky Records. „Við kaupum inn
víða að, meðal annars frá Hollandi og Banda-
ríkjunum. Framboðið er mikið og í sjálfu sér hægt að finna
áhugavert efni víða. Ísland er það lítill markaður að við verð-
um að geta boðið upp á flestar tegundir tónlistar,“ segir Geir.
Frekari möguleikar
Helsti vaxtarmöguleiki fyrir tekjur tónlistarinnar er í
gegnum nýjar leiðar sem eru sambærilegar við áskriftar-
leiðirnar, samkvæmt skýrslu IFPI. Er meðal annars vitnað
til þess að mörg minni hugbúnaðarfyrirtæki vinni að gerð
búnaðar sem beintengdur er við samfélagsmiðla og kaup á
tónlist í boði. Stóru samfélagsmiðlafyrirtækin, Facebook,
Twitter og Google, hafa fylgst náið með þessari þróun en ekki
komið fram með nýjungar í þessum efnum enn. Ef marka
má rannsókn IFPI eru töluverðar líkur á að svo verði innan
skamms tíma, með tilheyrandi áhrifum á tónlistargeirann.
Þungarokk!
Nýjar vínylplötur eru síður en
svo ókeypis enda mikið lagt
í útgáfurnar, falleg umslög
meðal annars. Hér er stór-
virkið Börn Loka með íslensku
þungarokkshljómsveitinni
Skálmöld uppstillt í verslun
Lucky Records. Hún kostar
ríflega sex þúsund krónur út
úr búð.
Mynd/MH