Ársrit Nemendasambands Laugarvatnsskóla - 01.05.1933, Blaðsíða 15
13
sem ekki var unnt að afla honum meira fylgis í sýsl-
unni sjálfri. Það bendir í þá átt, að trúin hafi verið
heldur veik á framkvæmd skólamálsins þar.
Á þessum sama fundi las sýslunefndarmaður Fljóts-
hlíðar upp svolátandi tillögu:
,,Sýslunefndin gengur út frá því sem sjálfsögðu, að
læknir Rangæinga verði búsettur á eigninni, búandi
eða búlaus eftir því sem kringumstæður eru til og um
semst milli hans og framkvæmdarnefndarinnar."
Tillagan var samþykkt með 8 atkv. gegn 3.
Einnig bar sami nefndarmaður upp tillögu, sem gekk
í þá átt, að ef ekkert yrði úr samkaupunum, ályktaði
sýslunefnd Rangárvallasýslu, að kaupa jörðina Stór-
ólfshvol til læknisbústaðar.
Kemur nú málið enn fyrir sýslunefnd Árnesinga á
aðalfundi hennar árið 1913. Leyfi ég mér að taka upp
úr fundargerðinni það, sem málinu sérstaklega kemur
við.
Fyrst var lesið upp bréf frá formanni framkvæmda-
nefndarinnar, Björgvin sýslumanni Vigfússyni um
samkaup Stórólfshvols fyrir skólasetur beggja sýslna.
Nú urðu talsverðar umræður um málið og afstöðu
sýslnanna til þess. Var síðan kosin 5 rnanna nefnd í
málið og hlutu þessir kosningu: Nefndarmenn Ölves-
hrepps (Ól. Magnússon), Laugardalshrepps (Böðvar
Magnússon), Iirunamannahrepps (Ágúst Helgason),
Hraungerðishrepps (Ól. Sæmundsson) og Stokkseyrar-
hi’epps (Jún. Pálsson).
Tók nú nefnd þessi til starfa og skilaði áliti sínu
þegar á sama fundi. Voru tillögur hennar á þessa leið:
1. Að Árnessýsla gerist ekki meðkaupandi Rangárvalla-
sýslu að jörðinni Stórólfshvoli í þeim tilgangi að þar
verði reistur lýðskóli. 2. Að beint sé til Alþingis beiðni
um það, að veita landstjórninni heimild til að lána
sýslufélagi Árnessýslu allt að kr. 50.000,00 úr lands-
sjóði til þess að stofna lýðskóla austan fjalls. Tillögur
L