Ársrit Nemendasambands Laugarvatnsskóla - 01.05.1933, Blaðsíða 51
49
sýslu á köldum stað, að minnsta kosti beittu þeir sér
lítið fyrir byg-gingu skólahúss á Árbæ, þegar búið var
að velja þann stað.
Ég tek það því fram aftur, að það var hin mesta
hamingja fyrir Suðurlandsskólann, að honum var
b j a r g a ð frá því að vera reistur á k ö 1 d u m
s t a ð. Reynslan ætti nú þegar að hafa kennt mönnum
þetta, því að hvað eru raforkuskilyrði á móti hvera-
orkunni, þegar til þess kemur að matreiða í hundruð
manna og hita upp stórhýsi.
Tillögurnar, sem samþykktar voru á sýslufundinum,
skýra sig sjálfar. Þessir fjórir menn, sem til staðar-
valsins voru kjörnir, ásamt Guðmundi Davíðssyni kenn-
ara, sem landstjórnin hafði skipað oddamann nefndar-
innar, ferðuðust um til þess að skoða nokkra skóla-
staði. Nefndin valdi um fjóra staði, tvo í hvorri sýslu.
Voru það Reykir á Skeiðum og Hveraheiði í Áraes-
sýslu (hvortveggja heitir staðir) ,og í Rangárvalla-
sýslu Stórólfshvoll og Árbær (hvortveggja kaldir stað-
ir). Fljótt munu þó tveir þessara stað hafa horfið úr
hjá nefndinni. Var þá eftir sinn staðurinn í hvorri
sýslu, Hveraheiði og Árbær. Ekki var Laugarvatn
nefnt, því síður að hinum ókunnugu mönnum í nefnd-
inni væri sýndur staðurinn. Var það þó ekki nema
sjálfsögð kurteisi, þar sem alltaf hafði verið mælt með
Laugarvatni sem glæsilegasta skólastaðnum. Má þó
ætla að einmitt þetta, þessi fyrirlitning, sem staðnum
var sýnd, hafi gert sitt til að tengja þá fáu menn og
hreppa enn fastar saman um hann.
Nefndin valdi Árbæ í Holtum sem kunnugt er. Odda-
maðurinn lagðist á sveif með fulltrúa Rangæinga. Taldi
hann Árbæ betri stað en Hveraheiði.
Ég hefi ekki fyrir hendi þetta nefndarálit og get því
ekki skýrt neitt frá því meira.
Sá dómur var nú fenginn, sem oft hafði verið lagt
4
L