Ársrit Nemendasambands Laugarvatnsskóla - 01.05.1933, Blaðsíða 96
Nemendasamband Laugarvatnsskólans.
A fundi, sem haldinn var í Skólafélagi Laugarvatns-
skólans föstudaginn 20. febr. 1931, vakti þáverandi
formaður félagsins, Gunnar Eggertsson, máls á því,
að nauðsyn bæri til, að nemendur stofnuðu með sér
framhaldsfélagsskap eða nemendasamband Laugar-
vatnsskóla.
Skýrði hann fyrir fundinum tilgang þess félagsskap-
ar, og á hvern hátt hann gæti orðið bæði til gagnlegrar
uppbyggingar fyrir skólann sem stofnun, og til ánægju
og þroska fyrir nemendur sjálfa. Og áður hann lyki
máli sínu lagði hann fyrir l'undinn svohljóðandi tillögu:
„Fundurinn ákveður að svo fljótt sem ástæður leyfa,
skuli stofnað Nemendasamband Laugarvatnsskóla, og
kýs nú þegar nefnd til þess að semja lög fyrir sam-
bandið og gjöra annan nauðsynlegan undirbúning".
Eftir þetta urðu nokkrar umræður um málið, og voru
menn mjög einhuga um nauðsyn þess og framkvæmd
alla og að umræðum loknmn var tillaga framsögumanns
borin undir atkvæði og samþykkt með öllum greiddum
atkvæðum.
Að því búnu var kosin nefnd sú, er tillagan ákveður
,og hlutu þessir kosningu: Guðmundur Ólafsson, kenn-
ari, Kristinn Stefánsson, kennari, Stefán Jónsson,
nemandi, Sigríður Árnadóttir, nemandi, og Gunnar
Eggertsson, nemandi.
28. marz var aftur haldinn fundur í skólafélaginu og
hafði þá nefnd sú, er kosin var til þess að undirbúa
sambandsstofnunina, lokið störfum sínum, og lagði þá