Ársrit Nemendasambands Laugarvatnsskóla - 01.05.1933, Blaðsíða 34
32
Flutt kr. 7000,00
— Biskupstungnahreppi................. — 6000,00
— Hrunamannahreppi.................... — 8500,00
— Gnúpverjahreppi..................... — 5500,00
— Skeiðahreppi........................ — 2500,00
— Villingaholtshreppi................. — 2000,00
— Hraungerðishreppi................... — 3000,00
— Gaulverjabæjarhreppi................ — 1500,00
— Stokkseyrarhreppi................... — 1000,00
— Eyrarbakkahreppi.................... — 1000,00
Frá U. M. S. „Skarphéðinn".............. — 3000,00
— Reykjavík........................... — 3000,00
Samtals kr. 44000,00
Auk þess voru staðbundin loforð þessi:
Með Reykjafossi......................... kr. 20000,00
— Laugarvatni......................... — 14000,00
— Hveraheiði.......................... — 17300,00
Þannig telur nefndin að fjáröfluninni sé komið 1926.
Ekki hafði þó nefndinni tekizt að innheimta neitt af
samskotafénu, en út frá þessum loforðum var hó
gengið.
Eftir skýrslum nefndarinnar telur hún að Hveraheiði
fylgi í loforðum og framlögum kr. 3300,00 meira en
Laugai-vatni, en það var álitið, að þetta næmi ekki
miklu á móti þeim kostum, sem Laugarvatn hafði
fram yfir.
Á þessum grundvelli var nú málið lagt fyrir sýslu-
fund Árnessýslu árið 1926. Fór nefndin þá eindregið
fram á, að bygging skólans yrði þegar hafin.
Allmikill ágreiningur var einnig í þetta sinn á sýslu-
fundinum um staðarvalið, þegar það var tekið fyrir á
fundinum, eins og síðar greinir. —
Á þessum fundi var samþykkt svolátandi tillaga í
einu hljóði: