Ársrit Nemendasambands Laugarvatnsskóla - 01.05.1933, Blaðsíða 58
56
Flutt kr. 26504,00
— Grafningshreppi (Kolb. Guðm.) . . — 500,00
— Hraungerðishreppi.................. — 419,00
— Eyrarbakka......................... — 900,00
— Reykjavík.......................... — 1000,00
Samtals kr. 29314,00
Af framlaginu úr Laugardalshreppi lagði hreppurinn
fram 10000 krónur og ungmennafélagið um 560 krón-
ur, aðrir hreppsbúar 1400 kr., Kolbeinn Guðmundsson
lagði fram allt úr Grafningshreppi, Gísli Jónsson á
Stóru-Reykjum um helming þess er kom úr Hraun-
gerðishreppi, en ungmennafélagið hitt.
Og af samskotunum úr Reykjavík lögðu 3 menn til
800 krónur, Jón Ólafsson framkvæmdarstjóri, Dr.
Hannes Þorsteinsson skjalavörður og Sigurður Jónsson
barnaskólast j óri.
Skólabygging sú, sem nú átti að reisa, sem var að-
eins 2 hús af 6 þeirra, er teikningin sýndi, var áætlað
að mundi kosta 80 þús. kr. Hér vantaði því allmikið
fé til þess, að hægt væri að byrja, þar sem krafizt
var af okkur . V-> upphæðarinnar.
Var þá ekki um annað að gjöra en reyna að fá lán
og það hafðizt eftir allmikla fyrirhöfn í Landsbankan-
um með rúmum 20 ábyrgðarmönnum.
Laugardals og Biskupstungnahreppum, sem báðir
þurftu að taka lán fyrir sínu framlagi, útvegaði Jónas
Jónsson ráðherra lán með góðum kjörum.
Skólabyggingin var svo hafin og samningur gjörður
um smíði og útlent efni fyrir kr. 42.900,00. Ekki var
samningsvinna á malarflutningi og vatns- og gufu-
leiðslulagningu svo og grefti fyrir húsinu.
Smiðir voru þeir Arinbjörn Þorkelsson og Sigurður
Bjargmundsson.
Húsin komust upp um sumarið og var borgað alls út