Ársrit Nemendasambands Laugarvatnsskóla - 01.05.1933, Blaðsíða 60
58
V.
Það er ekkert leyndarmál, að hefðu þessir 5 hreppar
ekki hrundið málinu af stað árið 1928 með því að bind-
ast samtökum um að legg-ja allt það fé, sem þeir höfðu
yfir að ráða, til skólabyggingar á Laugarvatni, væri
málið skammt á veg komið nú.
Og vafalaust væri sú bygging, er þá hófst, ekki
'engra komin en að 2 húsin væru reist og skólinn mundi
ekki rúrna meira en 40 nemendur, eins og byrjað var
á, ef hér hefði ekki komið tii starfa og stjórnar sá
maðurinn, sem á þessum árum var dóms- og mennta-
málaráðherra og fylgdi málinu af alhug með sínum al-
kunna stálvilja.
Honum ber því heiðurinn af því, hvernig skólinn er
úr garði gjörður nú, sem talinn er af þeim, sem vit
hafa á, að öllu leyti hinn fullkomnasti skóli hér á landi
að öllum þægindum og frágangi.
Ýmsa aðra góða styrktarmenn hefir skólinn átt frá
upphafi málsins, sem allt hafa viljað gjöra fyrir máliö
frá fyrstu.
Má til þess nefna Magnús Torfason sýslumann, Kol-
bein Guðmundsson, Magnús Jónsson í Klausturhólum
og prestana báða, sr. Guðmund Einarsson á Mosfelli og
sr. Eirík Þ. Stefánsson á Torfastöðum, og fleiri, þótt
ekki verði þeirra getið hér.
Manni verður nú að spyrja, hvort skólinn væri kom-
inn upp nú, ef ekki hefði verið gripið tækifærið sum-
arið 1928, er sú stjórn er bar góðan hug til héraðs-
skólanna, var sezt að völdum.
Ég efast um það, og ekki hefði það mátt dragast
lengi, hefði hann átt að vera fullgerður, er fjárkreppan
skall yfir, svo að ekki kæmi hún óþægilega við hann.
Sumir munu nú halda, að það hefði þá ekki gjört svo
mikið til.
Um það skal ekki deilt hér.