Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2007, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2007, Blaðsíða 4
föstudagur 21. september 20074 Fréttir DV Sandkorn n Framsóknarmaðurinn og borg- arfulltrúinn fyrrverandi Alfreð Þorsteinsson ákvað að gera sér ekki mikla rellu út af því að Guð- laugur Þór Þórðarson heilbrigð- isráðherra skyldi víkja honum frá því að stjórna byggingu nýs sjúkra- húss Land- spítalans. Í stað þess að ergja sig á málinu hélt hann til veiða. Í gær stóð Alfreð svo vaktina, ekki í framkvæmdanefnd um byggingu hátæknisjúkrahúss, heldur úti í Brúará í Árnessýslu. n Alfreð Þorsteinsson og Guð- laugur Þór Þórðarson elduðu gjarnan grátt silfur þegar báðir voru borgarfulltrúar. Þá fór sér- staklega fyrir brjóstið á Guðlaugi Línu.Nets-ævintýri Orkuveit- unnar og kostnaðar- söm bygging Orkuveitu- hússins sem fór langt fram úr kostnað- aráætlun- um og vakti því furðu að Alfreð, sem stjórnaði því verki, skyldi eiga að stýra byggingu nýs spítala. Það hefur Guðlaugur Þór nú komið í veg fyrir. n Leiðin sem Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra fór til að losna við Alfreð Þor- steinsson sem aðalmanninn í nýrri byggingu hátæknisjúkra- húss er gömul og þekkt. Frekar en að reka manninn er ráðist í skipu- lagsbreytingar. Þannig stendur nú engin framkvæmdanefnd að byggingu sjúkrahússins heldur færist hún annað. Vandinn leystur. Davíð Oddsson beitti þessari aðferð stund- um, eins og þegar hann lagði niður Þjóðhags- stofnun og losnaði þannig við gagnrýni hennar. n Stjórnarþingmaðurinn Árni Johnsen segir mótvægisaðgerðir ríkisstjórnarinnar vegna niður- skurðar á kvóta vera óboðlegan dónaskap og bendir á að fleiri þjáist en Vestfirðingar. Dulnefnis- bloggarinn Mengella snýr dæm- inu við og spyr hvers vegna verð- launa eigi kvótaeig- endur fyrir að kaupa köttinn í sekknum. Hann bendir á að útgerðarmenn tækju því vart þegjandi að fá á sig auknar álögur ef kvótinn yrði aukinn, bara af því að þeir hefðu efni á því. n Fáir þingmenn landsins eru jafn önnum kafnir og þeir sem sitja í fjárlaganefnd Alþingis nú þegar styttist í að Árni M. Mathie- sen fjármálaráðherra kynni fjár- lagafrumvarp sitt. Áður en það frumvarp lítur dagsins ljós eru sveit- arstjórnar- menn og aðr- ir þó á fullu að fá fram breytingar á frumvarpinu þrátt fyrir að það hafi ekki enn litið dagsljósið. Gunnar Svavarsson, formaður nefndarinnar, og aðrir nefndar- menn hafa því nóg að gera þessa dagana. PDF af baksíðu 2. maí 2007 DV11573200907 DV11572200907 Umfjöllun DV 2. maí Valgeir Reyndur lögmaður segir orðróm lengi hafa gengið meðal lögmanna um barnagirnd Róberts Árna Hreiðarssonar héraðsdómslögmanns. Fyrrverandi sundlaugarstarfs- maður segir Róbert hafa berað sig við stúlkur í sturtuklefa. Róbert getur misst lög- mannsréttindin verði hann sekur fundinn. Lengi grunaður um afbrigðiLegar hvatir Tjáir sig ekki róbert Árni Hreiðarsson neitaði að tjá sig við Jóhannes Kr. Kristjáns- son ritstjóra Kompáss. Lögmannsstofan róbert Árni hefur starfað á lögmannsstofu í Hafnarstræti 20. Nafn hans prýddi glugga skrifstofunnar þar til fyrir örfáum dögum. „Ég hef heyrt þann orðróm mjög lengi að hann sæki í unglingsstúlk- ur og það fer af honum það orð að hann sé perri. Hann hefur alls ekki gott orð á sér miðað við að vera lög- maður,“ segir mjög reynslumikill lögmaður um Róbert Árna Hreið- arsson héraðsdómslögmann. Orð- rómur um barnagirnd Róberts Árna hefur lengi verið kreiki, meðal ann- ars vegna ferða hans til Tælands og gruns um að hann hafi verið í fé- lagsskap vafasamra manna. Um tíma rak hann einnig nektarstaðinn Þórskaffi. Grunsemdir um kenndir Ró- berts Árna hafa ekki eingöngu ver- ið meðal lögmanna. Fyrrverandi starfsmaður í Laugardalslaug sagði DV frá því hvernig hann hefði seint á áttunda áratug síðustu aldar rekið Róbert Árna burt frá lauginni, eftir að hann hafði berað sig fyrir framan þrjár ungar stúlkur í kvennaklefan- um. Þegar starfsmenn heyrðu óp í stúlkunum var Róbert Árni að sögn kominn fram á gang og aðeins með handklæði vafið um sig miðjan. Hann neitaði allri sök. Róbert Árni mun hafa kynnt sig sem lögfræðing og þetta væru alvarlegar ásakanir á hendur honum. Þegar starfsmaður- inn sagðist ætla að kalla lögregluna til mun Róbert Árni hafa lofað að þetta gerðist ekki aftur. Ósáttur við ákæruna Ríkissaksóknari ákærði Róbert Árna fyrir kynferðisbrot gegn fjór- um stúlkum, líkt og DV sagði frá 2. maí. Róberti er gefið að sök að hafa tælt stúlkurnar til kynlífs við sig, meðal annars í gegnum MSN-sam- skiptaforritið. Honum er gefið að sök að hafa villt á sér heimildir og þóst vera sautján ára piltur og kall- aði sig Rikki. Yngsta fórnarlamb Róberts Árna er stúlka sem var fjórtán ára þegar meint brot voru framin. Hinar stúlk- urnar voru örlítið eldri. Róbert sagði í samtali við DV í maí síðastliðnum, skömmu eftir að ákæran gegn hon- um var þingfest fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur, að hann væri ósáttur við hana. „Mér finnst hún röng,“ sagði hann. Róbert Árni kvaðst hafa kynnst stúlkunum í einkalífi sínu og þvertók fyrir að um nokkra mis- notkun hefði verið að ræða. Róbert Árni kynntist stúlkunum í gegn- um netið, en hann fullyrðir að ein þeirra hafi haft samband við sig að fyrra bragði. Í viðtali við DV í fyrra viðurkenndi hann jafnframt að hafa haft kynmök við eina af stúlkunum, en neitaði því alfarið að hafa blekkt hana eða viðhaft nokkuð óeðlilegt athæfi í málinu. Keypti kynlífsþjónustu Róbert Árni er ákærður fyrir mörg brot gegn fjór- um stúlkum. Ákæran birtist í fréttaskýringaþættinum Kompási á Stöð 2 í vikunni þar sem fjallað var um mála- ferlin gegn Róberti Árna og þá staðreynd að hann hefur tekið að sér að verja ákærða kynferðisbrotamenn meðan hann sjálfur sætir ákæru. Í ákærunni er Róberti Árna meðal annars gefið að sök að hafa hitt fjórtán ára gömlu stúlkuna tví- vegis í kyrrstæðum bíl á höfuð- borgarsvæðinu, eins og fram kom í fréttaskýringaþættinum Kompási í vikunni. Í fyrra skiptið hafði hann við hana bæði óbeint og beint sam- ræði. Í það seinna fróaði hann sér yfir henni og lét hana að auki fróa sjálfri sér með gerfilim. Þá kemur fram í ákærunni gegn honum að í júlí árið 2005 sýndi hann sömu stúlku lostugt og ósiðlegt athæfi með því að senda henni ljósmyndir af nöktum karlmanni að fróa sér. Þá er hann sakaður um að hafa um fimmtán sinnum tælt aðra stúlku sem þá var fimmtán ára, meðal annars með því að greiða henni peninga gegn kynlífi. Í fyrstu skipti sem hann hitti hana hafði hún við hann munnmök, en síðar höfðu þau samræði. Í fyrsta skiptið sem hann hafði kynmök við stúlk- una afhenti hann henni og vinkonu hennar nokkur þúsund krónur fyrir. Eftir það greiddi hann henni allt að tuttugu þúsund krónur fyrir hvert skipti. Róbert er einnig sakaður um að hafa greitt stúlku fyrir að sýna brjóst sín og fróa sér í gegnum vef- myndavél á meðan þau áttu í sam- skiptum í gegnum spjallforrit. Sendi peninga og vildi kynlíf Sumar stúlknanna höfðu ánetj- ast eiturlyfjum og áttu við önnur vandamál að stríða. Róbert Árni er grunaður um að hafa notfært sér þessa veiku stöðu stúlknanna. Fyrsta málið kom upp í Keflavík fyr- ir tæpum tveimur árum og þegar rannsókn þess hófst kom mál hinna stúlknanna í ljós. Þegar Róbert Árni framdi þessi meintu brot, var ólöglegt að hafa kynferðismök við börn yngri en fjórtán ára. Lögunum var breytt á Alþingi nú í mars þegar fumvarp um kynferðisbrot sem dómsmála- ráðherra lagði fram var samþykkt. Það felur í sér að aldurinn hækk- ar upp í fimmtán ár. Í málinu gegn Róberti Árna verður þó miðað við fjórtán ára aldur, þar sem brotin voru framin áður en nýju lögin tóku gildi. „Þetta mál er mjög erfitt, fyrst og fremst vegna fjölskyldunnar, barn- anna og vegna starfsins,“ sagði Ró- bert Árni í samtali við DV 2. maí. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir fjöl- miðla hefur Róbert Árni ekki viljað tjá sig opinberlega um málið síðan þá. Eins og fram kom í Kompási, föluðust fréttamenn eftir viðtali við Róbert, en hann neitaði að tjá sig um ákæruna. Mikið af barnaklámi Róbert Árni er jafnframt ákærð- ur fyrir að hafa haft undir höndum umtalsvert magn barnakláms. Árið 2005 lagði lögregla hald á barna- klám úr vörslu hans. Á heimili hans fundust nokkrar myndbandsspól- ur sem sýndu börn á klámfeng- inn hátt. Þá fundust rúmlega tvö hundruð klámfengnar ljósmynd- ir af börnum, bæði á hörðum diski í tölvu á heimili hans og í tölvu á vinnustað hans. Það hefur vakið athygli vegfar- enda við Lækjartorg undanfarið að nafn hans hefur verið fjarlægt úr glugga á vinnustað hans. Ver aðra níðinga Róbert Árni hefur haldið áfram lögmannsstörfum síðan mál- ið kom upp. Eftir að hann sætti ákæru fyrir kynferðis- brot gegn stúlkunum hefur hann meðal annars tekið að sér að verja nokkra meinta kynferðisbrotamenn fyrir rétti. Þann 5. september síð- astliðinn var Róbert Árni til að mynda verjandi manns í lokuðu þinghaldi í Héraðs- dómi Vestfjarða. Maður- inn var ákærður fyrir kyn- ferðisbrot gegn börnum. Í starfi sínu sem verjandi meintra barna- níðinga er Róberti Árna heimilt að vera viðstaddur skýrslutöku af börnum. Í annarri grein í siðareglum Lögmannafélags Íslands um góða lögmannshætti almennt segir að lögmaður skuli gæta heiðurs lög- mannastéttarinnar, jafnt í lög- mannsstörfum sínum sem og öðr- um athöfnum. Ingimar Ingason, framkvæmdastjóri Lögmannafé- lagsins, segir að ekki hafi verið tekin afstaða til málsins ennþá. Málið er hins vegar á dagskrá félagsins. „Við munum ræða málið á stjórnarfundi þann 27. september.“ Það er degi eftir að dómur fellur í máli Róberts Árna. Viðurlög við alvarlegum brot- um á siðareglum Lögmannafélags- ins geta varðað sviptingu lögmanns- réttinda. „Ef lögmenn fá dóm sem nær því að þeir hafa ekki óflekkað mannorð á eftir hafa þeir ekki tök á því að fá réttindin aftur fyrr en þeir hafa hlotið uppreisn æru.“ Dómur í máli Róberts Árna verður kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur miðvikudaginn 26. september. VaLgeiR ÖRn RagnaRSSon blaðamaður skrifar: valgeir@dv.is Róbert Árni Hreiðarsson héraðs- dómslögmaður hefur verið ákærður af ríkissaksóknara fyrir kynferðisbrot gegn fjórum stúlkum. Sú yngsta er fjórtán ára og hinar þrjár litlu eldri. „Ég er ósáttur við ákæruna, finnst hún vera röng,“ segir Róbert Árni en ákæran var þingfest fyrir stuttu. Hann segist ekki hafa tekið afstöðu til ákærunnar fyrir dómi og eiga eft- ir að fá sér lögmann til þess að verja sig. Aðspurður segist hann ekki ætla að verja sig sjálfur. Róbert segir stúlk- urnar ekki hafa verið skjólstæðinga sína heldur hafi hann kynnst þeim í sínu einkalífi. Hann segist yfirleitt hafa kynnst þeim í gengum internet- ið en þó ekki í öllum tilfellunum og segir hann allavega eina þeirra hafa haft samband við sig að fyrra bragði. „Þetta mál er mjög erfitt, fyrst og fremst vegna fjölskyldunnar, barn- anna og vegna starfsins,“ segir Ró- bert Árni. Heimildir DV herma að Róbert Árni hafi notfært sér bága stöðu stúlknanna en einhverjar þeirra voru fastar í viðjum fíkniefna og er hann grunaður um að hafa nýtt sér þörf þeirra fyrir peninga. Ýmist er hann grunaður um að hafa greitt þeim fyr- ir einhvers konar kynlífsþjónustu eða fyrir að hafa sent þeim peninga og síðan viljað kynlífsgreiða í staðinn. Fyrsta málið kom upp í Keflavík fyr- ir um einu og hálfu ári og vatt rann- sókn þess máls upp á sig og komu þrjú önnur mál upp á yfirborðið. Heimildir segja að Róbert hafi verið í sambandi við stúlku á Suðurnesjum í gegnum samskiptaforritið MSN og hafi í framhaldinu ekið til Keflavík- ur og hitt hana. Kæra barst einhverju síðar. Þegar meint brot voru framin var ólöglegt að hafa samræði eða önnur kynferðismök við börn yngri en fjór- tán ára. Lögunum var þó breytt á Al- þingi nú í mars þegar samþykkt var frumvarp dómsmálaráðherra um kynferðisbrot og var aldurinn hækk- aður upp í fimmtán ár. Í máli Róberts verður þó miðað við fjórtán ára ald- urinn þar sem brotin voru framin fyrir lagabreytingarnar. Aðspurður sagðist Róbert ekki muna hvaða lagagreinar almennra hegningarlaga hann er ákærður fyr- ir að brjóta, né heldur hversu margar þær eru. „Má ég fara að mála núna,“ spyr Daníel Ólafur Spano, þriggja ára íbúi í Grjótaþorpinu í miðbæ Reykjavíkur. Daníel hefur tekið ást- fóstri við þá iðju að mála yfir veggja- krot í miðborginni. Faðir hans, Stefán Cramer, segir Daníel fylgjast grannt með því hvort búið sé að krota á veggina í nágrenni við heimili þeirra. „Hann hleypur oft fyrir hornið á morgnana, áður en lagt er af stað í leikskólann, og vill sjá hvort búið sé að krassa á vegg- inn,“ segir Stefán. „Ef það er búið að krota á vegginn heimtar hann að fá að mála yfir það.“ Stefán telur að Daníel ungi hafa heyrt sig blóta yfir veggjakrotinu í miðbænum og hreinlega ákveðið ð taka málin í sínar hendur. „En það er náttúrulega algjör skandall hvernig miðbærinn er orðinn,“ seg- ir Stefán. Daníel Ólafur lætur málið sig miklu varða og hefur nokkrar áhyggjur af því að þeir sem krota á veggina séu kannski hættulegir náungar. „Hann spurði nágranna okkar um daginn hvort hann hafi séð strákana sem krota á veggina, og hvort hann væri ekki örugglega stærri og sterkari en þeir,“ segir Stef- án. „Nágranninn sagðist nú ekki vera alveg viss, en sennilega réði hann nú við veggjakrotarana.“ Á síðasta ári varði Reykjavík- urborg um 30 milljónum króna til þess að laga til eftir veggjakrotar . Á þessu ári er reiknað með því að bæta um betur og verja 100 milljón- um til verksins. Borgin málar þó að- eins yfir eigin eignir, húseigendur verða sjálfir að standa straum af því tjóni sem þeir verða fyrir, enda er ekki hægt að tryggja sig gegn krot- inu. Í lögum telst veggjakrot vera eignaspjöll og því lögbrot. Sam- kvæmt almennum hegningar- lögum eru viðurlögin við því að skemma eigur annarra með þess- um hætti, sektir eða fangelsi allt að tveimur árum. Í síðasta mánuði var svissneskur maður dæmdur í tíu ára fangelsi í Tælandi fyrir veggja- krot. Það var þó á þeim forsendum að með kroti sínu hafi maðurinn móðgað Tælandskonung, en það telst alvarlegt brot. sigtryggur@dv.is MIÐVIKUDAGUR 2. MAÍ 2007 Dagbl aðið vísir stofnað 1910 Fréttaskot 5 1 2 7 0 7 0 DV borgar 2.500 krónur fyrir fréttaskot sem leiðir til frétta. Fyrir besta fréttaskot vikunnar greiðast 5.0 00 krónur. Að auki eru greiddar 10.000 krónur fyrir be sta fréttaskot hvers mánaðar. Þannig er hægt að fá 15.000 krónur fyrir be sta fréttaskot mánaðarins. Sómi er af Daníel Ólafi... LÖGMAÐUR ÁKÆRÐUR FYRIR KYNFERÐISBROT Daníel Ólafur spano Þriggja ára þolir ekki veggjakrot Þrettán ára þjófar Í gærkvöldi var brot- ist inn í á alda- geymslu Hita- veitu Suðurnesja við Bakkastíg. Lö- greglan á Suður- nesjum fór þegar á staðinn og stóð þar þrjá 13 ára pilta að verki við það að reyna að brjótast inn í geymsluna. Drengirnir voru færðir á lögreglu- stöðina og sóttir þangað af for- eldrum. Klipptu tuttugu númer Lögreglan á höfuðborgarsvæð- in hélt áfram að klippa númer af óskoðuðum og ótryggðum bif- reiðum í nótt. Að þessu sinni var klippt af tuttugu bílum þar sem eigendur þeirra höfðu ekki sinn skyldu sinni þrátt fyrir ítrekanir af hálfu tryggingafélaga og lögreglu. Listinn yfir óskoðaðar og ótryggð- ar bifreiðar er langur. Lögreglan hvetur ökumenn til að taka sig á í þessum efnum því það getur verið kostnaðarsamt ef númer er klippt af. Bush beitir neitunarvaldi Vilji meirihluta bandarískra þing- manna um setja ströng skilyrði fyrir auknum fjárveitingum til hernaðar- starfa í Írak verð- ur ekki ofan á. George W. Bush, forseti beitti í gær neitunarvaldi sínu gegn þeirri ákvörðun þings- ins að fjárveiting- in yrði háð því að föst dagsetning yrði sett á brotthvarf hersins frá Írak. Forsetinn heftur ávallt haldið því fram að það yrðu afdrífarík mistök ef ákveðin dagsetning yrði fest í lög. Þetta var í annað skiptið síðan Bush tók við forsetaembættinu að hann beitti neitunarvaldinu. ræður bót á veggjakroti Daníel Ólafur Spa no, þriggja ára, lætur ekki sitt eftir liggja o g heimtar að fá að fara út og mála yfir veggjakrot í Grjótaþorpinu í miðborg Rey kjavíkur. Daníel hefur tekið sérstöku ástfó stri við þrjá veggi í miðborginni og gerir s ér far um það að athuga á morgnana hvort búið sé að krota á þá. Óttuðust ekki aðstæður Tveir stangveiðibátar urðu vélar- vana á Skutulsfirði er þeir áttu skamma leið eftir í höfnina við Suð- ureyri. Alls voru á siglingu saman 8 nýsmíðaðir stangveiðibátar frá Akureyri til Suðureyri. Fyrirtækið Hvíldarklettur ehf. rekur þar um- svifamikla ferðaþjónustu og festi fyrirtækið kaup í 22 bátum nýver- ið. Bátarnir 8 voru þeir fyrstu se afhentir voru. Einn þeirra varð vél- arvana og kom annar bátur til að- stoðar með því að taka hann í tog. Vildi ekki betur til en svo að hinn báturinn varð líka vélarvana. Björg- unarskipið Gunnar Friðriksson frá Ísafirði var sent á vettvang og sigldi með bátana í togi inn til hafnar á Ísafirði. Bátarnir eru sjö og hálfur metri á lengd og tveir og hálfur á breidd og hafa 160 hestafla vélar. Einn maður var í hvorum bát og hvorugan sakaði við atvikið. Lárus Jóhannsson, vakstjóri Landhelgisgæslunnar, segir tilkynn- ingu hafa borist til Vakstöðvar sigl- inga rétt fyrir miðnætti í gær. Hann segir að veður hafi verið gott til björgunar. „Það var ekki mikil hætta á ferðum og björgunin gekk vel fyrir sig. Það er alltaf gott þegar vel tekst til og ekki verða slys á fólki,“ segir Lárus. Elías Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri Hvíldarkletts, er ánægður með hversu vel björgun- in gekk. „Þetta var ekkert til að hafa áhyggjur af. Um var að ræða olíu- stíflu í báðum bátunum. Það var stutt í land og björgunarskipið dró þá síðustu kílómetrana. Það er mildi að ekki fór verr. Ég held að menn- irnir hafi ekki óttast aðstæður,“ segir Elías. Héraðsdómur reykjavíkur Málið gegn Róberti Árna var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir stuttu. Vill flýta kosningum Það er útlit fyrir að Tyrkir muni ganga að kjörborðum í sumar. Recep Erdogan, forsætisráðherra landsins hy gst leggja það til við þingið í dag að kosning- unum verði flýtt um nokkra mán- uði. Hann mun einnig gera það að tillögu sinni að þjóðin kjósi framvegis um forseta landsins en ekki þingmenn. Ástæðan er ákvörðun stjórnarskrár- réttar landsins um að fella úr gildi kjör þingsins á Abdullah Gul í for- setaembættið. „Þetta mál er mjög erfitt, fyrst og fremst vegna fjölskyldunnar, barnanna og vegna starfsins.“ HjörDís rut sigurjÓnsDÓttir blaðamaður skrifar: hrs@dv.is 2. Maí.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.