Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2007, Blaðsíða 46

Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2007, Blaðsíða 46
föstudagur 21. september 200746 Helgarblað DV Reyniberjasaft reyniber setja svip sinn á haustmán- uðina og þykja einkar falleg sem borðskraut. en reyniber eru líka holl og einfalt að búa til mauk, hlaup eða saft úr þeim. ReynibeRjasaft: reyniberin eru lögð í vatn í þrjá sólarhringa til að ná úr þeim römmum keimnum. sett í pott með vatni, þannig að rétt fljóti yfir berin. soðin í fimm mínútur eftir að suða kemur upp.Hellt í þunnan línpoka á grind og saftin látin renna hægt úr berjunum í pott. Hálft kíló af sykri (eða örlítið meira) er sett á móti hverjum lítra af saft. Látið sjóða í nokkrar mínútur. froðan veidd vel ofan af áður en sett er á flöskur. U m s j ó n : Þ ó r u n n S t e f á n s d ó t t i r . N e t f a n g t h o r u n n @ d v . i s &Matur vín Hollusta hvítkáls Hvítkál er fullt af andoxunarefnum sem meðal annars verja okkur fyrir krabbameini. Þegar hvítkálshöfuð er hins vegar saxað, hverfur andoxunarefnið úr því á aðeins sex klukkustundum... Pálmi Jónsson aðstoðaryfirkokkur veitingastaðarins Vox Meistarinn Kjúklingaréttur á methraða einfaldaRi kjúklingaRétt eR vaRt hægt að hugsa séR: l 4 kjúklingabringur (án húðar) l 1 dós strengjabaunir l 1 ½ bolli ítölsk salatsósa (dressing) setjið hluta salatsósunnar í botn á eldföstu móti. Leggið bringurnar ofan á og þekið þær með afgangi sósunnar. Hellið vökvanum af baununum og setjið þær á bringurnar. Lok eða álpappír sett yfir. setjið í 170 gráðu heitan ofn í hálftíma eða þar til bringurnar eru mjúkar og steiktar í gegn. Heilsusamleg haustsúpa l 2/3 bolli gulrætur í strimlum l ½ bolli smátt skorinn laukur l 2 maukuð hvítlauksrif l 400 ml kjötkraftssoð (nauta,- kjúklinga- eða grænmetissoð) l 1 dós niðursoðnir tómatar l 1 bolli smátt saxað hvítkál l ½ bolli grænar baunir l ½ tsk. þurrkað basilíkum l ¼ tsk. þurrkað óreganó l ¼ tsk. salt l pipar til bragðbætis l ½ bolli smátt skorinn kúrbítur (zucchini) Hitið gulrætur, lauk og hvítlauk í olíu á pönnu við lágan hita þar til mjúkt. (tekur um fimm mínútur.) bætið við kjötkraftssoði, tómötum úr dós ásamt safa, hvítkáli, baunum og kryddi. Lækkið hitann og látið malla á vægum hita í fimmtán mínútur. Hrærið kúrbít út í og sjóðið í 4 mínútur til viðbótar. gott er líka að setja sveppi, aspas eða sellerí í súpuna. P álmi Jónsson lærði kokkinn í Danmörku þar sem hann hefur búið mestalla sína ævi. Pálmi hefur unnið á fjölda staða í Danmörku, meðal annars Restaurant Saison i Hellerup í Kaupmannahöfn. Einnig hefur hann komið við í Finnlandi og var þá á Restaurant Nokka i Helsinki. Frá því hann flutti til Íslands í apríl 2006 hefur Pálmi unnið sem aðstoð- aryfirkokkur veitingastaðarins Vox á Nordica Hót- eli. „Okkur finnst gaman á VOX að nota gamlar hefðir og gleymt hráefni frá Norðurlöndunum og reynum við eftir bestu getu að setja það inn á a la carte-seðilinn á VOX. Þess vegna völdum við í þetta skiptið að nota reykta ýsu og skessujurt, við erum einnig með frábæra íslenska kjötsúpu upp á nýjan máta,“ segir Pálmi sem býður lesendum upp á reykta ýsu frá Grími Gísla í Vestmannaeyjum. reykt ýsa frá grími gísLa með nýjum ísLenskum smæLkikartöfLum og skessujurt. fyrir fjóra: l 600–800 g af reyktum ýsuflökum frá grími gísla i Vestmannaeyjum, þau eru best á bragðið og passlega sölt, það er líka hægt að nota aðrar týpur. l íslenskar premierkartöflur l smjör l 1 búnt af skessujurt l salt og pipar l 2 dl g -mjólk l Lárviðarlauf Útvatnið fyrst ýsuna í köldu vatni í um það bil klukkutíma (fer eftir stærð og hversu mikið flökin eru söltuð). Sjóðið ýsuna í vatni með lárviðarlauf- um og piparkornum í um það bil 10 mínútur. Takið svo hluta af soðinu frá fyrir sósuna. Sjóðið kartöflurnar í vatni með salti og skessujurt- arstilkum (notum blöðin þegar við smökkum þetta allt saman til). Ýsa og kartöflur eru svo einfaldlega stappaðar saman með gaffli og auðvitað það góða íslenska smjör, smakkað til með söxuðum skessujurtarblöð- um og svörtum pipar. sósan: Notast er við 4 dl af ýsusoði, hálfan fiskisoðstening sem er soðið saman, út í það er svo bætt 2 dl af G- mjólk og 50 g af köldu smjöri. Þetta er síðan þeytt upp með sprullara eða blandara. Í kjölfarið mun sósan freyða og verða við það létt og kremuð. Að lokum er gott að smakka réttinn til með svörtum pipar. Reykt ýsa fRá GRími Gísla styðjast við gamlar hefðir „okkur finnst gaman að nota gamlar hefðir og gleymt hráefni frá norðurlöndunum og reynum við eftir bestu getu að setja það inn á a la carte-seðilinn á VoX.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.