Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2007, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2007, Blaðsíða 17
70 ára ártíð Ravels Franski meistarinn Désiré N´Kaoua minnist sjötugustu ártíðar Maurice Ravels með heildarflutningi píanóverka hans í Salnum á morgun kl. 17 og á sama tíma á sunnudag. N’Kaoua var nemandi Marguerite Long sem hafði lært hjá Ravel og er hann einn af mjög fáum sérfræðingum í tónlist Ravels. Jónas Ingimundarson flytur stutt formálsorð á hvoru tveggja tónleikunum um Ravel og verkin sem eru á efnisskránni. Miðaverð er 2.000 kr. en 1.600 kr. fyrir 67 ára og eldri, námsmenn og öryrkja. DV Menning föstudagur 21. september 2007 17 Hrund fékk Barnabóka- verðlaunin Hrund Þórsdóttur hlýtur Íslensku barnabókaverðlaunin árið 2007 fyrir bók sína Loforðið en greint var frá þessu í fyrradag. Að mati dómnefndar lýsir sagan á einstakan hátt þeim tilfinningum sem bærast með ellefu ára stelpu sem verður fyrir því að missa bestu vinkonu sína. Hrund er 26 ára, menntuð í stjórnmálafræði og blaðamennsku og starfar hjá útgáfufélaginu Birtíngi. Loforðið er fyrsta bók hennar. Verðlaunin nema 400 þúsund krónum, auk hefðbundinna ritlauna. Þrettán handrit bárust í keppnina. Vatnið og eig- inleikar þess „Vatnið og hin duldu skila- boð þess“ er heitið á bók sem komin er út hjá Sölku. Höfund- urinn, japanski vísindamaður- inn Masaru Emoto, komst að því eftir áralangar rannsóknir að vatn skynjar ekki eingöngu og bregst við nátt- úruöflun- um heldur líka við því sem mannfólk- ið segir og gerir. Em- oto byggir tilraun- ir sínar á myndum sem hann tekur af kristöllum í frosnu vatni við ólíkar aðstæður. Bók Emotos hefur verið þýdd um allan heim og kenningar hans hafa vakið gríðarlega athygli og hreyfa sannarlega við þeim sem bera umhverfismál og andlega vel- ferð fyrir brjósti. Villi naglbítur með mál- verkasýningu Á morgun opnar Vilhelm Anton Jónsson, einnig þekkt- ur sem Villi naglbítur, fjórðu einkasýningu sína. Sýningin verður í Deiglunni á Akureyri, en Vilhelm hefur ekki verið með sýningar í tvö ár. Vilhelm málar kraftmikil verk, hrá og lif- andi og þau fjalla um snertingu og losta. Ekkert verkanna hefur verið sýnt áður. Sýningin stend- ur frá kl. 14 á morgun fram til 7. október. Lokabókin um Rebus Sala á bókinni Exit Music eftir Ian Rankin hefst í fyrramálið í verslunum Eymundsson og í Bókabúð Máls og menningar. Exit Music er síðasta bókin um ævintýri Johns Rebus í undirheimum Edinborgar en að þessu sinni finnst rússneskt skáld myrt og fara þá ýmsir draugar fortíðar á stjá. Aðdáendur Rebusar hafa væntanlega beðið þessarar lokabókar með viðhlítandi eftirvæntingu en Rankin nýtur mikilla vinsælda meðal íslenskra unnenda glæpasagna, ekki síst eftir að hann heimsótti landið í fyrra. Bókin Mæling heimsins eftir Daniel Kehlmann kom út á íslensku á dögunum: FYNDIN MÆLING HEIMSINS Bókin Mæling heimsins eftir hinn þýsk-austurríska Daniel Kehlmann kom út á dögunum í þýðingu Elísu Bjargar Þorsteinsdóttur. Henni hef- ur verið hampað í hástert bæði af al- mennum lesend- um og mörgum gagnrýnandanum og var hún næstmest selda skáldsaga heimsins á síðasta ári. Þetta er sjötta bók hins rúmlega þrítuga Kehlmanns sem var gestur Bókmenntahátíðar í Reykjavík í síðustu viku. Mæling heimsins er söguleg skáldsaga og segir frá tveimur af virtustu vísindamönnum í sögu Þýskalands, heimaalningnum Carl Friedrich Gauss og og heimsmanninum Alexander von Humboldt, sem rannsaka heiminn hvor á sinn máta. Annar fer víða á jarðarkúlunni, hinn fer ekki út úr heimahéraði sínu. Byrjun sögunnar í hinum kafkaísku aðstæðum, þar sem prófessorinn Gauss reynir að komast hjá því að fara fram úr rúmi sínu, er afar fyndin og gefur fyrirheit um það sem koma skal. Umfjöllunarefnið hljómar nefnilega afskaplega þurrt og lítt til þess fallið að skemmta lesandanum – þýskir 19. aldar vísindamenn að mæla heiminn – en raunin er önnur. Sá sem þetta ritar skellti oft upp úr og getur því fyrir sitt leyti sagt að Kehlmann hafi tekist það sem hann sagðist í viðtali við DV í liðinni viku hafa ætlað sér, að skrifa þýska bók sem – merkilegt nokk – er fyndin. En bókin er ekki bara einhver allsherjar brandari heldur er að finna í henni þó nokkrar athyglisverðar pælingar og punkta. Minnir hún að mörgu leyti á Birting Voltaires, jafnvel Don Kíkóta, og varla leiðum að líkjast. Tíminn verður hins vegar að leiða í ljós hvort hún muni lifa jafngóðu lífi og þær. Kristján Hrafn Guðmundsson dómur hins vegar til að taka fleiri skref í lífinu,“ segir Hlín og svarar aðspurð að hún skilji algjörlega í góðu við leikhúsið. „Okkur Tinnu gekk mjög vel að vinna saman. Það er ekkert út á okkar samstarf að setja. Mér hefur fundist fólk vilja reyna að finna ein- hverja aðra fleti á þessu máli en ég held að það sé alveg ástæðulaust. Ég vinn þannig með fólki að ef ég er ósammála því þá segi ég það. Og þá eru hlutirnir bara ræddir. Þannig var samstarf okkar Tinnu. Við vor- um alls ekkert alltaf sammála en við ræddum hlutina. Þegar upp var staðið fannst okkur það það besta í þessu samstarfi.“ Klæjaði í fingurna Hlín hyggur nú á frekara nám en hún er menntaður leikstjóri og leiklistarfræðingur. Að þessu sinni varð meistaranám í bókmenntafræði við Háskóla Íslands fyrir valinu og settist Hlín á þann skólabekk nú í haustbyrjun. „Ég ætla að leggja áherslu á leikhúsið og skrifa um íslenskt nútímaleikhús. Það er svo lítið skrifað fræðilega um leikhús hér á landi,“ segi Hlín en haft var eftir henni í fjölmiðlum á dögunum að hana langaði að skrifa meira. Hún segir það eiginlega eiga bæði við skáldskap og fræðileg skrif. „Ég hef bæði skrifað leikrit og skáldsögu og hef alltaf haft fræðilegan áhuga. Þetta hefur alltaf blandast svolítið mikið saman hjá mér. Mig langar til dæmis að skrifa meira fyrir leikhús. Kannski var það líka ástæðan fyrir því að ég dró mig í hlé frá því starfi sem ég var í að ég vildi hafa möguleika á að koma inn í leikhúsið aftur sem leikritahöfundur og leikstjóri. Þegar þú vinnur sem dramatúrg eða listrænn ráðgjafi hefurðu ekki sömu möguleika því þú ert það viðriðin stjórn hússins. Mér fannst það allavega ekki vera rétt að koma mínum verkum á framfæri. Ég gaf sjálfri mér frí frá eigin sköpun þessa þrjá vetur, en svo fer mann að klæja í fingurna,“ segir Hlín og líkir eftir áslætti á lyklaborð með bros á vör. Leikstýrir hjá Stúdentaleikhús- inu Eftir að hafa skráð sig í háskólann hafði Hlín samband við Stúdentaleikhúsið og bauð fram krafta sína. Viðbrögðin voru jákvæð og vinnur leikhópurinn nú að því að setja upp verk sem Hlín skrifaði fyrir um áratug en endaði í skúffunni. „Ég er að endurskoða verkið núna í samvinnu við leikhópinn og það er mjög skemmtilegt. Það heitir Fundaherbergið og fjallar um fólk sem rekur fyrirtæki sem selur námskeið í mannlegum samskiptum, en það sjálft kann ekkert í mannlegum samskiptum. Það er svona grunntónninn í verkinu en það samanstendur af þremur fundum hjá starfsfólki fyrirtækisins. Mig minnir að ég hafi skrifað það eftir óskaplega mikla fundaþreytu sem hrjáir mjög oft vinnustaði, kannski sérstaklega vinnustaði þar sem margir þurfa að vinna mikið saman og leysa mál, til dæmis í leikhúsi. Ég hafði verið að vinna í Borgarleikhúsinu í þrjú ár og verið á mjög mörgum fundum. Mér var farið að finnast þessi fundahöld tilgangslaus, þau drógust á langinn og fólk var kannski ekki alltaf að tjá sig um það sem skipti máli. Upp úr því spratt þessi hugmynd sem síðan varð að leikriti. Og það sem ég er að fást svolítið mikið við í þessu er allt það áreiti sem einn fundur, eða fundarmenn, geta orðið fyrir. Þetta var skrifað fyrir tíu árum og þá var bara einn í hópnum sem var með farsíma. Nú eru allir með farsíma og gleyma oft að slökkva á þeim, allir eru með tölvur og eru að senda tölvupóst, fólk er að fara fram, fá sér kaffi, tala um sín persónulegu mál og svo framvegis. Einbeitingin fer út um allt, fundirnir verða ekki skilvirkir og fókusinn á það sem er aðalatriðið glatast. Krakkarnir lásu gamla handritið mitt, könnuðust við þetta allt og sögðu að þetta væri orðið þúsund sinnum verra í dag.“ Framandi sýningarstaður Að sögn Hlínar verður leikritið sýnt í kjallara Norræna hússins og er frumsýning 26. október. „Áhorfendurnir koma eiginlega inn á fund og horfa á þetta fólk funda um ákveðin málefni,“ segir Hlín. „Þarna í kjallaranum eru sýningarsalir fyrir myndlistarsýningar og þetta er í einum af þeim sölum. Þetta er ekki mjög stórt, enda ætlum við þetta bara fyrir 50 til 60 manna hóp áhorfenda,“ útskýrir Hlín en þetta er líklega í fyrsta sinn sem leikrit er sýnt í kjallara Norræna hússins. Hlín segir hinn nýja forstjóra hússins, Max Dager, hafa tekið afar vel í þá hugmynd að leyfa Stúdentaleikhúsinu að sýna í Norræna húsinu, enda vilji hann hleypa nýju fólki og nýju lífi inn í húsið. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Hlín kemur að starfsemi Stúdentaleikhússins því árið 1984 stóðu hún og Edda Björgvinsdóttir að leiksýningu þar sem hét Láttu ekki deigan síga, Guðmundur. „Ég kom upphaflega inn í Stúdentaleikhúsið í kringum 1982 en þá var mikill uppgangur og mikið fjör. Andrés Sigurvinsson hafði þá endurvakið starfsemi þess og það var mjög mikið af skemmtilegum sýningum sem voru settar upp á þessum tíma, það er frá 1982 til ´85, og fékk leikhúsið meðal annars menningarverðlaun DV. Það fólk sem er kannski mest aktívt í íslensku leikhúsi í dag var í Stúdentaleikhúsinu á þessum tíma,“ segir Hlín og kveðst geta nefnt fullt af nöfnum í því sambandi, til dæmis Stefán Jónsson, leikstjóra í Þjóðleikhúsinu, Þorvald Þorsteinsson, leikskáld, rithöfund og myndlistarmann, og Þór Tulinius, leikara í Borgarleikhúsinu. Hlín segir ekki mikinn mun á því að vinna við Stúdentaleikhúsið núna og fyrir um aldarfjórðungi. „Aðalatriðið er þessi gífurlegi áhugi og löngun til þess að gera skemmtilega hluti saman. Ef það er einhver munur er það hvað miklu fleiri hafa margt til brunns að bera núna, en þó voru þeir margir áður. Það er mjög ánægjulegt að sjá það og að vinna með þessu fólki,“ segir hún. Þarf að fjárfesta í íslenskri leikritun Sumir hafa furðað sig á því að leiklistarstofnun eins og Þjóð- leikhúsið, jafnvel Borgarleikhúsið líka, hafi ekki fastráðin leikskáld innanborðs. Hlín segir þetta mikið hafa verið rætt í Þjóðleikhúsinu. „Ég sat líka í stjórn Leikskáldafélags Íslands í nokkur ár og þá var stöðug umræða um þetta í félaginu. Við fengum meðal annars leikhússtjórana til að koma og ræða við okkur um þeirra sýn á íslenska dramatík. Allir leikhússtjórarnir hafa lýst því yfir að þeir vilji veg íslenskrar leikritunar sem mestan, en það er ekki nóg. Það þarf að setja raunverulegt fjármagn í það að halda úti leikritaskrifum, hvort sem það væri með því að fastráða höfunda í einhvern ákveðinn tíma eða búa til einhverjar áætlanir fram í tímann. Ég veit ekki hvernig best væri að leysa það. Hins vegar má alveg taka undir þá gagnrýni sem meðal annars hefur komið fram í haust á verkefnaval allra leikhúsanna að hlutur íslenskra leikrita er mjög rýr, en þó stærstur í Þjóðleikhúsinu. Ég held að þetta sé bara spurning um að leikhúsin ákveði að ætla sér að sinna þessari frumsköpun í einhvern ákveðinn tíma. Þetta sé ekki svona tilviljanakennt, kannski þessi og kannski hinn og kannski þetta, heldur að leikhúsin ákveði að eyða einhverju tilteknu fjármagni í íslenska leikritun næstu fjögur árin og sjá hvað komi út úr því. Og ég hugsa nú að það sé stutt í þetta, alla vega í Þjóðleikhúsinu.“ Leikstýrir Dósastöðum Hlín hefur líka leikstýrt mikið í gegnum tíðina eins og greint var frá í upphafi. Hún segir hug sinn standa til þess að láta einnig til sín taka á þeim vettvangi, en ekki bara í skrifunum. „Ég er náttúrlega að leikstýra núna í Stúdentaleikhúsinu og svo leikstýri ég verki eftir Steinunni Sigurðardóttur í Þjóðleikhúsinu næsta vor sem ber heitið Dósastaðir. Það er allavega vinnuheitið. Í stuttu máli fjallar leikritið um það að eiga ekki heimili. Þetta er mjög frumlegt verk, alls ekki hefðbundið og ekki raunsæislegt en í því er fullt af þeim húmor sem Steinunn er fræg fyrir. Það fjallar um fólk sem býr í íslensku samfélagi og á ekki í sig eða á en er samt að reyna að halda sjálfsvirðingunni. Dósastaðir er fyrirtæki sem endurvinnur dósir og aðalpersóna leikritsins er dósasafnari,“ segir Hlín en sú persóna er kvenkyns. Hlín gefur ekki upp hver muni fara með aðalhlutverkið né hvaða aðrir leikarar taki þátt í uppfærslunni. „Ég má því miður ekkert segja um það ennþá, enda verður það ekki sýnt fyrr en næsta haust. Við Steinunn erum hins vegar byrjaðar að vinna saman,“ segir Hlín en þetta er fyrsta leikrit Steinunnar fyrir leiksvið. Kvíðvænleg leikstjórn Fimm ár eru síðan Hlín setti síðast upp leiksýningu. „Það er töluvert langur tími og þegar líður svona langt á milli finnst manni maður vera á einhverjum byrjunarreit aftur. En svo finnur maður mjög fljótt hvað maður kann, hvað maður hefur í farteskinu. Reynslan er nefnilega þarna þó maður hafi ekki notast við hana í fimm ár,“ segir Hlín og þvertekur ekki fyrir að það sé jafnvel smá beygur í sér. „Ég neita því ekki að það er dálítið kvíðvænlegt. Kannski ekki beygur en þetta er mjög töff vinna. Að leikstýra er töff.“ Í ljósi þess að staða Borgar- leikhússtjóra losnar á næsta ári verður ekki hjá því komist að spyrja Hlín að lokum hvort hún ætli að sækja um. „Ég held ekki,“ segir Hlín og hlær. „Ég hef sótt reglulega um þessi störf síðustu tuttugu ár og held að ég sé hætt þessu umsóknarstandi. Það kæmi mér á óvart ef ég gerði það.“ Hlín Agnarsdóttir „Okkur tinnu gekk mjög vel að vinna saman. Það er ekkert út á okkar samstarf að setja. mér hefur fundist fólk vilja reyna að finna einhverja aðra fleti á þessu máli en ég held að það sé alveg ástæðulaust.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.