Fréttatíminn


Fréttatíminn - 25.04.2014, Blaðsíða 4

Fréttatíminn - 25.04.2014, Blaðsíða 4
Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is “Þessi sýning snerti mig... Mjög sterkt - náði manni alveg” ” LP Rás 2 „áhrifamikið verk... skilduáhorf fyrir þjóðina að sjá Kristbjörgu Keld”” UÞJ - listaukinn Borgarleikhúsið Nýtt verk frá CommonNonsense hópnum sem færði okkur Tengdó, Grímusýningu ársins 2012 Fös 25/4 kl. 20 UPPSELT Sun 27/4 kl. 20 UPPSELT Fös 2/5 kl. 20 UPPSELT Lau 3/5 kl. 20 UPPSELT Sun 4/5 kl. 20 örfá sæti Fim 8/5 kl. 20 örfá sæti Fös 9/5 kl. 20 örfá sæti Sumarið heils- aði með blíðu Sumarið heilsaði með blíðu í gær, sumardaginn fyrsta. Hlýir vordagar að undan- förnu hafa glatt menn eftir hret páskanna. Blíða helst fram á sunnudag, þegar kólnar á ný. Ungir sem aldnir fögnuðu sumri víða um land og skátar fóru fyrir skrúðgöngum. Það fraus því ekki milli vetrar og sumars. Áður þótti slíkt ávísun á gott sumar. Ómögulegt er þó að segja fyrir um sumarveðrið, en því verður væntanlega eitthvað misskipt milli landshluta, að vanda. Íbúar sunnan heiða þreytt- ust talsvert á vætutíð í fyrra en sólin kætti fólk nyrðra og eystra. Íslendingar eiga einir þjóða sumardaginn fyrsta, eins og fram kom hjá Árna Björnssyni þjóðháttafræð- ingi í Morgunblaðinu í gær. Íslendingar halda veglega upp á þennan fimmtudag í sumarbyrjun og hafa lengi gert, langþreyttir á þeim vetri sem kvaddur er. Undanfarin ár og áratugi hefur verið um það rætt að færa þennan lögbundna frídag, eins og fleiri fimmtudagsfrí, að helgi. Aðilar vinnumarkaðarins hafa meðal annarra verið þeirrar skoðunar. Um það er nánar fjallað í leiðara Fréttatímans í dag. - jh Undirskriftar- söfnun Já Ísland á vefsíðunni thjod. is, þar sem safnað er undirskriftum gegn áformum rík- isstjórnarinnar um að slíta aðildarvið- ræðum Íslands við Evrópusambandið, lýkur á sunnudag. Tæplega 54.000 undirskriftir hafa safnast. „Fleiri hafi ekki skrifað undir áskorun til Alþingis í 40 ár,“ segir á heimasíðu Já Íslands. Áætlað er að afhenda Alþingi undir- skriftirnar um mánaðamót. Áskorunin sem Alþingi verður afhent er svo- hljóðandi: „Við undirrituð skorum á Alþingi að leggja til hliðar tillögu til þingsályktun- ar um að draga til baka umsókn Íslands um aðild að Evrópusam- bandinu og boða til þjóðaratkvæða- greiðslu. Þar verði spurt: Vilt þú ljúka aðildar- viðræðum við Evrópusambandið, sem hófust með ályktun Alþingis 16. júlí 2009, eða vilt þú slíta þeim?“ Tæp 54.000 hafa skrifað undir á thjod.is F yrir 34 árum, í ágúst 1980, misst-um við hjónin 9 ára son okkar af slysförum. Á þeim tíma var ekkert til sem heitir áfallahjálp í þeirri mynd sem hún er í dag og fólk þurfti allt að því bara að bíta á jaxlinn og fara í gegnum þetta með styrk hvers annars,“ segir Sveinbjörn Bjarnason, starfandi formaður Birtu, landssamtaka foreldra sem hafa misst börn/ungmenni skyndilega. Þau fengu vissulega styrk víða að, meðal ann- ars frá kirkjunni. „Við fórum í gegnum sorgarferlið með sonum okkar þremur sem við áttum að auki. Þetta verður samt aldrei búið og það er aldrei búið að vinna úr þessu. Þegar maður veit að þarna úti er fullt af fólki sem hefur verið í svipuðum sporum og maður sjálfur þá er það sjálf- sagður hlutur, og hreinlega skylda manns finnst mér, að leggja þessu fólki lið,“ segir Sveinbjörn. Þriðji aðalfundur Birtu verður á morg- un, laugardaginn 26. apríl, í Grafarvogs- kirkju klukkan 16 en samtökin voru stofnuð á aðventunni árið 2012. „Það kom okkur á óvart að á annað hundrað manns hafi mætt á stofnfundinn og sýnir það hversu brýn þörfin er. Þarna kom fólk sem hafði glímt við sinn missi jafnvel áratugum saman en aldrei getað talað um hann og deilt reynslu sinni og sorg,“ segir Sveinbjörn. Samtökin voru stofnuð í framhaldi af vinnu séra Lenu Rósar Matthíasdóttur, prests við Grafarvogskirkju og Péturs Emilssonar sem missti átján ára dóttur sína í slysi á Spáni árið 2003, Stefaníu Guðrúnu. Séra Lena hafði í starfi sínu fundið þörf fyrir vettvang þar sem að- standendur barna sem höfðu fallið skyndilega frá gætu komið saman. Til- gangur samtakanna er að standa fyrir fræðslu og ýmsum viðburðum á lands- vísu, til sjálfstyrkingar fyrir syrgjandi foreldra og fjölskyldur þeirra. Auk þess er ætlunin að gefa syrgjandi aðstandend- um tækifæri til að komast að heiman um stund til að hvíla hugann og segir Svein- björn að hugmyndin sé að aðstoða fólk við að komast að í orlofshúsum. Sveinbjörn tekur fram að Birta séu ekki einu samtökin sem starfa á svipuðum vettvangi, árið 1987 voru stofnuð sam- tökin Ný dögun en forveri þeirra voru samtökin Sorg og sorgarviðbrögð, auk þess sem Samhygð er starfandi á Akur- eyri. Það sem greinir Birtu frá er áhersla á foreldra sem missa börn sín skyndilega. Sveinbjörn telur afar mikilvægt að fólk geti leitað til samtakanna og fengið þar styrk. „Ég get hins vegar aldrei sett mig í spor annarra syrgjenda. Ég get aðeins sett mig að þeirra sporum því þau eru sér- stök og einstök. Með mína reynslu get ég kannski verið örlítið nær þeim en hvert mál er einstakt og allir atburðir í kringum það eru einstakir. Ég tek líka fram að ég er ekkert aðalatriði í þessu öllu heldur eru það samtökin og það sem þau standa fyrir,“ segir hann. Erla Hlynsdóttir erla@frettatiminn.is Það kom okkur á óvart að á annað hundrað manns hafi mætt á stofnfundinn og sýnir það hversu brýn þörfin er.  SamFélagSmál landSSamtök Styrkja Syrgjandi aðStandendur Syrgjandi foreldrar fá styrk í Birtu Aðalfundur landssamtaka foreldra sem hafa misst börn eða ungmenni skyndilega verður haldinn í Grafarvogskirkju á laugardag. Starfandi formaður samtakanna missti son sinn fyrir 34 árum þegar áfallahjálp var ekki til í þeirri mynd sem hún er í dag. Tilgangur samtakanna er að standa fyrir fræðslu og viðburðum til sjálfstyrkingar fyrir syrgjandi foreldra og aðstandendur, en prestur við Grafarvogskirkju hafði í starfi sínu fundist þörf fyrir slík samtök. Sveinbjörn Bjarnason, starfandi formaður Birtu, missti níu ára son sinn, Sveinbjörn, af slysförum árið 1980. Hann segir samtökin dýrmætan vettvang fyrir aðstandendur til að styrkja hvern annan. Ljósmynd/Hari veður FöStudagur laugardagur Sunnudagur Víða bjarTViðri og Hægur Vindur, En VæTa norðan- og norðVEsTanTil. HöfuðborgarsVæðið: BJArT MEð köFlUM, HæGlÁTT oG MilT. fallEgT og blíTT VorVEður um land allT. sól og sTillT. HöfuðborgarsVæðið: léTTSkýJAð oG HæGUr VindUr. ÁkVEðin na-ÁTT og él þEgar frÁ líður n- og a-lands. kólnandi. HöfuðborgarsVæðið: SkýJAð, En úrkoMUlAUST. og loftið fyllist af fuglasöng ... Sumarið heilsar með kærkomnum mildum dögum. Bæði verður stillt og bjart um mest allt land í dag og víðast einnig á morgun laugardag. Mannfólkið kætist ekki síður en farfuglarnir. nú er að njóta áður en kólnar á sunnudag þegar kaldara loft að norðan á greiðari leið til landsins. Frystir og með einhverj- um éljum eða muggu um tíma norðan- og austantil. Spáð er áfram fremur köldu veðri fram í næstu viku. 8 6 5 10 9 7 4 4 4 10 5 1 0 0 6 Einar sveinbjörnsson vedurvaktin@vedurvaktin.is 4 fréttir Helgin 25.-27. apríl 2014
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.