Fréttatíminn


Fréttatíminn - 25.04.2014, Blaðsíða 37

Fréttatíminn - 25.04.2014, Blaðsíða 37
heilsa 37Helgin 25.-27. apríl 2014 FYRIRLESARAR OG KENNARAR Heilsunámskeið Sumar 2014 - 2 vikur Sími 512 8040 | www.heilsuhotel.is | heilsa@heilsuhotel.is Heilsuhótel Íslands | Lindarbraut 634 | 235 Reykjanesbær Hjúkrunarfræðingur BSc heilsuvísindi ÍAK einkaþjálfari Ásdís Ragna Einarsdóttir Grasalæknir Heilsa, hvíld og gleði Vigdís Steinþórsdóttir Chad Keilen Ásta Mjöll Óskarsdóttir 2. - 16. maí, 5 herbergi laus 6. - 20. júní, vinsæll tími Bókanir í síma 5128040 heilsa@heilsuhotel.is *Staðfestingargjald 40.000.- Flest stéttarfélög og fyrirtæki styrkja þátttakendur KYNNING J óhanna Eiríksdóttir frétti af Heilsuhóteli Ís-lands hjá vinkonum sínum sem dvalið höfðu þar. „Þær dásömuðu dvölina á allan hátt svo ég varð forvitin og ákvað að skella mér þangað,“ segir Jóhanna sem dvalið hefur fjórum sinnum á Heilsuhóteli Íslands á síðastliðnum tveimur árum. „Þetta er það besta sem ég geri fyrir sjálfa mig. Mér finnst lágmark að dvelja í viku en alveg yndislegt ef ég næ tveimur vikum. Það er alltaf dásamlegt að ganga þarna inn og mér líður eins og á fimm stjörnu hóteli. Ég kem alltaf til baka sem ný manneskja því dvölin bætir heilsuna, lundina og húðina,“ segir hún. Hollur og góður matur Á Heilsuhóteli Íslands starfa næringarfræðingar sem veita gestum faglega ráðgjöf um hollt mat- aræði. Jóhanna kveðst ekki dvelja á Heilsuhótelinu til að grenna sig, heldur til að læra að borða góðan mat. „Ég fer alltaf fróðari heim og betur meðvituð um þarfir líkamans til að viðhalda góðri heilsu. Maður á það til að borða óhollan mat og þá er gott að dvelja á Heilsuhótelinu og rétta sig af og lifa ein- göngu á hreinni fæðu og losa sig við óæskileg efni. Þetta er eins og afeitrun og ekkert hveiti, sykur eða kaffi í boði, heldur aðeins hollur og hreinn úrvals matur.“ Boðið er upp á morgunmat, hádegismat og kvöld- mat og er mataræðið byggt þannig upp að gestir finni ekki til svengdar. „Það er mikið af grænmeti á boðstólum, annað hvort hrátt eða soðið. Í fyrsta sinn þegar ég dvaldi á Heilsuhótelinu fann ég fyrir fráhvörfum þegar koffín, sykur og hveiti var að fara úr líkamanum. Þá gerði ég mér grein fyrir því hvað þessi efni eru mikið eitur,“ segir Jóhanna. Skemmtileg dagskrá daglega Heilsuhótel Íslands er staðsett rétt fyrir utan Reykjanesbæ, á gamla varnarsvæðinu sem nú nefnist Ásbrú. Hvern dag er spennandi dagskrá sem byrjar með jógatíma klukkan sjö. Eftir það eru gönguferðir í boði og svo morgunverður klukkan 9. Eftir morgunmatinn fara margir gesta í gufubað og heitan pott. „Sjálf fer ég alltaf í infra-rauðan klefa sem hitar líkamann að innan og svo bursta ég húðina. Ég kem út þaðan eins og ungbarn,“ segir Jóhanna. Eftir það tekur hvíld við og er hádegis- verður borinn fram klukkan 14. „Eftir hádegi eru svo gönguferðir um Reykjanesið sem er alveg magnaður staður. Ég hafði ekki gert mér grein fyrir því áður. Síðdegis eru svo fyrirlestrar og á kvöldin ýmsar skemmtilegar uppákomur.“ Á Heilsuhóteli Íslands starfa nuddarar og segir Jóhanna virkilega gott að nýta sér það. Góður andi Gestir á Heilsuhóteli Íslands koma ýmist einir eða í hópum. „Ég hef bæði farið ein og með vinkonum mínum. Það er lítið mál að fara ein því meðal gestanna skapast virkilega góður andi. Heilsu- hótelið er alveg frábær staður og eins og nokkurs konar kærleikshorn sem maður fer inn í. Ég hlakka alltaf til að koma aftur.“ Það besta fyrir heilsuna og lundina Jóhanna Eiríksdóttir dvelur tvisvar sinnum á ári á Heilsu- hóteli Íslands þar sem hún ræktar líkama og sál. Hún segir hótelið magnaðan stað sem hún hlakkar alltaf til að koma aftur á. Jóhanna Eiríks- dóttir segir alltaf dásamlegt að dvelja á Heilsuhóteli Ís- lands. Þar fræðist hún um mataræði og nýtur þess að borða eingöngu hreina fæðu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.