Fréttatíminn


Fréttatíminn - 25.04.2014, Blaðsíða 32

Fréttatíminn - 25.04.2014, Blaðsíða 32
32 fjölskyldan Helgin 25.-27. apríl 2014 LÁGMÚLA 8 · REYKJAVÍK · SÍMI 530 2800 · ORMSSON.IS X-EM11 Verð: 25.900Hljómtækjastæða LED sjónvarp 19.900 TILBOÐ 25% afsláttur Verð: 29.900 Kr. 7.990 Tveir litir Kr. 7.990 Kr. 9.450 SPENNA SNERPA SNILLD ÚRVAL TÖLVULEIKJA TILBOÐ FERMINGAR Verð: 189.900 46" 159.900 TILBOÐUE46F5005AK DCS-222K Verð: 49.900DVD-Heimabíókerfi 5.1 rása 36.900 TILBOÐ Opið virka daga frá 10-18 og laugardaga frá 11-15 Hljómtækjadeildin er nú flutt til föðurhúsanna í Lágmúla 8 og því hefur allt vöruúrval Ormsson nú fundið sér samastað á sama stað. GOLD PLATED SPECIALIZED BICYCLES & COMPONENTS KRÍA HJÓL GRANDAÐGARÐUR 7 101 REYKJAVÍK s.5349164 THE FSR EPIC - THE ONLY FULL-SUSPENSION XC BIKE TO WIN OLYMPIC GOLD AND MULTIPLE WORLD CHAMPIONSHIP GOLD MEDALS GOLD STANDARD REDEFINED. SPECIALIZED.COM Mikilvægasta stofnun samfélagsinsx P áskar og páskafrí eru að baki með tilheyrandi óreglu; ungmenni heim-ilisins og ef til vill hinir eldri líka hafa úðað í sig páskaeggjasúkkulaði umfram skynsemismörk, vakað fram eftir öllum kvöldum og sofið að sama skapi framundir hádegi. Frígamanið er ágætt en allir fagna hvunndags- lífinu að nýju með röð, reglu og rútínu – r-reglunum sem ég þreytist ekki á að dásama í ræðu og riti. Þar með þarf fjölskyldufyrirtækið aftur að taka til við daglegan rekstur. Framkvæmdastjórinn brettir upp ermar eftir að hafa kallað aðstoðar- mann sinn svo og stjórn fyrirtækisins til fundar við sig og þar er ráðslagað um næstu skref í rekstrinum. Síðan er fundað og skipulagt og vinnuferlin hönnuð á sem árangursríkastan hátt og skynsamur framkvæmdastjóri fær starfsfólkið í lið með sér í því verki. Loks þarf að hvetja starfsfólkið til dáða, setja vinnuferlin í gang, hafa öryggisreglur tiltækar og endurmeta stöðugt hvernig til er að takast. Svo þarf að ýta meira við sumum starfs- mönnum en öðrum og stórauka á starfsþjálfun í einhverjum tilvikum. Gleymum svo ekki að framkvæmdastjórinn og aðstoðarmaður hans verða að vinna með hverjum og einum eftir því hvert verksvið starfsmannsins er. Sumir eru með skýra ábyrgð og jafnvel verkstjórn á tilteknum þáttum, aðrir eru óbreyttir á plani. Allir verða að leggja sitt af mörkum til að ár- angur náist. Sum fjölskyldufyrirtæki eru þó einfaldari í rekstri heldur en hér er lýst. Stundum er um einyrkjarekstur að ræða þar sem sami aðili er bæði skráður í stjórn og sem framkvæmdastjóri. Þar getur starfsmannafjöldi fyrirtækisins farið allt niður í einn einstakling fyrir utan framkvæmda- stjórann en slíkt fyrirtæki þarf þó á öllu því sama að halda og stærri rekst- ur; það eru bara færri hendur sem vinna verkin. Hér skal tekið fram að í þessum pistli er ekki rætt um einyrkjafyrirtæki án starfsmanna þar sem starfsmannahaldið í þeim fyrirtækjum krefur ekki um flóknar leikfléttur í rekstrinum eða þá um vandaða mannauðsstjórnun heldur eingöngu um sjálfsskoðun eigandans. Fjölskyldufyrirtækið er auðvitað fjölskyldan sjálf, elsta og mikilvægasta stofnun samfélagsins. Ekkert hefur breyst í aldanna rás þótt svo að fjölmörg- um verkefnum sé núna útvistað sem áður voru á verkefnaskránni rétt eins og hjá öðrum fyrirtækjum. Bókhald, umönnun á fararskjótum, matargerð, smíði áhalda og innanstokksmuna, þvottar, uppbygging fjögurra veggja, umönnun aldraðra og sjúkra, viðhald fasteigna, afþreying og skemmtun, umönnun, uppeldi og menntun barna. Alltaf verða samt grunnverkefnin til staðar innan fjölskyldufyrirtækisins þrátt fyrir mögulega útvistun. Líðan fólksins, ferli í því sem gert er, fjármál, sumarfríið framundan, fara á fætur að morgni, næra sig og aðra, iðkun samskipta og ræktun tilfinningatengsla og svo mætti lengi telja. Fjölskyldufyrirtækið þarf að taka sig alvarlega. Hver er framkvæmdastjór- inn sem stýrir daglegum rekstri? Trúlega mamman en ef því er viðkomið, þarf hún að hafa sinn aðstoðarmann til reiðu á ögurstundum eða með öðrum orðum, hinn fullorðna einstaklinginn á heimilinu. Er hann eða hún að axla sína ábyrgð? Eru haldnir fundir með öllum fjölskyldumeðlimum til að ræða um verkefnin sem þarf að vinna daglega eins og að fara út með ruslið og hundinn og ryksuga og setja í uppþvottavélina? Vita allir um sitt hlutverk og fá allir þá þjálfun og kennslu sem þeir þurfa til að standa sig? Horfir fram- kvæmdastjórinn með sínum árvökulu sjónum á starfsemina, fylgir ákvörð- unum eftir, minnir á og hvetur og ávítar ögn og aðstoðar þá sem þurfa? Hefur framkvæmdastjórinn lent í klípu og gerir bara allt sjálfur? Tilvonandi stjórnarmenn, framkvæmdastjórar og starfsmenn í fjölskyldu- fyrirtækjum framtíðarinnar munu mest og best læra af sínu fyrsta verknámi; því að vera barn. Lýðræðislegir stjórnarhættir, opin umræða um öll mál, jákvæður stuðningur og svo skýrar reglur og eftirfylgd er árangursríkasta leiðin fyrir öll fjölskyldufyrirtækin okkar. Tilvonandi stjórnarmenn, framkvæmdastjórar og starfs- menn í fjölskyldufyrirtækjum framtíðarinnar munu mest og best læra af sínu fyrsta verknámi; því að vera barn. Fjölskyldufyrirtækið? Margrét Pála Ólafsdóttir ritstjórn@ frettatiminn.is heimur barna Úr eru komnar tvær nýjar bækur um Skúla skelfi í þýðingu Guðna Kolbeins- sonar. Skúli skelfir skemmtir og fræðir Nú getur fjölmennur aðdáendahópur Skúla skelfis glaðst því út eru komnar tvær nýjar bækur um þennan stórskemmtilega og uppátækjasama dreng eftir Francesca Simon í þýðingu Guðna Kolbeinssonar. Í risaeðlubókinni „Skúli skelfir risaeðlur“ er að finna fjöldann allan af skelfilega skemmtilegum fróðleik en „Martröð Skúla skelfis“ inniheldur fjórar fyndnar hrekkjasögur sem ættu ekki að valda aðdáendum hans vonbrigðum. Bækurnar eru eins og fyrr allt í senn, skemmtilegar, fróðlegar og fallega myndskreyttar. Þær eru prentaðar með stóru letri og henta því vel fyrir unga krakka sem eru að stíga sín fyrstu skref í lestri.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.