Fréttatíminn


Fréttatíminn - 25.04.2014, Blaðsíða 54

Fréttatíminn - 25.04.2014, Blaðsíða 54
barnamenning 29. apríl-4. maí 20142 Það er úr nægu að velja þegar dagskrá Barna- menningarhá- tíðar er skoðuð. Hér er hlaupið yfir nokkra áhugaverða viðburði en ítarlega dag- skrá má finna á heimasíðu hátíðarinnar. Rekstrarvörur til fjáröflunar – safnaðu peningum með sölu á fjáröflunarvörum frá RV FÓ TB O LT I BA DM IN TO N SU N D HA N DB O LT I KÖ RF UB O LT I Rekstrarvörur - vinna með þér Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavík Sími: 520 6666 • Fax: 520 6665 sala@rv.is • www.rv.is RV 1113 Er æfingaferð, keppnisferð, útskriftarferð eða önnur kostnaðarsöm verkefni framundan? Síðustu 30 árin hafa félagar í íþróttafélögum, kórum og öðrum félagasamtökum aflað sér fjár á einfaldan hátt með sölu á WC pappír, eldhúsrúllum, þvottadufti og öðrum fjáröflunarvörum frá RV. Fjölbreytt dagskrá um alla borg Perlutónleikar Tónagull heldur, ásamt Berglindi Maríu TóMasdóTTur flautuleikara, tónleika á léttum nótum fyrir allra yngstu börnin í HannesarHolTi þar sem sungnar verða þekktar perlur og barna- gælur. Tónleikagestum býðst að vera með í söngnum og taka þátt í flutningi með klappi og smáhljóðfærum. Lóunni verður fagnað, riðið heim til Hóla og fé rekið úr móunum svo eitthvað sé nefnt. Sunnudagur 4. maí kl. 15.00 til 16.00 Gallerí UngLamb Í gallerí unglaMB gefst ungu fólki tækifæri til þess að stíga sín fyrstu skref í heimi lista, sýna verk sín og koma sjálfu sér á framfæri. Öllum unglingum í félagsmiðstöðvum Kringlumýrar var velkomið að taka þátt og nú hafa 30 listamenn skráð verk sín til sýnis. Um er að ræða sýningu sem enginn ætti að láta framhjá sér fara, því þarna verða myndlistarlistamenn framtíðarinnar til. Við hverju leitar þú svara? Hefur þig alltaf langað í slímfótabað eða að vita hvað þú átt að gera ef þú lendir á eyðieyju? Prófa ryksuguhanska eða lenda í sápukúluævintýri? Það verður spenn- andi upplifun að kíkja í ToppsTöðina, frumkvöðlasetur í gömlu varaaflstöðinni við Rafstöðvarveg í Elliðarárdal, fá svar við allskonar spurningum og safna í reynslu- bankann. Íslenskt hugvit verður í hávegum haft. Kynlegir kvistir Hefurðu einhvern tímann haldið á steini eða trébút og séð í honum alls kyns verur eða andlit? Í húsakynnum Mynd- Höggvarafélagins verður farið í skapandi ferðalag um heim sjónlista þar sem form, litir, áferð, ljós og skuggi eru nýtt í persónulegri tjáningu. Myndhöggvararnir KarloTTa Blöndal og Jóna Hlíf Hall- dórsdóTTir bjóða krökkum að smíða og mála skúlptúra í þrívídd til að taka með sér heim. Dansveisla í Hörpu Í tilefni af alþJóðlega dansdeginuM 29. apríl sameina listdansskólar höfuð- borgarsvæðisins krafta sína og bjóða upp á allsherjar dansveislu í eldBorg. Boðið verður upp á metnaðarfulla dagskrá þar sem ólíkir dansstílar og dansarar, jafnt mjög ungir sem langt komnir, fá að njóta sín. Trúðar og Charlie Chaplin-ar, blómagarðar og svanapollur eru aðeins brot af því augnakonfekti sem boðið verður upp á. Skemmtum okkur saman Börnin á MiðBorg, frístundaheimilinu drauMalandi og í ausTurBæJar- sKóla setja upp sýninguna Við skemmt- um okkur saman. Sýningin er afrakstur átta menningarveislna sem börnin héldu og eiga uppruna sinn í mismunandi menn- ingarheimum víðs vegar að. Ljósmyndir og annan afrakstur af indíánahátíð, úr sænskri veislu, holi veislu og risaeðluhátíð má nú sjá á KJarvalssTöðuM. Ég veit eina stjörnu Það verður ævintýri líkast þegar 500 reyk- vísk leikskólabörn sameinast í einn kór og syngja lögin hans Jóns Ásgeirssonar við undirleik atvinnutónlistarmanna. Fram koma einnig forskólanemendur TónsKóla sigursveins og HaMra- HlíðarKórinn. Þetta er í fjórða sinn sem Tónskóli Sigursveins heiðrar ástsælt tónskáld með þessum hætti. Þriðjudagur 29. apríl kl. 14.00 til 15.00 Drullumall Unglingar í félagsmiðstöðvum Kamps halda tónleika með það að markmiði að hvetja unglinga til að kynna sér ólíkar tegundir tónlistar, prófa sig áfram í tónlistarsköpun og skapa vettvang þar sem unglingar geta lært af reyndu tónlistarfólki í öruggu umhverfi félagsmið- stöðvarinnar. Í tilefni af BarnaMenning- arHÁTíð koma fram ungar og upprenn- andi hljómsveitir auk reyndari listamanna eins og friðriK dór og Úlfur Úlfur. Þriðjudaginn 29. apríl kl. 19.30 til 22.00 Börn stjórna leiðsögnum um sýningarnar á Kjarvals- stöðum Nemendur í 6. bekk í laugarnessKóla stjórna leiðsögn um sýninguna Árs- Tíðir KJarvals, um sýningu finnska myndlistamannsins Harro og sýningu Hildar ÁsgeirsdóTTur Jónsson. Sláist með í för og skoðið verk þessara listamanna með augum barna! Myndasögusmiðja fyrir draumlynda Taktu þátt í myndasögusmiðju í Borgar- BóKasafninu og teiknaðu drauma þína. Í smiðjunni verður farið yfir þau undirstöðuatriði sem gera teikningu að myndasögu. Leiðbeinandi verður finnski myndasögusmiðurinn og kennarinn peTri KoiKKalainen. Sérðu ekki að ég er líka unglingur félagsMiðsTöðin asKJa/KleTTa- sKóli, setur upp sýninguna sérðu eKKi að ég er unglingur í Hornsílinu, sýningarsal sJóMinJasafnsins. Nánast allir unglingar í Öskju eru á fötlunarstigi 1, þá eru þau unglingar, jafnfjölbreytt og með sömu áhugamál og aðrir unglingar. Markmiðið er að sporna gegn því við- horfi að fatlaðir séu umönnunarþung smábörn alla ævi og sýna þroska þeirra. 14 ára lífið unglingar í reyKJavíK eru skapandi og skemmtilegur hópur en hvað eru unglingarnir að fást við í sínu daglega lífi? Við fáum innsýn í líf fjórtán ára unglinga út frá þeirra sjónarhorni í gegnum myndir á insTagraM. Hnésokkar og lakkrísrör BarnaBallið í ævinTýraHöllinni í iðnó er skemmtilegt tækifæri fyrir öll börn og fjölskyldur þeirra til að koma saman og dansa, gleðjast, hoppa og tjútta. Þeir miklu gleðigjafar valdiMar guðMundsson og vinir halda uppi fjöri og flytja eigin tónlist, barnalög og barnvæn lög frá ýmsum tímabilum ís- lenskrar dægurlagasögu sem flestir ættu að kannast við. Laugardaginn 3. maí kl. 14.30 til 16.30 Miðstöð barnamenningar Í iðnó verður starfrækt barnamenning- arhús undir nafninu ævinTýraHöllin. Þar fá börn og unglingar að njóta skap- andi hæfileika sinna í skemmtilegu umhverfi. Í Ævintýrahöllinni verður fjölbreytt dagskrá fyrir börn og vel tekið á móti fjölskyldum og hópum. Helstu stórviðburðir verða barnaball með valdiMar guðMundssyni og vinum, balkansk- ir tónleikar, danssýning með egypsku þema og kammertónleikar. Í smiðjum verður svo hægt að læra að öðlast ofur- hetjukrafta, rappa, dansa afró-brasilískan bardagadans, búa til hljóðfæri og fleira. Hátíðin er tileinkuð náttúru landsins, börnum og vísindum. Í boði verða fjölbreyttir fjölskylduvið- burðir, svo sem fuglaskoðun, útileikir, tónlistaratriði, sögustund, sápukúlur, krítar og margt fleira. Sérstakir við- burðir tengdir einstöku friðlandi Vatns- mýrarinnar verða einnig á dagskránni en þar geta börn notið villtrar náttúru og fuglalífs í miðri borginni. sKoTTMarKaður verður við Norræna húsið frá klukkan 12:00 til 16:00 þar sem fólk getur sett upp sölubás í farangurs- rými eða skotti bíla sinna. Nauðsynlegt er að skrá sig fyrirfram hjá Norræna húsinu á þann viðburð. Þá verður grasaHlaupið 2014 hlaupið þar sem grasafræðingur stendur fyrir grasaleit. sveinn KJarTansson, sJónvarpsKoKKur með meiru, verður með þemað Fisk í dag en síðar í maí opnar hann nýjan veitingastað í Norræna húsinu. Þorri atriða fer fram í og við Norræna húsið en einnig í Þjóðminjasafninu og Háskóla íslands. Dagskráin fer að mestu leyti fram utandyra og fólk því hvatt til að klæðast eftir veðri. Nánari upplýsingar um dagskrána má nálgast á faceBooK-síðunni vaTnsMýrarHÁTíð 2014. Kynning Vatnsmýrarhátíð fyrir alla fjölskylduna Vatnsmýrarhátíðin verður haldin sunnudaginn 4. maí og er hún lokahnykkur Barnamenningarhátíðar. Norræna húsið stendur fyrir Vatnsmýrarhátíðinni í samstarfi við Þjóðminjasafnið og Háskóla Íslands.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.