Sveitarstjórnarmál


Sveitarstjórnarmál - 01.06.1948, Síða 17

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1948, Síða 17
SVEITARSTJ ÖRNARMÁL 13 um sýningu skipulagsupdrátta og líkana af bæjum, sem að sjálfsögðu var ein aðal- uppistaða Parísarsýningarinnar. Mest bar á skipulagsuppdráttum hjá hernaðarþjóð- unum, eða þeim, sem verst urðu fyrir barðinu á flugsprengjum. Það er ætíð erfitt að gera grein fyrir skipulagstillögum þannig, að verulegt gagn hljótist af fyrir sýningargesti með stuttri viðdvöl. Þó fer aldrei hjá því, að uppdrættir þessir skera í augu með litskrúði og fagurri áferð. En sem sýningarmuni skortir þá venjulega, sem að minum dómi er megin atriði, að geta gefið ókunnugum forsendur fyrir sjálfu skipulaginu, þannig að sá sem fræðslu leitar, verði dómhæfur á árangur og markmið, og þannig dregið ályktanir, sem að gagni megi verða, og til lærdóms- auka. Að þessu leyti var sýningin frá skipu- lagslegu sjónarmiði minna fræðandi og gagnleg en ella, en þó voru þar fjölmörg atriði, sem vissulega voru athyglisverð fyrir kunnáttumenn. Lærdómsrikt var að sjá, með hversu miklum ofurkröftum og áhuga, Frakkar hafa látið gera uppdrætti og endurbyggingaráætlanir fyrir þá bæi, sem eyðilagst hafa af völdum síðustu styrj- aldar. Skipulagsmálaráðuneyti Frakka ákveður á hverjum tíma, hvaða bæjir skuli skipu- lagðir. Síðan er ákveðið í samráði við hlutaðeigandi bæjarstjórn, hvaða arkitekt skuli falin yfirumsjón uppdrátta- og skipu- lagsvinnu fyrir hvern og einn stað. Sá, sem valinn er, starfar síðan undir yfir- umsjón skipulagsmálaráðuneytisins, en hefur frjálsar hendur að öðru leyti, og er ráðinn til starfsins eingöngu þar til upp- drættir hafa náð samþykki, og verið stað- festir af ráðuneytinu. Þetta fyrirkomulag skapar afar mikla fjölbreytni í skipulags- tillögum um franska bæi, og gefur jafn- framt hinum fjölmörgu kunnáttumönn- um í þessari grein, hið ákjósanlegasta tæki- færi til sjálfstæðs starfs í byggingarmál- um þjóðarinnar. Fleiri hundruð arkitektar vinna á hverjum tíma að skipulagsmálum franskra bæja. Því er stranglega fylgt eftir af hálfu ráðuneytisins, að eingöngu kunn- áttumenn séu ráðnir til þessarra starfa, og verði hörgull á slíkri aðstoð, eru þeir bæir, sem minnst liggur á að skipuleggja, látnir sitja á hakanum þar til verkefnunum er lokið annars staðar, svo eigi sé teflt í tví- sýnu sakir skorts á fullkomnum leiðbein- ingum. Um árangur i einstökum atriðum þess- arra uppdrátta þori ég ekki að dæma, enda brestur mig til þess margvíslegar fors- endur, eins og áður gat um. En að öðru leyti má segja það um skipulagssýningar flestra landanna, að enskra og amerískra áhrifa virtist gæta í ríkum mæli; miklir og rúmgóðir skrúðgarðar inni í byggðar- svæðum, skrautleg íþróttasvæði, verzlun- arkjarnar og menningarstofnanir í hnapp á heppilegum stöðum. Undarlega líkum tökum var tekið á verkefnunum þótt þjóð- irnar væru frábrugðnar, og lifnaðarhættir misjafnir. En alls staðar var það sameigin- legt, að hið raunverulega líf byggðarlaga, fjölskyldan og börnin, var lagt til grund- vallar fyrir sjónarmiðum. Ekki var það miklum vafa undirorpið, að megin hluti þeirra skipulagstillagna, sem sýndar voru, yrðu erfiðar til fram- kvæmda. Hjá flestum þeim þjóðum, sem uppdrætti sýndu, ríkja margvíslegir fjár- hagslegir örðugleikar, sem torvelda fram- kvæmdir, hversu æskilegar sem væru. En uppdrættirnir sýndu þó, og bar saman í þeirri hugarfarsbreytingu frá fyrri tím- um, að ráðamenn þjóðanna hafa í þessum efnum fyrst og fremst opin augu fyrir sem fullkomnastri aðbúð fólksins, umhverfi þess og skilyrðum til þess að lifa menn- ingarlífi í bæjum framtíðarinnar. Margir uppdrættir báru vitni þeirrar virðingar, er höfundarnir bera fyrir hinum óbreytta borgara og ytri velgengni hans. Of lítið var hins vegar minnst á leið- irnar til þess að framkvæma stórfelldar skipulagsbreytingar, en það var mikil vöntun, því þjóðirnar hafa ýmislegt á tak- teinum í þeim efnum, sem af mætti læra. Heildaráhrif á skipulagsuppdráttasýn- ingunni voru þrátt fyrir allt þau, að vel

x

Sveitarstjórnarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.