Morgunblaðið - 05.03.2012, Blaðsíða 26
26 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. MARS 2012
–– Meira fyrir lesendur
PÖNTUN AUGLÝSINGA: Fyrir kl. 16, mánudaginn 5. mars.
FERMINGAR
Fermin
g
SÉRBLAÐ
Föstudaginn 9. mars kemur út
hið árlega Fermingarblað
Morgunblaðsins.
Fermingarblaðið hefur verið eitt af vin-
sælustu sérblöðumMorgunblaðsins
í gegnum árin og verður blaðið í ár
sérstaklega glæsilegt.
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105
kata@mbl.is
MEÐAL EFNIS:
Veitingar í veisluna.
Mismunandi fermingar.
Fermingartíska.
Hárgreiðslan.
Myndatakan.
Fermingargjafir.
Fermingar erlendis.
Hvað þýðir fermingin?
Viðtöl við fermingarbörn.
Nöfn fermingarbarna.
Eftirminnilegar fermingargjafir.
Fermingarskeytin.
Boðskort.
Ásamt fullt af spennandi efni.
Hvað ertu að hlusta á um þessar
mundir?
Nýja platan frá The Maccabees. Gi-
ven to the Wild, hefur fengið að
hljóma mikið síðan hún kom út. Ég tek
reglulega David Sylvian-æði og er á
einu núna og síðustu þrjár plötur Talk
Talk hljóma mikið þegar ég hangi í
tölvunni.
Annars hefur netið gert mig mun
meira að smáskífumanni en plötu-
manni. Theme Park er að heilla mig
og nýja lagið frá Santigold er „brill“,
sama má segja um nýju Da La Soul.
Todd Terje er í skoðun en Inspector
Norse er afskaplega fallegt og já alveg
rétt … tók Level 42 sveiflu um daginn,
tímabilið frá þeim tíma þegar þeir eru
að kveðja bræðinginn og áður en þeir
slá í gegn.
Hvaða plata er sú besta sem nokkurn
tíma hefur verið gerð að þínu mati?
Ég hef alltaf haldið því fram að
plata Propaganda, Secret Wish frá
1985 sé besta plata allra tíma, hlustaði
á hana í fyrra og er ekki á þeirri skoð-
un í dag, hún er samt góð.
Black Celebration frá De-
peche Mode hefur alltaf ver-
ið ofarlega á blaði eins og
flest sem DM hafa gert (fyrir
utan Sounds of the Universe)
en ég held bara að Dummy
frá Portishead og Gone to
Earth með David Sylvian séu
bestu plötur sögunnar, þang-
að til á morgun í það minnsta.
Hver var fyrsta platan sem þú
keyptir og hvar keyptir þú
hana?
Það var fyrsta platan frá stórsveitinn Asia!
Triumph með The Jacksons var sú fyrsta sem ég
stal og sú eina held ég. Það var Hljómval í Keflavík
sem seldi mér fyrstu plötuna og lenti í þjófinum líka
(þess má geta að ég sá til þess að þau hjónin kom-
ust til Kanaríeyja á hverju ári fyrir alla peningana
sem ég setti í fyrirtækið svo ég geri fastlega ráð
fyrir að verða ekki kærður fyrir þjófnaðinn).
Hvaða íslensku plötu þykir þér vænst um?
Ekki spurning,
Pax Vobis – Pax Vob-
is, það er þeim að
kenna að ég varð
„húkkt“ á Japan og
Sylvian og er ég þeim
þakklátur
Hvaða tónlistarmaður
værir þú mest til í að
vera?
Mig langaði alltaf
að vera Jean Michel
Jarre þangað til ég sá tónleikana þar sem hann „spil-
aði“ á lazergeislana þannig að ég segi bara Martin L.
Gore mínus leður dressin. „Basic“.
Hvað syngur þú í sturtunni?
„Suedehead“ með Morrissey, fullt af DM, Midge
Ure og bara allt sem létt er að syngja og má vera
falskt.
Hvað fær að hljóma villt og galið á föstudags-
kvöldum?
Þá vaknar í mér gamli Déjöðinn, Chemical
Bros. F.S.O.L., Orbital yfir í
Perez Prado og eldgam-
alt latino stöff, „luvly“!
En hvað yljar þér svo á
sunnudagsmorgnum?
En og aftur dett ég í
Sylvian en hann er hann-
aður fyrir sunnudags-
morgna. Eldar eru ljúfir.
Ég er mikill „ambient“ lúði
og það er fínt á sunnudags-
morgnum en oftast yf-
irgnæfir barnaefni sjón-
varpsins allt
sem ég er að
hlusta á inni í
tölvuherbergi.
Þannig að þetta
hljómar soldið
eins og Dóra og
Doddi í leik-
fangalandi hafi
fengið tsjillaða
yfirhalningu …
eða ekki.
Í mínum eyrum Þórður Helgi Þórðarson
„… allt sem létt er að
syngja og má vera falskt“
Vilhjálmur Andri Kjartansson
vilhjalmur@mbl.is
Tónlistarhátíðin Reykjavík Folk Festival verður haldin í
þriðja sinn á Rósenberg dagana 7. til 10. mars næstkom-
andi. Helgi Þór Ingason, tónlistarmaður, er einn af
skipuleggjendum hátíðarinnar og segist hann vera fullur
tilhlökkunar til hátíðarinnar í ár. „Þetta er þriðja hátíðin
sem við höldum og við erum að stækka hana hægt og ró-
lega og prófa okkur áfram en í ár verða 16 hljómsveitir
og þar af þrjár erlendar sem er alveg nýtt hjá okkur,“
segir Helgi. Hátíðin er að sögn skipuleggjenda Alþýðu-
og heimstónlistarhátíð en hún var fyrst haldin til heiðurs
tíu ára afmæli hljómsveitarinnar South River Band. „Við
stofnuðum þá hljómsveit árið 2000 með Ólafi heitnum
Þórðarsyni sem var landskunnur tónlistarmaður og um-
boðsmaður listamanna. Það var eiginlega að hans frum-
kvæði að við héldum þessa hátíð en hann átti þátt í að
hleypa af stokkunum ýmsum verkefnum eins og t.d.
djasshátíð Reykjavíkur o.fl. enda alltaf með puttana í
einhverju.“
Ólafur er þjóðinni eflaust þekktastur fyrir þátttöku
sína í hljómsveitinni Ríó Tríó og héldu vinir hans í South
River Band styrktartónleika fyrir hann í fyrra.
„Styrktartónleikarnir voru haldnir undir formerkjum
Reykjavík Folk Festival en nú höldum við þetta eig-
inlega í minningu Óla. Hann yrði þó sjálfur ekkert of
hress með það ef við ætluðum að gera þetta að minning-
arhátíð um hann enda setti hann tónlistina í fyrsta sætið
og var meira í því að koma öðrum að en hann verður allt-
af með okkur á þessari hátíð og hans andi svífur yfir
vötnum.“
Reykjavík Folk Festival er að sögn Helga viðleitni fé-
laganna í South River Band til að festa í sessi glæsilega
tónlistarhátíð með heimshornatónlist. „Við fórum á al-
þýðutónlistarhátíð í Skandinavíu fyrir nokkrum árum og
fannst vanta að þjóðlagatónlist væri gert hærra undir
höfði á Íslandi. Nú er hátíðin okkar að festa sig í sessi og
við vonum að hún stækki með hverju árinu.“
Með alþjóðlegum blæ
Í gírnum South River Band tekur sér stutt hlé frá æf-
ingu og stillir sér upp fyrir ljósmyndara.