Morgunblaðið - 14.04.2012, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 14.04.2012, Blaðsíða 4
Guðni Einarsson gudni@mbl.is Íslensk stjórnvöld leggja það í hend- ur EFTA-dómstólsins að ákveða hvort meðalganga framkvæmda- stjórnar Evrópusambandsins (ESB) verði leyfð í Icesave-málinu. Þetta kemur fram í svari sem íslensk stjórnvöld sendu forseta EFTA- dómstólsins í gær. Utanríkisráðuneytið segir svarið vera byggt á ráðgjöf Tims Ward, að- almálflytjanda, og málflutnings- teymisins sem skipað var honum til ráðgjafar. „Aðalmálflytjandinn og málflutningsteymið hafa fjallað ýtar- lega um málið. Mörg sjónarmið komu þar til skoðunar en þegar til þess var litið að málflutningi fram- kvæmdastjórnarinnar yrði ekki á annan hátt svarað skriflega var það einróma niðurstaða þeirra að það þjónaði best hagsmunum Íslands að leggjast ekki gegn meðalgöngu hennar í málinu,“ segir í tilkynningu ráðuneytisins. „Ég vissi nú bara um þetta þegar þetta kom í fréttum,“ sagði Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, þegar hún var spurð í RÚV í gær- morgun um hvenær hún hefði frétt af kröfu framkvæmdastjórnar ESB um meðalgöngu. Fram hefur komið að utanríkisráðuneytinu var tilkynnt um kröfuna með bréfi 27. mars s.l. Utanríkismálanefnd frétti einnig af málinu í fjölmiðlum 11. apríl. Össur Skarphéðinsson, utanríkis- ráðherra, sagði í samtali við mbl.is í gær að hann hefði gert ráð fyrir því að þingmenn fylgdust með málinu. Þá sagði hann sérstakar formlegar tengingar vera við ráðuneyti ann- arra ráðherra í gegnum málsvarn- arteymið. „Ég taldi að það væri nóg,“ sagði Össur. Hann kvaðst hafa komið svari stjórnvalda til ríkis- stjórnarinnar um leið og hann fékk það í hendur (aðfaranótt 12. apríl). Einnig kvaðst hann hafa átt frum- kvæði að því að tala við formann ut- anríkismálanefndar um málið. „Það ætti ekki að koma neinum á óvart að ESB hefur óskað eftir með- algöngu í þessu máli,“ sagði Magnús Orri Schram, formaður þingflokks Samfylkingarinnar. Hann benti á orð Margrétar Einarsdóttur lektors í Morgunblaðinu í gær og Jóhann- esar Karls Sveinssonar, eins lög- manna Íslendinga í málinu, í RÚV í gær. Þetta geri okkur kleift að svara skriflega með greinargerð. „Það er sérstakt að menn sem vildu dómstólaleiðina skuli nú vakna upp við vondan draum þegar gagn- aðilinn í málinu snýst til varnar,“ sagði Magnús Orri. Hann sagði að fyrir sér væru Icesave og ESB-um- sóknin tvö aðskilin mál og ekki ætti að tengja þau saman. Icesave sé upp- gjör við fortíðina, hrunið og afleið- ingar þess. Umsóknin um ESB-aðild snúist um hvort þjóðin fái að taka af- stöðu til samnings. „Hagsmunir Ís- lands snúast um að ná sem bestum samningi og leggja hann fyrir þjóð- ina,“ sagði Magnús Orri. Hann sagði þingflokksfund Sam- fylkingarinnar í gær hafa verið „venjulegan“ fund þar sem farið var yfir stöðu þingmála og vikuna fram- undan. Beiðni framkvæmdastjórnar ESB um leyfi til meðalgöngu í Ice- save-málinu fyrir EFTA-dómstóln- um var ekki rætt á þingflokksfund- inum, að sögn Magnúsar Orra. EFTA-dómstólnum falin ákvörðunin  Össur gerði ráð fyrir því að þingmenn fylgdust með málinu Jóhanna Sigurðardóttir Össur Skarphéðinsson Aðkoma ESB » Meginmunurinn á meðal- göngu og skriflegri greinar- gerð er að stjórnvöld munu geta svarað sérstaklega af- stöðu sem fram kemur við meðalgöngu sem ekki er hægt þegar hún kemur eingöngu fram í skriflegri greinargerð. » Stór hluti málsmeðferðar fyrir EFTA-dómstólnum er skriflegur. Munnlegur mál- flutningur er yfirleitt stuttur. 4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. APRÍL 2012 Skúli Hansen skulih@mbl.is „Það er algjörlega óásættanlegt að þingið sé ekki upplýst um svo stóra ákvörðun ESB og á við hér,“ segir Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, og bætir við: „Það sem mér finnst skipta mestu máli við þessa ákvörðun ESB er það að ESB tekur það fram í fyrsta skipti í þessu bréfi að það telji sig hafa beina hagsmuni af því með hvaða hætti dómur fellur í málinu,“ segir Bjarni og bendir á að fram til þessa hafi ESB sagt að það liti á málið sem tvíhliða deilu sem það hafi ekki ætlað að skipta sér að. „Mér finnst hann hafa gert rétt í því að viðurkenna að hann hafi gert mis- tök,“ segir Bjarni, aðspurður hvort hann telji að utanríkisráðherrann eigi að axla ábyrgð á því að hafa ekki upplýst þingheim um málið. Hann segir þetta fyrst og fremst vera klúður af hálfu ráðherrans. „Það er ekki hægt að bægja frá sér þeirri hugsun að utanríkisráðherrann hafi viljað halda þessu undir yfirborðinu til þess að skapa frið um ESB-við- ræðurnar,“ segir Bjarni. Hann bendir einnig á að málið gefi tilefni til þess að fara yfir stöðuna í aðild- arviðræðunum. „Það má segja að þetta tiltekna mál sé eitt í röð margra mála sem gefa tilefni til að fara yfir stöðuna í aðildarviðræðun- um,“ segir Bjarni. „Fjandsamleg aðgerð“ „Ég er þeirrar skoðunar að það hafi ekki verið nein ástæða til annars en að mótmæla aðkomu ESB,“ segir Birgir Ármansson, þingmaður Sjálf- stæðisflokksins, um þá ákvörðun ís- lenskra stjórnvalda að andmæla ekki meðalgönguaðild ESB í Ice- save-málinu. Að sögn Birgis er ljóst að pólitískar afleiðingar málsins eigi eftir að koma til umræðu á Alþingi enda liggi nú fyrir að ESB vilji ger- ast aðili að því máli sem ESA rekur nú gegn Íslandi. „Það er auðvitað fjandsamleg aðgerð af hálfu ESB,“ segir Birgir og bendir á að þetta sé í fyrsta skiptið sem ESB óski eftir slíkri aðild hjá EFTA-dómstólnum. Birgir segir það alvarlegt hvernig haldið hefur verið á þessu máli af hendi utanríkisráðherra hvað varðar samráð og upplýsingagjöf. „Núna er hinsvegar staðan sú að við þurfum fyrst og fremst að ræða hvaða áhrif þessi aðgerð ESB hefur á gang aðildarviðræðna Íslendinga við það,“ segir Birgir og bætir við að hann sé sannfærður um það að þessi aðgerð ESB hafi orðið til þess að fjölga þeim inni á þingi sem vilja taka aðildarviðræðurnar til endur- skoðunar. „Á það hlýtur að reyna með einum eða öðrum hætti á næstu dögum,“ segir Birgir. Vilja ræða stöðu viðræðna  Bjarni telur málið gefa tilefni til endurskoðunar á aðildarviðræðunum Bjarni Benediktsson Birgir Ármannsson Skannaðu kóðann til að sjá viðtal við utanríkisráðherra. Lífeyrissparnaður með trausta og góða ávöxtun Landsbankinn býður fjölbreyttar leiðir í lífeyrissparnaði og er traustur bakhjarl. Íslenski lífeyrissjóðurinn og Lífeyrisbók Landsbankans hafa skilað góðri ávöxtun undanfarin þrjú ár.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.