Morgunblaðið - 14.04.2012, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 14.04.2012, Blaðsíða 39
MINNINGAR 39 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. APRÍL 2012 ✝ Anna MartaHelgadóttir fæddist í Tröð í Kollsvík við Pat- reksfjörð 13. nóv- ember 1924. Hún lést á Heilbrigð- isstofnun Blönduóss 10. apríl sl. Foreldar hennar voru Ásbjörn Helgi Árnason, f. 13. apríl 1889, d. 1965 og Sig- rún Össurardóttir, f. 6. maí 1898, d. 1977. Anna var þriðja í röð sex systkina sem eru Guðrún f. 1919, Árni f. 1922, d. 2011, Ólafur Helgi f. 1925, d. 1986, Halldóra f. 1930, Kristrún Björt f. 1939. Tæplega ársgömul fór Anna í fóstur til ömmu sinnar og afa, Önnu Guðrúnar Jónsdóttur, f. 1872 d. 1967 og Össurar Guð- bjartssonar f. 1866, d. 1950, ástæða þessa voru veikindi móð- ur hennar sem þá var ófrísk að sínu fjórða barni. Guðrún og Öss- ur áttu þrettán börn og var hún Rögnvaldsdóttur. 6) Guðmundur Elías f. 1961, kvæntur Guðrúnu Kjartansdóttur. 7) Birgir Líndal Ingþórsson f. 1963, kvæntur Sig- ríði Bjarnadóttur. Auk þess ólu þau upp elsta barnabarn sitt, Önnu Bryndísi Sigurðardóttur f. 1967, gift Þorsteini Gíslasyni. Barnabörnin eru 24, barna- barnabörnin eru 31 og barna- barnabarnabarnabörnin 2. Anna fór til náms í Kvennaskólann á Blönduósi 1945-1946, þar kynnt- ist hún manni sínum Ingþóri en hann hafði keypt jörðina Uppsali í Sveinsstaðahreppi ásamt for- eldrum sínum 1943. Í ágúst 1946 flytur Anna í Uppsali til Ingþórs og stunduðu þau hefðbundinn búskap, fyrst í félagi við foreldra Ingþórs en keyptu svo alla jörð- ina þegar Sigurður faðir hans lést og bjuggu þar meðan heilsa og kraftar leyfðu. Síðustu árin dvaldi hún á Hnitbjörgum dval- arheimili og Heilbrigðisstofnun Blönduóss. Meðfram húsmóður- störfum og uppeldi stórs barna- hóps var Anna virkur meðlimur í Kvenfélagi Sveinsstaðahrepps og í Kór Þingeyrakirkju. Útför hennar fer fram frá Þingeyrakirkju laugardaginn 14. apríl 2012 og hefst athöfnin kl. 14. því fjórtánda barn- ið sem þau ólu upp. Þau bjuggu á Lág- anúpi í Kollsvík og síðar í Dýra- og Ön- undarfirði. Anna giftist 10. maí 1947 Ingþóri Líndal Sig- urðssyni f. 24. nóv- ember 1920 að Hólabaki í Húna- þingi, hann lést 1998. Foreldrar hans voru Húnvetningar, þau Kristbjörg Kristmundsdóttir f. 1886, d. 1976 og Sigurður Líndal Jóhannesson f. 1890, d. 1961. Saman eignuðust þau sjö börn sem eru: 1) Sigurður Helgi f. 1947, kvæntur Gunnhildi Lár- usdóttur. 2) Kristmundur Ólafur Jónas f. 1950, í sambúð með Her- dísi Sigurbjartsdóttur. 3) Sigrún Björg f. 1952, gift Hjálmari Magnússyni. 4) Þorsteinn Rafn f. 1955, kvæntur Sigurbjörgu Mar- íu Jónsdóttur. 5) Magnús Huldar f. 1957, í sambúð með Margréti Þegar vorið fyllir loftið með birtu og fuglasöng, kveð ég góða móður, munabjört er minningin um mæta mannkostakonu sem stóð af einstakri prýði sína lífs- vakt. Rætur hennar lágu til Vest- fjarða og voru tignarfjöllin þar greypt í huga hennar enda var hún mikill náttúruunnandi, hún minntist oft ömmu sinnar sem hún ólst upp hjá með mikilli virðingu og gleði, þar lá grunnurinn að þeim mikla andlega styrk og yf- irvegun sem einkenndi hana alla tíð. Stundum örlaði á örlitlum söknuði yfir að hafa ekki alist upp hjá foreldrum og systkinum en hin góðu samskipti og hjálpsemi milli systkinanna á fullorðinsárum bætti það upp, þegar þau hittust var gleðin við völd. Staðfestan er mér efst í huga er ég hugsa til móður minnar, stað- festan gagnvart okkur systkinun- um, bjargfastur áreiðanleiki, traust sem endurómaði trúar- sannfæringu hennar. Arfi forferð- anna, gildum þjóðarinnar skilaði hún til okkar. Koma skyldi fram við alla sem jafningja og meta hið góða í fari sérhvers manns, kær- leikurinn varðaði veginn. Á þess- um tímamótum þegar litið er til baka sést hvað mikið var skilið eft- ir; skilningur á trú mömmu, trúnni á að sérhver maður skyldi takast á við áraun lífsins, stælast af mót- læti og gæta auðmýktar í sigrum. Hún var góð fyrirmynd en svo er það okkar að vinna úr vega- nestinu. Mamma var einstök með börn, þau löðuðust að henni eins og seg- ull, þótt hún eignaðist fullt af barnabörnum, var nóg pláss fyrir önnur börn. Börn áttu hjá henni öruggt skjól og hlýju, það var allt- af tími til umræðu og taka í spil og mæta hverju barni á þess forsend- um, svo hverju og einu fannst það vera best. Lífsstarf mömmu var húsmóð- urstarf á stóru og gestkvæmu sveitaheimili, það þurfti að hafa skipulag á hlutunum. Hún var góður gestgjafi, listakokkur og lagði alúð við matseldina og ekki var verra, að fá sér sérrístaup úr flöskunni í búrinu í lok góðs kvölds þegar störfum lauk. Eldhúsið var hjarta hússins, þar söng hún við störf sín enda mikill unnandi tón- listar og hafði einstaklega gott lundarfar og var mikill gleðigjafi. Í eldhúsinu var oft líf og fjör, margt um manninn og mikið hleg- ið og skrafað og út um eldhúss- gluggann er einstakt útsýni yfir á Jörundarfellið og yfir sveitina. Þar var líka hitamælirinn á bæn- um, festur utan á eldhússglugg- ann við opnanlega fagið og sýndi hann ágætan hita enda var ávallt gott veður hjá mömmu þangað til þakplöturnar fóru að losna af hús- inu í einni suðvestanáttinni sem var oft nokkuð ónæðissöm. Mamma var alltaf kletturinn sem allt braut á í þeim ólgusjó sem lífið í sveitinni getur verið, hún var límið sem hélt öllu saman, nær- ingin sem aðrir þurftu svo lífið gengi upp. Hún var ósérhlífin, vinnusöm og vandvirk og gekk í öll störf bæði úti og inni og er mér t.d. mjög minnisstætt hvað hún var lagin við að hjálpa kúm og kindum sem áttu í erfiðleikum við burð afkvæma sinna. Mamma var mikill húmoristi, sagði sögur og brandara og svörin hnyttin, húmorinn hvarf aldrei, ekki einu sinni í erfiðum veikind- um hennar síðustu tíu árin, þar sem hún sýndi mikinn styrk og æðruleysi. Að lokum vona ég að hinn já- kvæði andi, glaðværð og dillandi hlátur þinn fái að fylgja okkur öll- um á lífsleiðinni. Sigrún Björg Ingþórsdóttir. Elskuleg amma mín og fóstur- móðir, Anna Marta Helgadóttir, er látin. Þegar ég lít yfir vegferð okkar saman er hún alls staðar ná- læg sem amma, móðir, leiðbein- andi og gleðigjafi. Ein af fyrstu minningunum um hana er þegar ég hef líklega verið þriggja ára en þá man ég eftir henni sitjandi á rúmstokknum að kenna mér Ástarfaðir himinhæða, öll erindin auðvitað, sem ég kann ennþá og ýmsar bænir sem hafa eitthvað skolast til hjá mér í áranna rás. Ég kom til afa og ömmu í fóstur á sjötta ári og þá hófst samleið okkar fyrir alvöru. Ég sitjandi við eldhúsborðið að stauta mig fram úr Dísu ljósálfi og amma að sýsla í eldhúsinu en heimanám mitt fór fram við þetta borð alla mína skólagöngu. Heimilið var ríkið hennar en þar var endalaus straumur af fólki sem kom í heim- sókn til lengri eða skemmri tíma, sveitungar og krakkar í sumar- dvöl og svo föðursystkini mín, tek- ið var á móti öllum með brosi á vör, ilmandi kaffi og nýbökuðu bakkelsi. Þegar ég lít til baka dáist ég að endalausri eljusemi ömmu minnar og umhyggju hennar fyrir öllum og öllu sem var í hennar umsjá og ég veit í dag að verkefnalisti henn- ar var óendanlega langur þegar mest var um að vera. Hún naut góðrar heilsu mestalla ævi sína en ekki síst var það þolinmæði henn- ar og glaðlyndi sem léttu henni störfin. Amma kenndi mér snemma að engin verk sem þarf að vinna eru leiðinleg og var það gott veganesti út í lífið. Hún var börnum mínum hlý og notaleg langamma og þau áttu með henni góðar stundir eins og ég í hvert skipti sem við hittumst en sam- band okkar einkenndist alla tíð af kærleika og vináttu. Og ekki má gleyma hlátrinum, gleðin í sam- skiptum okkar er það sem mér er efst í huga nú þegar komið er að leiðarlokum og hugur minn og hjarta er þakklátt fyrir að hafa átt samleið með góðri og elskulegri konu. Anna Bryndís Sigurðardóttir og fjölskylda. Þegar mér barst fregnin um að nú væri hún Anna að deyja fylltist hugur minn depurð, en í gegnum hugann runnu einnig hugsanir sem við flest hugsum sennilega þegar einhver sem hefur verið veikur lengi fær hvíld. Ég naut þeirrar gæfu að fá að vera samferða Önnu stóran hluta lífs míns. Fyrst þegar ég kom 12 ára í sveit til Önnu og Ingþórs. Ég man vel þessi fyrstu sumur í sveit- inni. Fyrsta sumarið var ég ráðin til þess að hjálpa Önnu innanbæj- ar. Með henni bakaði ég, vaskaði upp meðan Anna var í fjósinu, við elduðum saman og þrifum. Stund- irnar með Önnu eru ógleymanleg- ar, hún sagði vel frá og hafði oft skemmtilegt sjónarhorn á lífið og tilveruna. Fyrst og fremst var Anna einstaklega góð manneskja og ég held að gæska hennar og góðmennska hafi haft varanleg áhrif á mig. Anna sinnti heimilinu einstak- lega vel, hún var gestrisin og sýndi gjarna ást og umhyggju í gegnum mat. Hún lagði á minnið hvað hverjum og einum fannst gott og þegar hún vildi gera sér- staklega vel við sína hafði hún uppáhaldsmatinn á borðum. Hjá mér var það kakósúpa, en kakó- súpan hennar Önnu var það besta sem ég fékk þarna sem barn í sveit og fram á fullorðinsár. Þegar gesti bar að garði var þeim fagnað einlæglega og Anna veitti vel, enda var heimilið gestkvæmt. Jafnvel eftir að Anna lagðist á sjúkradeild á Blönduósi vildi hún áfram helst veita vel og fannst leitt að geta ekki boðið upp á kaffi og kökur. Mörgum sumarfríum og helg- um eyddum við í sveitinni og urðu stundirnar á eldhúsbekknum hjá Önnu ótalmargar í gegnum árin. Anna rifjaði upp liðnar stundir, eins og þegar börnin voru ung á fyrstu búskaparárum hennar og Ingþórs. Hún sagði mér að ekki hefði verið rennandi vatn og hún þurfti að sjóða bleyjur í stórum potti úti á túni. Þegar kaldast var á vetrum þá sauð í pottinum sunn- an megin en fraus í honum norðan megin sagði Anna. Ég varð hugsi yfir þeirri botnlausu vinnu sem hún hafði þurft að inna af hendi, þó svo að ég vissi að fært hefði verið í stílinn, og spurði hana hvort hún hefði verið hamingju- söm. Anna brosti og sagðist ekki hafa haft neinn tíma til þess að hugsa um það. Þetta svar var að því er mér finnst einkennandi fyr- ir æðruleysi Önnu. Margar fleiri sögur sagði Anna mér, frá æsku sinni fyrir vestan, væntingum sín- um og vonum. Sögurnar ein- kenndust af kímni og ánægju af því að hafa sinnt sínum vel. Ég man líka einhverju sinni þegar ég kom hrakin og blaut úr göngum, hafði blotnað og orðið illa kalt. Hún hjálpaði mér að ná stíg- vélunum af blautum bólgnum fót- um og nuddaði yl og lífi í kalda fætur. Gaf mér heitt að drekka, þessi artarsemi sem var henni svo eðlislæg, yljaði mér og fyllti vænt- umþykju gagnvart þessari góðu konu. Því miður átti Anna við erfið veikindi að stríða síðustu árin, en einnig því tók hún af æðruleysi. Fórum við nokkrar ferðir saman til læknis við upphaf veikindanna og komu mannkostir Önnu þá ber- lega í ljós, hún kvartaði aldrei og tók því sem að höndum bar. Kæra Anna, ég þakka þér sam- fylgdina. Börnum, barnabörnum og öðr- um aðstandendum votta ég samúð mína. Sylvía. Fegurð, vinsemd og hjartahlýja eru orðin sem koma upp í hugann þegar sest er niður og hugsað til þín amma mín. Þú varst einstök kona, vinmörg og öllum sem þér kynntust þótti óendanlega vænt um þig. Þú skildir eftir þig bros- andi andlit sama hvert þú fórst. Ég sat núna um páskana inni í stofu í gamla bænum þeirra afa og ömmu og skoðaði gamlar og nýjar myndir af ömmu og það skipti engu máli frá hvaða ári þær voru, með hverjum amma var eða hvað hún var að gera, hún var alltaf brosandi. Maður sá hvað hún lifði lífinu á réttan hátt. Hún var sann- ur vinur allra, umhyggjusöm gagnvart öðrum og kærleikur og vinátta manna á milli var nokkuð sem skipti ömmu miklu máli. Maður hugsar til gömlu góðu tímanna í sveitinni hjá ykkur afa, þar var alltaf gott að vera. Um leið og síðasta vorprófið var búið í skólanum var ég farinn norður til ykkar í sauðburðinn. Þar var alltaf nóg að starfa frá morgni til kvölds og dagarnir hvergi fljótari að líða. Amma var dugleg og iðin í starfi og féll henni aldrei verk úr hendi, sama hvort það var við heimilis- störf eða útistörf í sveitinni. Amma var mild og blíð kona og var það ekki hennar að ráðskast eða stjórna öðrum, en ein regla var ófrávíkjanleg í augum ömmu og sú var að enginn skyldi fara svangur frá matarborðinu. Enda aldrei hætta á því, því maturinn var alltaf góður og miklu meira en nóg til handa öllum. Og eitt er víst í dag, að það fer enginn svangur frá matarborðinu á himnum. Hvíl í friði elsku amma og takk fyrir allar góðu stundirnar sem við áttum saman. Minning þín mun lifa með okkur öllum um ókomin ár. Þín er sárt saknað. Magnús Þór Hjálmarsson. Amma, þú varst svo góð Áttir með sanni þér enga líka Gafst heiminum svo mikið Gerðir alla í kringum þig af gleði ríka Nú ert þú farin og við söknum þín svo mikið En samt erum við ei svo leið Því við þér tekur himnaríkið Og finnur þú þar afa, sem eftir þér beið Amma, takk fyrir allt sem þú gafst okkur, og við vitum að þú dvelur á gleðiríkum stað, því alltaf þar sem þú ert er gleði í kring. Megi Guð, afi og allir hinir taka fallega á móti þér, við kveðjum þig með söknuði og gleði, því við vit- um það, að þannig hefðir þú viljað að við kveddum þig. Ingþór Hjálmar Hjálmarsson. Anna Marta Helgadóttir ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGRÍÐUR SAMSONARDÓTTIR, Hraunvangi 7, Hafnarfirði, lést á Hrafnistu Hafnarfirði föstudaginn 30. mars. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Alúðarþakkir fyrir hlýhug og auðsýnda samúð. Starfsfólk deildar 3b á Hrafnistu Hafnarfirði fær sérstakar þakkir fyrir frábæra umönnun. Halldóra Hermannsdóttir, Ásmundur Jónasson, Aðalheiður Hermannsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir og amma, ÞÓRUNN E. HAFSTEIN, lést á gjörgæsludeild Landspítalans Fossvogi fimmtudaginn 12. apríl. Útför hennar fer fram frá Dómkirkjunni föstudaginn 20. apríl kl. 15.00. Guðlaugur Björgvinsson, Ásta Margrét Guðlaugsdóttir, Einar Ingi Ágústsson, Hildigunnur Sigrún Guðlaugsdóttir, Gunnlaugur Árnason, Þórunn Björk Guðlaugsdóttir, Erna Guðlaugsdóttir, Guðmundur Gunnarsson og barnabörn. ✝ Okkar ástkæri SIGURÐUR JÚLÍUSSON, Álfaskeiði 72, Hafnarfirði, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi þriðjudaginn 10. apríl. Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju miðvikudaginn 18. apríl kl. 13.00. Ingibjörg Ása Júlíusdóttir, Jóhannes Þórðarson, Ásta Haraldsdóttir, Steinþór Nygaard, Erla Júlíusdóttir, Júlíus, Valgerður, Ásbjörn Ingi, Jón Páll, Sigurður Þór, Erlendur, fjölskylda og vinir. ✝ Elskulegur faðir minn, tengdafaðir, afi og langafi, PÉTUR KARL ANDRÉSSON húsasmíðameistari, Hringbraut 50, Reykjavík, lést á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund laugardaginn 7. apríl. Útför hans fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 17. apríl kl. 15.00. Ólafur Örn Pétursson, Inger Steinsson, Helgi Ólafsson, Inger Rós Ólafsdóttir, Baldvin Þór Baldvinsson og langafabörn. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÓLÍNA KRISTJÁNSDÓTTIR frá Syðra-Langholti, Hrunamannahreppi, lengst af búsett í Bólstaðarhlíð 33, Reykjavík, lést á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund föstudaginn 30. mars. Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Sérstakar þakkir fær starfsfólk á deild A3 á Grund og Lilja Ólafsdóttir fyrir alúð og vináttu. Þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á minningarkort Grundar. Guðni Kristinsson, Dagbjört Þyri Þorvarðardóttir, Kristján Kristinsson, Birna Guðbjörnsdóttir, barnabörn og barnabarnabarn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.