Morgunblaðið - 06.07.2012, Blaðsíða 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. JÚLÍ 2012
Sextíu ára búfræðingar frá Hólaskóla, flestir um átt-
rætt, komu saman á Hólum í Hjaltadal nýverið til að
fagna tímamótunum. Árið 1952 útskrifuðust 28 búfræð-
ingar frá skólanum, forvera Háskólans á Hólum, og
síðan þá hafa þeir hist reglulega ásamt mökum. Ekki
hefur það endilega alltaf verið á Hólastað, m.a. á
Laugum í Sælingsdal og í Svartaskógi í Jökulsárhlíð,
en að þessu sinni þótti við hæfi að koma heim til Hóla
á 130 ára afmælisári skólans. Buðu hinir öldnu Hóla-
sveinar nýjum rektor Hólaskóla, dr. Erlu Björk Örn-
ólfsdóttur, til kvöldverðar og leystu hana út með veg-
legum blómvendi.
Farin var dagsferð um Skagafjörð austanverðan, þar
sem Samgöngusafnið í Stóragerði var m.a. heimsótt,
síðan ekið í Héðinsfjörð og fengið sér kaffi á Siglufirði.
Lauk dagskránni með samkomu á Hólum seinna kvöld-
ið og að sjálfsögðu hituðu Hólasveinar sig upp á Bjór-
setri Íslands, sem starfrækt er á Hólastað.
Hyggst hópurinn koma saman næst eftir tvö ár á
Skjöldólfsstöðum á Jökuldal.
Hólasveinar Sextíu ára búfræðingar frá Hólaskóla, ásamt mökum, í sumarbústað Trausta Pálssonar í Hjaltadal,
eins af Hólasveinunum frá 1952. Hópurinn hyggst koma saman næst eftir tvö ár á Skjöldólfsstöðum á Jökuldal.
Sextíu ára búfræðingar frá Hólaskóla
ÚTSALAN
ER
HAFIN
Bæjarlind 6, sími 554 7030
Eddufelli 2, sími 557 1730
www.rita.is Ríta tískuverslun
Útsalan
er hafin
Flott föt fyrir
flottar konur
Stærðir 40-58
Skeifan 8 | 108 Reykjavík | sími 517 6460 | www.belladonna.is
Sjá sölustaði
á istex.is
Ný prjónabók
LOPI 32
Guðni Ágústsson, fyrrverandi ráð-
herra og formaður Framsóknar-
flokksins, íhugar nú hvort hann eigi
að höfða mál gegn Davíð Þór Jóns-
syni, guðfræðingi og fræðslufulltrúa
Austurlandsprófastdæmis. Guðna
mislíkar mjög ummæli í grein Davíðs
Þórs, Að kjósa lygara og rógtungu,
sem Davíð Þór birti á heimasíðu
sinni daginn fyrir forsetakosning-
arnar. Guðni ræddi málið við Agnesi
M. Sigurðardóttur, biskup Íslands, í
gær.
„Maður gerir meiri kröfur til
manna sem hafa gengið í guðfræði-
deild og lært siðfræði og ætla að
boða hið góða orð kirkjunnar en ann-
arra. Það hefur Davíð Þór gert og
hann býður sig sjálfsagt síðar fram
til prestvígslu. Hann hefur fengið
starf hjá kirkjunni við að þjóna börn-
um og unglingum sem fræðslu-
fulltrúi. Ég geri
miklar kröfur til
manna í þessari
stöðu og sætti
mig ekki við svo
persónulegar sví-
virðingar og níð
um forseta lands-
ins sem þarna
birtust. Svo væn-
ir hann mig um að
hafa starfað í
nasistahreyfingu. Guð hjálpi mér!
Sannarlega hef ég haft skömm á nas-
istum alla tíð og aldrei gengið þeim á
hönd. Ég hef verið í Framsóknar-
flokknum, þjóðkirkjunni og ung-
mennafélagshreyfingunni,“ sagði
Guðni. Hann kvaðst ekki sætta sig
við að vera borinn slíkum sökum og
hafa því talað við biskup Íslands.
„Ég sagði við hana að mér þætti
þetta vera ófær framkoma hjá henn-
ar þjóni. Ég gerði kröfur til þess sem
heiðarlegur maður og kristinn að
þessi maður gjaldi fyrir orð sín bæði
í minn garð og forsetans.“
Guðni sagðist aðspurður ekki hafa
haft samband við Davíð Þór vegna
greinarinnar. „Ég hef ekkert við
svona menn að tala. Þetta eru slíkar
dylgjur og dónaskapur að annað-
hvort hefur maðurinn ekki verið alls-
gáður eða hann stríðir við eitthvað
sem gerir hann óhæfan til að takast á
við þau verkefni sem hann sinnir.“
Guðni sagðist hafa lært að sætta
sig við gagnrýni og átök á hinum
pólitíska velli en nú hafi sér verið
brugðið. „Auðvitað íhuga ég hvort
svona mann eigi ekki að draga fyrir
dómstóla landsins. Ég geri þær kröf-
ur að kirkjan taki á þessu vanda-
máli.“ gudni@mbl.is
Ofbýður ummæli
í sinn garð og forsetans
Guðni Ágústsson íhugar málsókn gegn Davíð Þór Jónssyni
Guðni
Ágústsson
- nýr auglýsingamiðill
Tilkynnt var um
nokkur innbrot á
höfuðborgar-
svæðinu í gær-
morgun, skv.
upplýsingum lög-
reglu. Um inn-
brot í bifreiðar,
heimili og vinnu-
skúr er að ræða.
Í Kópavogi var
brotist inn í tvær
rútur. Í Grafarvogi var brotist inn í
vinnuskúr hjá Vinnuskólanum og
unnar skemmdir. Brotist var inn á
heimili í austurborginni þar sem
fjármunum og fatnaði var stolið.
Þá var tilkynnt um innbrot í bif-
reið í Hafnarfirði og skemmdar-
verk voru unnin í Víðistaðaskóla.
Tilkynnt um mörg
innbrot og skemmd-
arverk í gærmorgun
Innbrot Nokkur
voru tilkynnt í gær.
Karlmaður um þrítugt var tekinn
fyrir ofsaakstur á Miklubraut í
Reykjavík á fimmta tímanum síð-
degis sl. miðvikudag. Skv. upplýs-
ingum lögreglu í gær ók maðurinn
bifhjóli á 191 km hraða austur
Miklubraut, á milli Kringlumýrar-
brautar og Háaleitisbrautar, en
þarna er 60 km hámarkshraði, að
því er segir í tilkynningu frá lög-
reglu. Maðurinn, sem hefur alloft
áður gerst sekur um umferðar-
lagabrot, var sviptur ökuréttindum
á staðnum.
Á bifhjóli á 191 km
hraða á Miklubraut
Malbikunarframkvæmdir eru fyrir-
hugaðar á Hringbraut og Miklu-
braut í Reykjavík í dag. Um er að
ræða kaflann til austurs frá Suður-
götu að Lönguhlíð, en áætlað er að
verkið hefjist um níuleytið og að því
verði lokið fyrir klukkan fjögur síð-
degis. Vegna framkvæmdanna á
þessum vegkafla má búast við
minniháttar umferðartöfum, að því
er fram kemur í tilkynningu frá
lögreglunni.
Morgunblaðið/Ómar
Bik Malbika á frá Suðurgötu að Lönguhlíð.
Búast má við nokkr-
um umferðartöfum