Vestfirðir - 09.11.2012, Blaðsíða 4

Vestfirðir - 09.11.2012, Blaðsíða 4
4 9 nóvember 2012 Kór Átthagafélags Stranda- manna starfar af krafti Aðventuhátíð í Bústaðakirkju 16. desember nk. Kór Átthagafélags Stranda-manna var stofnaður í Reykja-vík árið 1958 og hefur starfað nær óslitið síðan, og er þar með elsti starfandi átthagakór í Reykjavík. Kór- félagar eru brottfluttir Strandamenn, ættingjar þeirra vinir og vandamenn og er allt gott söngfólk velkomið í kórinn. Kórinn heldur árlega vortónleika í Reykjavík auk þess að fara út á land á hverju vori til tónleikahalds. Sem dæmi þá hélt kórinn, ásamt Rökkurkórnum úr Skagafirði, tónleika á Hólmavík og Ísafirði árið 2007. Í desember ár hvert heldur kórinn aðventuhátíð þar sem flutt eru jólalög og jólahugvekja og þar kemur einnig fram barnakór, sem kemur saman í nokkur skipti til að æfa jólalög fyrir aðventuhátíðina. Næsta aðventuhátíð kórsins verður haldin í Bústaðakirkju sunnudaginn 16. des- ember nk. og hefst kl. 16:30, að lokinni hátíð er gestum boðið upp á veglegt kaffihlaðborð í safnaðarsal kirkjunnar. Haukur Guðjónsson, kórformaður, segir að kórinn hafi farið nokkrum sinnum út fyrir landssteinana til tón- lekahalds og hefur m.a. sungið við messu í Markúsarkirkjunni í Fen- eyjum sem og við styttu Jóns Sigurðs- sonar í tilefni af 90 ára afmæli félags sem kennt er við hann í Winnipeg í Kanada. Næsta vor stefnir kórinn á ferð til Pétursborgar í Rússlandi þar sem áætlað er að halda tónleika ásamt Karlakór Keflavíkur. Kóramót í Háskólabíói ,,Um mitt sumar 2011 hafði Birgir Kristjánsson úr Breiðfirðingakórnum samband með þá hugmynd að allir kórar sem kenna sig við átthagana, en þeir eru sjö talsins, haldi sameiginlegt kóramót í Reykjavík. Hugmyndin var góð og kórfélagar í Kór Átthagafélags Strandamanna voru strax tilbúnir til þátttöku. Í kjölfarið var haft samaband við formenn hinna átthagakóranna sem tóku vel í hugmyndina og eftir nokkra undirbúningsvinnu var ákveðið að halda sameiginlegt kóramót, sem síðan var haldið í Háskólabíói 14. ok- tóber í haust,” segir Haukur Guðjóns- son. Kórarnir sem þar tóku þátt voru; Breiðfirðingakórinn, Húnakórinn, Skagfirska Söngsveitin, Sönghópur Átthagafélags Vestmannaeyinga, Árnesingakórinn í Reykjavík, Söngfé- lag Skaftfellinga og Kór Átthagafélags Strandamanna en lögin sem hann söng voru „Ég er brott frá þér bernska” við lag Helga R. Einarssonar og texta Hall- dórs Laxness, „Tvær stjörnur” við lag og texta Megasar og „Sjómannapolki” við lag J. Vejvoda og texta Valdimars Hólm Hafstað. Í lokin sungu allir kór- arnir saman, eða um 300 manns, tvö lög, fyrra lagið var „Á Sprengisandi” við lag Sigvalda Kaldalóns og texta Gríms Thomsen og síðara lagið var „Úr útsæ rísa Íslands fjöll” við lag Páls Ísólfssonar og texta Davíðs Stefáns- sonar. Kynnir á kóramótinu var Níels Árni Lund og meðan að hver kór kom sér fyrir á sviðinu sagði hann stuttlega frá heimabyggð viðkomandi kórs og því helsta úr sögu hans og starfsemi. Söngurinn og kynningin var hljóðrituð og verður hægt að nálgast eintak á CD diski hjá kórfélögum hvers kórs. Haukur segir kóramótið hafa verið afar vel heppnað og því hin besta söng- skemmtun og góð tilbreyting við hið hefðbunda kórastarf. VestFIRÐIR 2. tBL. 1. ÁRGANGUR 2012 Útefandi: Fórspor ehf., Suðurlandsbraut 54, 108 Reykjavík. Ábyrgðarmaður: Ámundi Ámundason, auglýsingastjóri: Ámundi Ámundason sími 824-2466, netfang amundi@fotspor.is. auglýsingar: Sími: 578-1190 & netfang: auglysingar@fotspor. is. ritstjóri: Geir A. Guðssteinsson, sími: 898-5933 & netfang: geirgudsteinsson@ simnet.is. Prentun: Ísafoldarprentsmiðja, 3.000 eintök. dreifing: Íslandspóstur. FRÍBLAÐINU VESTFIRÐIR ER DREIFT Í 3.000 EINTÖKUM Á ÖLL HEIMILIOG FYRIRTÆKI Á VESTFJÖRÐUM Bændur á Vestfjörðum hafa oft átt á brattann að sækja hvað varðar þjónustu við atvinnugreinina. Nýgerðir búvörusamningar hafa mikið verið til umræðu í stéttinni og hvaða þýðingu þeir hefðu fyrir landbún- aðinn í heild. Einnig hafa sameiningarmál leiðbeiningarþjónustu bænda verið vestfirskum bændum hugleikinn en oft hefur verið um langan veg að fara til að komast í samband við þá þjónustu. Við uppbyggingu ráðgjafaþjónustunnar sem nú stendur yfir er mikilvægt fyrir Vestfirðinga að gæta þess að hagsmunir jaðarbyggða séu ekki fyrir borð bornir. Kannski finnst bændum það engu máli skipta hvar leiðbeiningarþjónustan er staðsett, en er það svo? Rætt hefur verið um að staðsetja nýtt fyrirtæki í leiðbeiningarþjónustu á Hvanneyri, í háskólaumhverfinu þar í tengslum við Landbúnaðarháskólann. Það er auðvitað gott og blessað en stundum er hægt að segja, maður líttu þér nær. Árum saman hafa Vestfirðingar barist fyrir því að háskólasetrið á Ísafirði í samstarfi við Háskólann á Akureyri vaxi og dafni. Það gerist best, hraðast og með bestum árangri ef allir eru sammála um markmiðin. Því ættu bændur á Vestfjörðum að sýna þá framsýni og samstöðu að styðja við starfsemi háskólasetursins á Ísafirði með því að þar verði komið á fót leiðbeiningarþjónustu fyrir bændur sem jafnframt gæti verið í þjónustu við bændur víðar á landinu. Ásvaldur Magnússon, bóndi á Tröð, sagði á bændafundi nýverið að það væri markmið með nytjaskógrækt að búa til atvinnugrein sem skapaði mörg störf, og því ætti hún heima í nýju atvinnuvegaráðuneyti, ekki í umhverfisráðuneytinu. Undir það skal tekið. Skógrækt er að verða alvöru atvinnugrein á Íslandi, ekki gæluverkefni einstaka bænda sem heyrði undir umhverfissjónarmið. Möguleikar til skógræktar á Vestfjörðum eru víða góðir frá náttúrunnar hendi, en stuðning vantar víða við þá bændur sem hefja vilja hana. Það gerist miklu frekar í gegnum eða með stuðningi frá atvinnuvegaráðuneyti en frá umhverfisráðuneyti þar sem allt önnur sjónarmið og markmið eru ráðandi en t.d. markaðslögmál. Skuldaáþján er hlutskipti allt of marga í þessu þjóðfélagi, og finnst mörgum sem hjálp til handa heimilunum í landinu frá núverandi ríkisstjórn sem boðuð var þegar hún tók við völdum í apríl 2009 hafa látið á sér standa, jafnvel bóli alls ekkert á henni. Nú hefur skuldsettum heimilum þessa lands borist liðsauki frá Sigurði Hreini Sigurðssyni, sem höfðaði mál gegn Dróma sem innheimtir lán sem Frjálsi fjárfestingarbankinn og SPRON áttu, en Drómi hefur sam- þykkt endurútreikning lána með gengistryggingu sem og vaxtarbyrði þeirra. Nú þarf fólk sem er að sligast undir oki innheimtu á verðtryggðum lánum að skipa sér í sömu sveit og Sigurður Hreinn og krefjast endurútreiknings þessara lána. Það á ekki bara við Dróma, heldur einnig bankakerfið í heild sinni. Forsenda þess að gera búsetu á landsbyggðinni áhugaverðari en hún er í dag er að þar sé mögulegt að fjárfesta í íbúðarhúsnæði án þess að vera að sligast síðan áratugum saman undan verðtryggingu og vaxtarfjötrum. Það á ekki síst við um Vestfirði. Geir A. Guðsteinsson ritstjóri Leiðbeiningaþjónusta og skuldaáþján Leiðari Kór Átthagafélags Strandamanna í bústaðakirkju á aðventunni 2010. Byggðakvóta úthlutað til 12 byggðalaga á Vestfjörðum: Af 6.707 tonna kvóta fara 1.636 tonn til Vestfjarða, eða 24,4% Atvinnu- og nýsköpun-arráðherra, Steingrímur J. Sigfússon, hefur úthlutað 6.707 þorskígildistonna byggða- kvóta fiskveiðiársins 2012 – 2013 til 32 sveitarfélaga og í þeim fengu 49 byggðarlög úthlutun. 24,4% byggðakvótans fer til 12 byggðalaga á Vestfjörðum. Úthlutun byggða- kvótans byggist á upplýsingum frá Fiskistofu um samdrátt í botnfisk- afla, botnfiskaflamarki og vinnslu botnfisks annars vegar og samdrætti í rækju- og skelvinnslu hins vegar frá fiskveiðiárinu 2002 – 2003 til fisk- veiðiársins 2011 – 2012. Hámarks- úthlutun til byggðalags er 300 tonn og fá sex byggðalög það hámark, þar af eitt á Vestfjörðum, Flateyri, en auk þess Skagaströnd, Dalvík, Ár- skógssandur, Vopnafjörður og Höfn í Hornafirði. Lágmarksúthlutun er 15 tonn, eigi byggðarlag á annað borð rétt til úthlutunar, og fá fjögur byggðalög þá úthlutun. Hér að neðan má sjá þau byggðalög á Vestfjörðum sem fengu úthlutun, íbúafjölda í árslok 2011 og úthlutun í þorskígildistonnum. Hlynur Hafberg Snorrason nýr yfirlögregluþjónn á Vestfjörðum Um síðustu mánaðarmót urðu tímamót hjá lögreglunni á Vestfjörðum þegar Önundur Jónsson lét af störfum yfirlögregluþjóns fyrir aldurs sakir en Önundur var skip- aður yfirlögregluþjónn á Ísafirði árið 1993. Önundur var farsæll í starfi og sýndu samstarfsmenn honum tilhlýði- lega virðingu á kveðjustund. Við starfi hans tók Hlynur Hafberg Snorrason sem um árabil hefur veitt rannsóknardeild lögreglunnar á Vestfjörðum forstöðu. Íbúafjöldi í árslok 2011 Úthlutun í þorsk­ ígildistonnum Patreksfjörður 636 164 Bíldudalur 168 118 Tálknafjörður 258 167 Bolungarvík 866 70 Hnífsdalur 218 181 Þingeyri 267 74 Flateyri 214 300 Suðureyri 269 107 Súðavík 165 210 Árneskreppur 52 15 Drangsnes 72 90 Hólmavík 380 140 Alls: 3.565 1.636 Hlynur Hafberg Snorrason, yfirlög- regluþjónn á vestfjörðum. Önundur Jónsson, fráfarandi yfirlög- regluþjónn.

x

Vestfirðir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vestfirðir
https://timarit.is/publication/1082

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.