Vestfirðir - 09.11.2012, Blaðsíða 10

Vestfirðir - 09.11.2012, Blaðsíða 10
10 9 nóvember 2012 Elstu hlutar Ísafjarðar og Flateyrar eru sögulegar byggðir Í nýju frumvarpi á alþingi er lagt til að „sögulegri byggð“ í borg og bæjum verði gefin sérstaða í skipulagslögum og búið þannig um hnúta að eigendur fasteigna á slíkum svæðum fái ekki sjálfkrafa skaðabætur við breytingu á deiliskipulagi sem skert gæti meinta framtíðarhagsmuni þeirra. Með þessu væri almannahagur efldur á svæðum á borð við Kvosina og Lauga- veginn í Reykjavík, gömlu kjarnana á Ísafirði og Akureyri, elstu hluta Seyðis- fjarðar, Þingeyrar, Flateyrar og miklu fleiri byggða. Kveikja frumvarpsins eru umræðurnar í sumar um nýfram- kvæmdir og hugmyndasamkeppni kringum Ingólfstorg í Reykjavík. Fyrsti flutningsmaður frumvarpsins er Mörður Árnason. Í frumvarpinu er gert ráð fyrir því að sveitarstjórn geti afmarkað „sögulega byggð” í deiliskipulagi. Á slíku svæði gildi sú regla að breytingar á skipulagi skapi fasteignareigendum því aðeins skaðabótarétt að þeir hafi áður aflað sér byggingarleyfis fyrir tiltekinni fram- kvæmd, en byggingarréttur rennur út eftir ár ef framkvæmdir hefjast ekki áður. Með þessu móti yrði hægara um vik fyrir kjörna fulltrúa að breyta deiliskipulagi í viðkvæmustu hlutum byggðar sinar í þágu almannahags- muna, með verndarsjónarmið, menn- ingarleg rök og útivistarþarfir í huga. Söguleg byggð er þannig skilgreind í frumvarpinu að um sé að ræða hverfi eða hverfiskjarna þar sem byggð er að stofni til frá því fyrir 1920, eða þar sem byggð hefur sérstakt byggingarsögu- legt gildi, eða þar sem byggð hefur sérstakt menningarsögulegt gildi. Víða erlendis er slíkum skipulagshug- tökum beitt til að auka vernd gamalla byggðakjarna eða sérstæða, en í ís- lenskri löggjöf hefur skort á með þeim afleiðingum að um framkvæmdir og skipulag í sögulegum byggðarkjörnum hefur staðið styr áratugum saman, og margir þeirra verið eyðulagðir að hluta eða heild. ALDREI KALT Í VETUR MEÐ WEBASTO BÍLAHITARA BÍLASMIÐURINN HF – BÍLDSHÖFÐA 16, 110 REYKJAVÍK – SÍMI 567 2330 – BILASMIDURINN@BILASMIDURINN.IS BÍLASMIÐURINN HF Gamla bókabúðin á Flateyri er í röð þriggja gamalla húsa á Flateyri sem flokkast undir sögulegar byggðir, þ.e.bergs- hús, Sveinshús og Kjartanshús. Gamla bókabúðin heitir í raun réttri verzlunin bræðurnir eyjólfsson og er til húsa að Hafnarstræti 3-5 á Flateyri. Í húsnæðinu var starfrækt verslun frá 1908 til 1999, lengst af í eigu sömu fjölskyldu. Innréttingar í búðinni eru upprunalegar og því horfið aftur um marga áratugi þegar stigið er inn yfir þröskuldinn, auk þess sem lítill hluti af gamla lagernum gleðja augað. Húsin á Suðurtanganum á Ísafirði flokkast væntanlega undir skilgreininguna ,,sögulegar byggðir.” Stal lögreglubifreið! Aðfararnótt mánudagsins 22. október sl. er lögreglumenn sem á vakt voru á Ísafirði, sinntu útkalli vegna skemmda og ölvunarláta í bænum, var brotist inn á lögreglustöðina og var einn maður var þar að verki. Hann fór beint í bílgeymslu lögreglunnar, tók þar jeppabifreið lögreglu og ók honum út úr bílgeymslunni og um nokkrar götur í bænum. Talsverð hálka var á götum bæjarins. Af vegsummerkjum að dæma ók hann mjög ógætilega um bæinn og endaði akstur sinn á gangstíg í Miðtúni. Lögreglubifreiðin er mikið skemmd eftir akstur hans. Skömmu síðar handtóku lögreglu- menn hann rétt innan við Miðtúnið á Ísafirði. Þessi maður var á ferðinni um bæinn um nóttina og hafði lög- reglan afskipti af honum. Lögreglan veit að maðurinn var inni á Kirkju- bólshlíð skömmu fyrir atburðinn. Þaðan hefur hann fengið far til Ísa- fjarðar. Það er alveg með ólíkindum á hverju fólk getur tekið upp á, en þessi þjófnaður er með þeim bíræfnari. KFÍ vann Hamar í Lengjubikarnum KFÍ mætti Hamar í Lengjubikar karla í körfubolta í Hveragerði sl. sunnudag en liðin voru jöfn fyrir leikinn í 2-3. sæti í B-riðli keppninnar. Staðan í hálfleik var 46-40 Hamar í vil. Í leikslok var staðan 80:80 og því fram- lengt. Aftur var jafnt, 95:95 svo enn þurfti að framlengja en þá náði KFÍ forystunni og sigraði 109:106. Stigahæstir í liði Ís- firðinga voru Momcilo Latinovic með 26 stig en næstir komu Kristján Pétur með 22 stig, Mirko Stefán með 20 stig og 10 fráköst. Í efstu deild karla, Dominos-deildinni, er KFÍ með 4 stig í 10. sæti en liðið lék í gærkvöldi á Ísafirði gegn Þór Þorláks- höfn. Næsti leikur KFÍ í deildinni er gegn Njarðvík 15. nóvember og er um að gera fyrir brottflutta Ísfirðinga að fjölmenna þangað og hvetja liðið, en svo leikur KFÍ á Ísafirði gegn ÍR 29. nóvember nk. Lið KFÍ fyrir leik gegn Kr í Lengjubikarnum sem tapaðist 91:76. KFÍ snéri dæminu við gegn Hamri í Hveragerði og vann 109:106 eftir framlengdan leik.

x

Vestfirðir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vestfirðir
https://timarit.is/publication/1082

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.