Fréttablaðið


Fréttablaðið - 21.01.2014, Qupperneq 6

Fréttablaðið - 21.01.2014, Qupperneq 6
21. janúar 2014 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 6 LANDBÚNAÐUR Staða kartöflu- bænda hér á landi er erfið og hefur verið um nokkra hríð, aðal- lega vegna lágs verðs og upp- skerubrests vegna veðurs. Berg- vin Jóhannsson, bóndi á Áshóli og formaður Félags kartöflubænda, segir bændum hafa fækkað veru- lega síðustu ár og það sé órétt- látt að á meðan ríkið niðurgreiði mjólkurframleiðslu sé ekkert gert fyrir kartöflubændur. Haraldur Benediktsson, þing- maður Sjálfstæðisflokks, vakti máls á stöðu greinarinnar í umræðum um landbúnaðarafurð- ir á þingi í síðustu viku. Þar sagði Haraldur að búgreinin sem slík væri að komast á „válista“ vegna uppskerubrests og langvarandi lágra verða. Bergvin segir að sú mynd sem þarna var dregin upp sé nærri lagi. Samkvæmt nýjustu tölum eru 32 kartöflubændur á landinu, en fyrir rúmum áratug voru þeir um 200 talsins. Það verður þó vart mikil fækkun í þessum hópi á næstunni, að sögn Bergvins, þar sem flestir þeirra sem enn eru í framleiðslu myndu missa allt sitt ævistarf við að hætta rekstri. Bergvin segir að verðið til bænda hafi verið svo lágt um árabil að framleiðslan hafi ekki skilað nægum tekjum. „Og svo koma þessi ár með þessum áföll- um,“ bætir hann við og á þar við uppskerubresti vegna veðurs síð- ustu ár. Verð til bænda er ákvarðað með samningum milli bænda og kaup- enda, en Bergvin segir að síðustu ár hafi kaupendur ráðið ferðinni nærri einhliða, þó bændur hafi mætt aðeins meiri skilningi síð- ustu eitt eða tvö ár. Hann segir að kílóverð til bænda hafi jafnan verið um 30 til 40 krónum undir því sem þurfi til að koma rekstri kartöflubúa í eðlilegt horf. Það var lengi um 40 til 50 krónur og fór upp í 70, en á sama tíma tvö- faldaðist verð á áburði. Núna er verðið þó að þokast upp undir 100 krónur á kíló, en Bergvin segir það engu að síður svo lágt að það hamli framþróun. „Menn hafa ekki getað byggt nýjar geymslur, endurnýjað tól eða tæki eða fylgt tímanum í þessu. Þannig að það er ekki ofsagt að stéttin sé að komast á válista.“ Varðandi hvað ríkið geti gert til að koma til móts við kart- öflubændur segist Bergvin hafa stungið upp á styrkjum til nýbygginga og fjárfestinga. Þær uppástungur hafi þó ekki hlotið mikinn hljómgrunn. „Ég sótti um styrk til Fram- leiðnisjóðs í fyrra vegna kaupa á nýrri tegund af arfaeyðingarvél sem gerir öll lyf óþörf, en þeir harðneituðu að styrkja það. Vélin kom þó mjög vel út í sumar og mér finnst ég sjá framtíð í því þó að þeir geri það ekki hjá Framleiðni- sjóði.“ Bergvin segist hafa bent land- búnaðarráðherra á að það kosti um það bil það sama að framleiða eitt kíló af kartöflum og einn lítra af mjólk, en misjöfnu sé þó saman að líkja í þeim efnum. „Þeir styrkja mjólkurbændur með beingreiðslum um næstum helming af þeirri upphæð sem þeir fá frá samlögunum. Okkur finnst það óréttlátt að bú sem framleiðir mjólk í svipuðum tonn- afjölda og við gerum af kartöflum skuli fá ríkisstyrk sem nemur hærri upphæð en það sem við fáum fyrir okkar vöru.“ thorgils@frettabladid.is Kartöfluframleiðslan skilar bændum ekki nægum tekjum Kartöflubændum hefur fækkað mikið síðasta áratuginn þar sem nú eru aðeins 32 eftir af um 200. Formaður Félags kartöflubænda kennir veðri og lágu verði um, en segir líka að óréttlæti ríki í styrkjakerfi ríkisins. Slæm veðrátta hefur valdið miklum búsifjum hjá kartöflubændum, sérstaklega á síðasta ári þar sem uppskeran var innan við 7.000 tonn af kartöflum, miðað við tæp 10.000 tonn árið 2012 og um 12.500 tonn árið 2010. „Þetta hefur verið sorgarsaga síðustu árin, bæði í Þykkvabænum og hér norðanlands, en Hornfirðingarnir hafa sloppið,“ segir Bergvin. „Hér norðanlands hafa það verið köld vor og léleg sumur, en fyrir sunnan hafa það verið frostnætur og svo vatnsviðrið síðasta sumar, þar sem sást varla til sólar og ekkert spratt.“ Válynd veður valda uppskerubresti ÚTI Í HAGA Bergvin Jóhannsson á Áshóli í Grýtubakkahreppi segir uppskerubrest vegna veðurs síðustu ár og lágt verð til bænda hafa gengið nærri stétt kartöflu- bænda. MYND/HEIÐA.IS VIÐSKIPTI Þingsályktunartillaga um fríverslunarsamninginn milli Íslands og Kína verður að öllum lík- indum tekin til annarrar umræðu á Alþingi seinni hluta þessarar viku, að sögn Birgis Ármannssonar, for- manns utanríkismálanefndar. Nefndin afgreiddi málið fyrir jól, með fyrirvörum frá nefndarmönn- um Bjartrar framtíðar og Vinstri grænna, en Birgitta Jónsdóttir, sem er áheyrnarfulltrúi frá Píröt- um, bókaði mótmæli vegna stöðu mannréttindamála í Kína. Það var ýmsum umsagnaraðilum hugleik- ið, auk bágra aðstæðna kínversks verkafólks, sem fulltrúar ASÍ og BSRB töldu ástæðu til höfnunar. Birgir segir meirihluta nefndar- innar hafa lagt til að hann yrði sam- þykktur, „þó með þeirri áherslu að tækifæri til að ræða mannréttinda- mál í Kína verði notuð“. Eftir aðra umræðu ætti málinu að verða lokið, en eftir það hefst full- gildingarferli hjá utanríkisráðu- neytinu sem Birgir á ekki von á að taki langan tíma. - þj Þingsályktunartillaga um fríverslunarsamning til annarrar umræðu á þingi: Ræða Kínasamning í vikunni UNDIRRITUN Samningurinn var undir- ritaður í fyrra en bíður staðfestingar á Alþingi. HÓPFERÐABÍLL Sumar götur eru taldar ófærar rútum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA UMFERÐARMÁL Skipulagsráð Reykjavíkur hefur samþykkt að hámarkslengd hópbifreiða verði takmörkuð við átta metra á tiltekn- um svæðum í miðborginni. „Þröngar götur miðborgar eru margar ófærar stórum hópbif- reiðum,“ segir í tillögu samgöngu- stjóra borgarinnar sem skipulags- ráðið samþykkti. „Það er umhugsunarefni hve rík áhersla er lögð á að sækja farþega heim að dyrum á gististöðum hér í borginni. Með auknum fjölda ferðamanna er mikilvægt að nýta almenningssamgöngur meir til að flytja ferðafólk um borgina,“ segir samgöngustjóri. - gar Nýjar reglur í miðborginni: Bann á rútur yfir 8 metrum BRETLAND Kennarar við 130 virta einkaskóla í Bretlandi hafa gerst sekir um barnaníð, að því er breska dagblaðið The Times skýrir frá. Alls hafa kennarar við 62 einkaskóla hlotið dóm fyrir kynferðisbrot gegn samtals 277 nemendum. Þá hafa kennarar við tuttugu aðra skóla hlotið dóm fyrir að hafa verið með barna- klám í fórum sínum. Þetta eru virtir skólar á borð við Eton og Marlborough. Marg- ir af helstu ráðamönnum Bret- lands hafa stundað nám við þessa skóla. - gb Einkaskólar rannsakaðir: Kennarar sekir um barnaníð 1. Hvaða starfsemi er talin ógna öryggi ráðhússins á Dalvík? 2. Í hvaða á hófst hlaup í fyrradag? 3. Hversu hátt hlutfall nýnema í Lögregluskóla ríkisins er konur? SVÖR: 1. Gullsmíðaverkstæði. 2. Skaftá. 3. Tæplega 67 prósent. VIÐSKIPTI Drykkjarvöruframleið- andinn Anheuser-Busch InBev NV (ABI) hefur keypt stærsta bruggfyrirtæki Suður-Kóreu, Oriental Brewery, fyrir 5,8 millj- arða dollara, um 675 milljónir íslenskra króna. Frá þessu er greint á vef Bloomberg. ABI, sem er stærsti bjór- framleiðandi heims, seldi sama fyrirtækið árið 2009 fyrir 1,8 milljarða dollara. Sala á bjór í Suður-Kóreu hefur aukist tals- vert síðan þá. - hg Anheuser-Busch til Asíu: Fjárfestir í bjór frá Suður-Kóreu VEISTU SVARIÐ? Okkur finnst það óréttlátt að bú sem fram- leiðir mjólk í svipuðum tonnafjölda og við gerum af kartöflum skuli fá ríkis- styrk sem nemur hærri upphæð en það sem við fáum fyrir okkar vöru. Bergvin Jóhannsson formaður Félags kartöflubænda

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.