Fréttablaðið - 21.01.2014, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 21.01.2014, Blaðsíða 16
21. janúar 2014 ÞRIÐJUDAGUR| SKOÐUN | 16 Athyglisvert viðtal við Ólaf Örn Haraldsson, for- seta Ferðafélags Íslands, birtist í fréttablaðinu þann 29. nóvember síðastliðinn. Tilefni viðtalsins var und- angengin umfjöllun í fjöl- miðlum um slakt ástand í Landmannalaugum og gönguleiðum á Laugaveg- inum svokallaða. Umfjöll- un sú sem vitnað er til var einkar þörf og með ágætum. Þó vantaði í hana aðeins nýrri upp- lýsingar um hvað hefur verið gert í lagfæringum á göngustígum á síðustu tveimur árum, meðal annars á gönguleiðinni frá skála Ferðafélagsins Útivistar, yfir Fimmvörðuháls og að Skógum. Í góðu samstarfi hafa Útivist, Vinir Þórsmerkur og Skógrækt ríkis- ins unnið með sjálfboðaliðum og í sjálfboðaliðastarfi að viðgerð og endurbótum á stígum á þeirri leið með ágætum árangri. En betur má ef duga skal og verður því verk- efni haldið áfram og þá í anda þess sem Útivist og fleiri hafa alltaf staðið fyrir; með sjálfboðavinnu. Auk þess hefur Útivist staðið að verndar- og uppgræðslustarfi í samvinnu við Landgræðsluna og Vegagerðina í Þórsmörk, en það er önnur saga. En aftur að viðtalinu við forseta FÍ. Ferðafélag Íslands býr við sér- stöðu á Laugaveginum, vinsælustu og fjölförnustu gönguleið á hálendi Íslands. FÍ hefur í dag eitt félaga afnot af Landmannalaugasvæð- inu öllu, síðan á félagið alla skála á leiðinni; í Hrafntinnuskeri, Álfta- vatni og í Emstrum. Félagið hefur notið þessarar sérstöðu um langt skeið, byggt skála og haft af allri aðstöðu tekjur. Hvað átroðning varðar hefur það verið öllum ljóst að átroðningurinn undanfarin ár hefur verið langt umfram það sem æskilegt er. Enda bera ummerkin þess vitni. Því er það ljóst að alla umferð á svæðinu, bæði innkomu í Landmannalaug- ar og umferð á Laugaveg- inum, þarf að hugsa upp á nýtt og endurskipuleggja. Takmarka þarf þann fjölda sem kemur inn á svæðið og það þarf kröftugt átak til að lagfæra það sem ekki hefur nægilega vel verið hlúð að. Skattheimta Í viðtalinu boðar Ólafur Örn eins- konar skattlagningu í Landmanna- laugum og á Laugaveginum. Hann boðar að tekið verði; „upp umhverf- isgjald sem verður fellt inn í okkar sölu á gistingu og ferðum“. Umrætt umhverfisgjald á síðan að renna í sjóð sem FÍ, einhver ótilgreind fyr- irtæki, fulltrúar frá þremur sveit- arfélögum og fulltrúi frá Umhverf- isstofnun eiga að stjórna. Stjórn þessi með umræddan sjóð til ráð- stöfunar, á síðan að veita fé „fyrsta kastið“ til endurbóta á göngustíg- um. Síðan á féð að fara; „Einnig til bættrar þjónustu á starfssvæði Ferðafélags Íslands“. Hér er nauð- synlegt að staldra aðeins við. Nú er það svo að umræðan um aðgengi ferðamanna að hálendinu og umgengni er í brennidepli þess- ar vikurnar. Mikið er rætt um fjár- mögnun nauðsynlegra verkefna og hvernig á að koma í framkvæmd aðkallandi verkefnum. Hugmyndin sem Ólafur Örn leggur til, er því í hinu stóra samhengi alltof þröng, auk þess sem það gætu reynst ákveðnir stjórnsýslulegir ann- markar á fyrirkomulaginu. Lítum nánar á tillöguna. Það sem verið er að leggja til er einskonar skattheimta. Skattheimta til að lag- færa það sem troðið hefur verið niður í þessum náttúruperlum. Það liggur fyrir að eitthvað rót- tækt verður að gerast í þessu máli og það er í sjálfu sér ekki slæm hugmynd að fá sveitarstjórnir og Umhverfisstofnun að verkefninu. En það er úr of þröngum helli horft að þessir opinberu aðilar komi að fjármögnun og stjórnun þessara verkefna einungis„ … til bættr- ar þjónustu á starfssvæði Ferða- félags Íslands“. Betra er að þessir opinberu aðilar fái það hlutverk að setja saman áætlun til aðgerða og lagfæringar á stærra landssvæði og skynsamlegra er að hinn breiði hópur hagsmunaaðila eigi þar aðkomu. Það má hugsa sér að þar að kæmu að heildarsamtök á borð við SAMÚT og Samtök ferðaþjón- ustunnar, sem þá ættu fulltrúa í verkefnahópnum fyrir hönd hags- munaaðila. Til að þetta geti orðið þarf bæði að fjármagna verkið og veita slíkri viðbragðs- eða endur- bótastjórn umboð til athafna til þess að loka svæðum tímabund- ið, hugsanlega til lengri tíma, eða draga úr umferð um Landmanna- laugar og Laugaveg meðan lag- færingar fara fram. Hópnum gæti einnig verið falið vald til að tak- marka aðgang að einstökum svæð- um, gera tillögur að nýjum ferða- mannastöðum, nýjum leiðum og nýjum „Laugavegum“. Slíkar vald- heimildir og fjármögnun hlýtur að koma frá opinberum aðilum og þá helst frá umhverfisráðuneyti, en verkefnið væri skýrt; að bæta úr ástandinu og finna nýjar leiðir með hagsmuni allra að leiðarljósi. Laugavegurinn – ábyrgð og lagfæringar Jón Gnarr strengdi þess heit um áramótin að gera Reykjavík að her- lausri borg áður en borg- arstjóratíð hans væri á enda. Borgarstjóri hefur ítrekað stigið fram og talað gegn komu herskipa og herflugvéla til Reykja- víkur frá því að hann tók við embætti borgar- stjóra. Saman deilum við þeirri skoðun að Reykja- vík geti orðið friðarborg sem hafni alfarið hernað- arbrölti heimsins og frið- lýsi Reykjavík frá komu herskipa og herflugvéla. Fram hefur komið gagnrýni á hugmyndir Jóns og þá sérstaklega með þeim rökum að leit og björgun á Norður-Atlantshafi yrði mun erf- iðari fyrir vikið þar sem landhelg- isgæslan sinni svipuðu hlutverki og sjóherir nágrannaríkja okkar. Þessi rök halda þó engu vatni, enda ekkert vitað hvaða verkefn- um mörg þeirra skipa og flug- véla sem hingað koma hafa verið að sinna. Að líta á komu herafla hingað til lands sem happafeng og stuðning við skipulagt björgunar- starf hérlendis er í besta falli mis- vísandi, enda væri hægt að koma á fót annars konar samstarfi við nágrannaríki okkar væri það und- irliggjandi orsök fyrir viðkomu þessara herafla. Öllu alvarlegra er þó að kanna hvaða verkefnum her- farartæki sem hingað hafa komið hafa raunverulega verið að sinna. Fluttu vélar sem hér áttu viðkomu t.d. stríðsfanga til Guantanamo? Hver veit? Önnur rök sem heyrst hafa gegn friðarborginni Reykjavík er að afstaða lítillar borgar í Norð- ur-Atlantshafi skipti engu máli í alþjóðasamhengi. En með þeim rökum er algjörlega litið fram hjá ýmsum bauta- steinum í mannréttinda- og friðarbaráttu í gegnum tíð- ina þar sem raunin er ein- mitt sú að lítil þúfa veltir stóru hlassi. Afstaða okkar skiptir máli En hvaða máli skiptir það þá þegar lítil höfuðborg á hjara veraldar tekur skýra afstöðu gegn hvers kyns hervæðingu og hern- aðarbrölti? Komum her- flugvéla hingað til lands hefur fækkað um meira en helm- ing milli áranna 2011 og 2012 en við hljótum að spyrja hvert þessi skip og þessar flugvélar sem stoppa við hérlendis eru að fara og í hvaða tilgangi. Eða erum við sátt við að vera áningar- og þjón- ustustaður herflota sama hvert förinni er heitið og hverjir kunni að láta lífið? Á endanum standa eftir sið- ferðislegar spurningar sem ég hvet hvern og einn Íslending til að svara. Eru stríð óviðkomandi okkur bara af því að þau eiga sér ekki stað í bakgarðinum hjá okkur? Getum við lokað augunum og samþykkt morð á saklausum borgurum í fjarlægum löndum? Ég segi nei! Jón Gnarr borgar- stjóri strengdi áramótaheit um það að gera Reykjavík að her- lausri borg áður en hann lætur af embætti borgarstjóra í vor. Ég legg til að við strengjum þess öll heit að vinna að þessu með honum og raungera draum- inn um herlausa Reykjavíkur- borg. Afstaða okkar skiptir máli því ekkert land og engin borg er nógu lítil til að láta sitt eftir liggja í baráttunni fyrir friði og bræðralagi í heiminum. Friðarborgin Reykjavík SNERTISKJÁR 3 AFTURSÆTI Í FULLRI STÆRÐ ÓHINDRAÐ ÚTSÝNI SJÁLFSKIPTUR DÍSIL frá 3,8 L/100 KM í blönduðum akstri KOMDU OG SKOÐAÐU NÝJA CITROËN C4 PICASSO OG GRAND C4 PICASSO Brimborg og Citroën áskilja sér rétt til að breyta verði og búnaði án fyrirvara. Útbúnaður getur verið frábrugðinn mynd í auglýsingu. *Ergo býður 40% af verði bílsins að láni án vaxta í allt að þrjú ár. Þetta lánafyrirkomulag er í boði fyrir nýja bíla á lager. Nýir og notaðir bílar: Söludeild er opin alla virka daga kl. 9-17 og laugardaga kl. 12-16. Hvort sem þú velur 5 eða 7 manna útgáfu er tæknin framúrskarandi og rýmið nánast takmarkalaust. Með snertiskjánum stjórnar þú öllum aðgerðum og fylgist með lágri eyðslunni. 3 sæti í fullri stærð eru í sætaröð fyrir aftan framsæti. Citroën Grand C4 Picasso var valinn fjölskyldubíll ársins af Top Gear og fjölnotabíll ársins af tímaritinu WhatCar. Bílarnir hlutu einnig eftirsóttu viðurkenninguna Gullna stýrið í flokki fjölnotabíla. CITROËN C4 PICASSO sjálfskiptur 5 MANNA FRÁ 3.990.000 KR. CITROËN GRAND C4 PICASSO 7 MANNA FRÁ 4.390.000 KR. Brimborg Reykjavík: Bíldshöfða 8, sími 515 7040 FERÐAÞJÓNUSTA Þórarinn Eyfjörð formaður Útivistar ➜ Það sem verið er að leggja til er einskonar skatt- heimta. Skattheimta til að lagfæra það sem troðið… HERNAÐUR Elín Oddný Sigurðardóttir fulltrúi Vinstri grænna í mann- réttindaráði Reykjavíkurborgar

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.