Fréttablaðið - 21.01.2014, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 21.01.2014, Blaðsíða 38
21. janúar 2014 ÞRIÐJUDAGUR| MENNING | 34 „Þetta var bara eins og í ævin- týrunum, hvernig ástin sótti að okkur,“ segir söng- og leikkon- an Sigríður Eyrún Friðriksdótt- ir, betur þekkt sem Sigga Eyrún, um upphaf ástarsambands síns við tónlistarmanninn Karl Olgeirsson. Þau kynntust í vor, í kabarettnum Ef lífið væri söngleikur. „Hann var svo rosalega flinkur á píanóið að ég gat bara ekki látið hann vera. Margrét Eir á líka sinn þátt í þessu, hún talaði um að þetta væri góð hugmynd,“ segir Sigga Eyrún létt í lund. Þau hafa verið óaðskiljanleg síðan þau kynntust og umlykur ástin þetta mikla hæfileikafólk. „Það var alveg greinilegt hvert stefndi hjá okkur,“ segir Karl Olgeirsson um upphafið. Þau vinna mikið saman í tón- listinni og hófu upptökur á plötu í haust en fyrsta smáskífulagið af þeirri plötu, Er ást í tunglinu?, hefur fengið talsverða spilun og athygli á útvarpsstöðvum lands- ins. „Ég er að fá æðisleg viðbrögð við laginu,“ bætir Sigga við. Hins vegar hefur vinnsla plöt- unnar verið sett á ís þar sem parið komst inn í undankeppni Euro- vision. Er ekki erfitt fyrir par að vinna saman í tónlist? „Það er mjög þægi- legt að vinna með henni í músík- inni, við erum bæði mjög hrein- skilin hvort við annað en það er auðvitað ekkert gefið að geta unnið vel saman í list,“ útskýrir Karl. Hann gaf Siggu sinni úkúlele þannig að þau geta samið saman en fyrir kunni hún á gítar og gat notað þann grunn í úkúlelespila- mennskuna. „Ég verð aldrei þreytt á að hlusta á hann spila, hann er svo mikill snillingur,“ segir Sigga spurð út í spilamennskuna á heim- ilinu. „Hann er vog og ég er naut, ég er þrjósk og ákveðin en vogin er alltaf að vega og meta þannig að við fullkomnum hvort annað,“ útskýrir Sigga. Spurð út í Eurovision-atriðið segjast þau ætla að leggja mikið upp úr skemmtilegu og flottu atriði. „Cameron Corbett er danshöf- undurinn í laginu en hann er dans- höfundur í Spamalot. Svo voru allir nema tveir sem tengjast atriðinu með mér í Mary Poppins þannig að við þekkjumst öll mjög vel,“ segir Sigga en þau fengu meðal annars ráð frá reynsluboltann Páli Óskari varðandi lagið. gunnarleo@frettabladid.is Hann er vog og ég er naut, ég er þrjósk og ákveðin en vogin er alltaf að vega og meta þannig að við fullkomn- um hvort annað. Sigríður Eyrún Friðriksdóttir „Nýi uppáhaldsveitingastaðurinn minn er eþíópíska veitingahúsið Minilik á Flúðum. Tengdaforeldrar mínir buðu fjölskyldunni út að borða á þessum stað um síðustu helgi. Maturinn þar er ódýr, góður og framandi.“ Þorbjörg Helga Þorgilsdóttir leikkona. BESTI BITINN „Það varð allt vitlaust þegar aug- lýsingin var birt í Fréttablaðinu,“ segir Þór Bæring Ólafsson, sem er eigandi Gaman Ferða ásamt Braga Hinriki Magnússyni. Gaman Ferð- ir auglýstu eftir starfsmönnum og samstarfsfélögum í skipulagn- ingu og eftirfylgni á sérferðum til útlanda á vegum fyrirtækisins. „Við vildum bæta úrval ferða hjá okkur og fá reynslubolta til að hjálpa til við að búa til ferð- ir í kringum sín áhugamál. Til dæmis sendi hjólreiðagarpur inn umsókn og vildi plana hjólreiða- ferðir og svo framvegis,“ útskýr- ir Þór Bæring en alls bárust tæp- lega tvö hundruð umsóknir á átta dögum. Þá sótti um kona sem hefur farið víða um heim á línu- skautum og vildi plana línuskauta- ferð um allan heim. Nokkur þjóð- þekkt nöfn hafa sótt um starf hjá Gaman Ferðum en Þór vill ekki gefa upp hver þau eru. Upphaf Gaman Ferða má rekja til ársins 2003. „Þá stofnuðum við ferðaskrifstofuna Markmenn en sú ferðaskrifstofa náði að lækka verð á fótboltaferðum töluvert og úr varð alvörusamkeppni á þessum markaði. Árið 2005 keypti Iceland Express ferðaskrifstofuna Mark- menn og í kjölfarið breyttist nafn- ið í Express Ferðir. Árið 2007 sögð- um við skilið við Express Ferðir. Þá fórum við í það að mennta okkur aðeins meira sem er alltaf gott.“ Árið 2012 voru svo Gaman Ferðir stofnaðar en WOW air er helsti samstarfsaðili þeirra. - glp 200 umsóknir á átta dögum Gaman Ferðir óska eft ir frjóum Íslendingum til að skipuleggja sérferðir. SKEMMTILEGAR FERÐIR Þór Bæring og Bragi Hinrik, eigendur Gaman Ferða, á Santiago Bernabeu, heimavelli Real Madrid. MYND/EINKASAFN „Fjórða þáttaröðin af Pressu hefur verið í bígerð í nokkuð marga mánuði,“ segir Óskar Jónasson kvikmyndagerðar- maður. „Þriðja þáttaröðin lukkaðist vel og það hefur verið áhugi fyrir að vita hvað verður um þetta fólk. Það er dálít- ið erfitt að hitta í mark með þáttaraðir en það virðist hafa gerst með Pressu,“ segir Óskar. „Ég held það sé meðal annars vegna þess að í henni er fjallað um fólk sem áhorf- endur tengja við. Fólk sem þarf að tvinna saman vinnu og fjölskyldulíf. Það skutlar börnum í skólann og tómstundir á sama tíma og það slekkur elda í vinnunni.“ Óskar tekur fram að aðstandendur þáttanna séu ekki enn búnir að fá framleiðslustyrk frá Kvikmyndasjóði til þess að gera þættina. „Við erum þó farin að bollaleggja næstu skref. Það stendur til að gera níu þætti í stað sex eins og venjulega. Við höfum fengið álitsgjafa til að segja skoðun sína á því hverjar áherslurnar eiga að vera í fjórðu seríu. Það er fríkað hvað fólk er sammála. Flestir vilja einblína meira á Láru og Öldu dóttur hennar.“ Ýmislegt annað er á döfinni hjá Óskari. Hann hefur verið ráðinn til þess að leikstýra mynd þar sem Marisa Tomei fer með eitt aðalhlutverka. Tökur áttu að hefjast í fyrra, en þeim var frestað. „Myndin er ennþá fyrirhuguð í sumar ef allt gengur eftir. Frestunin kemur ekki til af góðu heldur vegna þess að til stóð að James Gandolfini léki annað aðalhlutverkið í myndinni. Hann féll skyndilega frá á besta aldri, sem var mjög dapurlegt.“ - ue Fríkað hvað fólk er sammála Óskar Jónasson er með fj órðu þáttaröðina í bígerð og stendur til að gera níu þætti. PRESSA OG BÍÓMYND Óskar hefur í nægu að snúast. MYND/GVA Mikil ást í Eurovision Listræna parið Sigríður Eyrún Friðriksdóttir og Karl Olgeirsson komust inn í undankeppni Eurovision. Þau kynntust í söngleiknum Ef lífi ð væri söngleikur. MÚSÍKALSKT PAR Sigríður Eyrún Friðriksdóttir og Karl Olgeirsson vinna hörðum höndum að undirbúningi Eurovision- undankeppninnar. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR Verðlaun í ljóðasamkeppninni Ljóðstafur Jóns úr Vör verða veitt í þrettánda sinn í dag, þriðjudaginn 21. janúar, kl. 17.00 í Salnum. Tíu ljóð verða verðlaunuð. Á sama tíma verða veitt verðlaun í ljóðasamkeppni grunnskóla Kópavogs. Léttar veitingar að dagskrá lokinni. Allir hjartanlega velkomnir! kopavogur.is PI PA R\ PI PA R\ TB W A - TB W A - S ÍA - SÍ A 1 40 05 4 66

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.