Fréttablaðið - 21.01.2014, Page 20

Fréttablaðið - 21.01.2014, Page 20
FÓLK|HEILSA FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýsingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434 Sverrir Birgir Sverrisson, sverrirbs@365.is, s. 512 5432 Kolbeinn Kolbeinsson, kolli@365.is, s. 512-5447 Skíðaganga er lífleg og skemmtileg íþrótt sem fólk á öllum aldri getur stundað um land allt. Þótt íþróttin hafi notið vinsælda í norðurhluta Evrópu undanfarna áratugi hafa vinsældir hennar aukist hægt og rólega hérlendis. Það kann þó að verða breyting á því á næst- unni því starfsemi skíðagöngu- félaga og sérstakra skíðagöngu- deilda innan skíðafélaga hefur vaxið undanfarin ár. Þóroddur F. Þóroddsson, sem er formaður stjórnar skíðagöngufélagsins Ull- ar, segir miklu máli skipta fyrir útbreiðslu íþróttarinnar að þeir foreldrar sem stundi hana kveiki áhuga barna sinna. „Sjálfur eign- aðist ég mín fyrstu gönguskíði fyrir rúmlega 40 árum en hef stundað íþróttina mest undan- farin tíu ár. Skíðaganga er íþrótt sem hentar fólki á öllum aldri og hægt er að stunda víða, ekki bara á skíðasvæðum. Það má nota til dæmis opin svæði eins og almenningsgarða og íþrótta- velli.“ Skíðagöngufólk á höfuðborgar- svæðinu sækir mikið í Bláfjöll en þar var opið um 70 daga á síðasta ári. „Ef til vill er hægt að tvöfalda þann dagafjölda fyrir þá sem stunda gönguskíði. Oft er nægur snjór í Bláfjöllum fram í maí fyrir skíðagöngufólk. Á höfuðborgar- svæðinu hefur einnig verið vinsælt að skíða á Klambratúni og í Foss- vogsdal en þar lögðum við brýr síðasta sumar með starfsmönnum Kópavogsbæjar til að auðvelda aðgengi skíðagöngufólks.“ Þór- oddur nefnir einnig að starfsmenn Golfklúbbs Garðabæjar hafi verið duglegir að leggja spor fyrir skíða- menn þannig að víða má finna ágætar aðstæður innan borgar- markanna þegar snjóar. Íslandsgöngur hefjast um næstu helgi en þær eru mótaröð á vegum Skíðasambands Íslands. Keppt verður á Akureyri á laugar- degi og Ólafsfirði á sunnudegi en nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu Skíðasambands Ís- lands, skíðafélaga og á Facebook. „Boðið verður upp á langar og stuttar vegalengdir þannig að allir ættu að geta tekið þátt. Þannig reynum við að breiða út boðskap- inn og skapa hefð fyrir skíðagöng- um þar sem málið snýst fyrst og fremst um að vera með og stunda holla íþrótt og útiveru.“ ■ starri@365.is BOÐSKAPURINN BREIDDUR ÚT SKEMMTILEG ÚTIVERA Skíðaganga nýtur sífellt meiri vinsælda hérlendis enda hollur og skemmtilegur valkostur fyrir fólk á öllum aldri. Íþróttina er hægt að stunda á mörgum stöðum, bæði á skíðasvæðum en einnig víða á opnum svæðum innanbæjar. VINSÆL ÍÞRÓTT Skíðaganga nýtur mikilla vinsælda í Norður-Evrópu. Sífellt fleiri stunda hana hérlendis. MYND/GUÐMUNDUR HAFSTEINSSON DUGLEG BÖRN Börn eru fljót að læra á gönguskíði. MYND/ANNA SIGRÍÐUR VERNHARÐSDÓTTIR HOLL HREYFING Þóroddur F. Þórodds- son, formaður stjórnar skíðagöngufélags- ins Ullar, segir miklu máli skipta að for- eldrar kveiki áhuga barna sinna. MYND/ÚR EINKASAFNI FJÖLSKYLDUVÆNT Fólk á öllum aldri stundar skíðagöngu. MYND/TRAUSTI TÓMASSON RÝMUM Askalind 3 • 201 Kópavogur • Sími: 562 1500 Mán. - föst. kl. 10-18 Laugardaga kl. 11-15 AFSLÁTTUR 50% AF VÖLDUM SÝNINGAR INNRÉTTINGUM FYRIR NÝJUM VÖRUM friform.is VEGNA BREYTINGA Í V ERSLUN OKKAR BJÓÐU M VIÐ NOKKRAR SÝNINGARI NNRÉTTINGAR MEÐ 50 % AFSLÆTTI. 30% AFSLÁTTUR AF ÞV OTTAHÚSINNRÉTTING UM Í JANÚAR VIÐ HÖNNUM OG TEIKNUM FYRIR ÞIG Komdu með eða sendu okkur málin af eldhúsinu, baðinu, þvottahúsinu, anddyrinu eða svefnherberginu - og við hönnum, teiknum og gerum þér hagstætt tilboð í glæsilega danska innréttingu í hæsta gæðaflokki og vönduð raftæki á vægu verði.AFSLÁTTUR 30% AF ÞVOTTAH ÚSA- INNRÉTTING UM Í JANÚAR Ábendingahnappinn má finna á www.barnaheill.is

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.