Fréttablaðið


Fréttablaðið - 21.01.2014, Qupperneq 8

Fréttablaðið - 21.01.2014, Qupperneq 8
21. janúar 2014 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 8 LOKSINS E N N E M M / S ÍA / N M 6 0 9 2 3 BL Sævarhöfða 2 110 Reykjavík 525 8000 GE bílar / Reykjanesbæ / 420 0400 – Bílasalan Bílás / Akranesi / 431 2622 – Bílasala Akureyrar / Akureyri / 461 2533 – Bílaverkstæði Austurlands / Egilsstöðum / 470 5070 – IB ehf. / Selfossi / 480 8080 SIG AÐ TAKA BÍLALÁN uthentic Renault Clio A – Verð: 2.440.000 kr. Bensín, beinskiptur / 4,7 l/100 km* Innborgun 60% / Gamli bíllinn þinn og eða reiðufé: 1.464.000 kr. NÚLLVEXTIR BL: 976.000 kr. til 36 mánaða. Vaxtalaus afborgun: 27.111 kr. á mán. Dacia Duster 4WD PLUS – Verð 3.990.000 kr. Subaru XV 4WD – Verð 5.390.000 kr. Dísil, beinskiptur með extra lágum gír / 5,3 l/100 km* Innborgun 60% / Gamli bíllinn þinn og eða reiðufé: 2.394.000 kr. NÚLLVEXTIR BL: 1.596.000 kr. til 36 mánaða. Vaxtalaus afborgun: 44.333 kr. á mán. Sjálfskiptur, bensín / 6,6 l/100 km* Innborgun 60% / Gamli bíllinn þinn og eða reiðufé: 3.234.000 kr. NÚLLVEXTIR BL: 2.156.000 kr. til 36 mánaða. Vaxtalaus afborgun: 59.888 kr. á mán. HAFÐU SAMBAND VIÐ SÖLUMENN Í SÍMA 525 8000 EÐA SENDU OKKUR FYRIRSPURN Á bl@bl.is. NÁNARI UPPLÝSINGAR UM NÚLLVEXTI BL ER AÐ FINNA Á www.bl.is *M ið að v ið u pp ge fn ar tö lu r f ra m le ið an da u m e ld sn ey tis no tk un í bl ön du ðu m a ks tr i. / N úl lv ex tir B L gi ld a ek ki m eð ö ðr um ti lb oð um . Með nýju núllvaxtaláni BL getur þú fengið allt að 40% af verði bílsins að lá in vaxtalaust it l la lt að 36 mán ða a. E ngir vex it r, engin verðtrygging, enginn þinglýsingarkostnaður og e kkert smátt letur. S em s agt, e ngin ó vissa og þ að sem meira er – þú ekur um á nýjum bíl í fullri ábyrgð. Farðu á bl.is og kynntu þér frábæran möguleika til að kaupa nýjan bíl. ÚN LLVEXTIR BL – loksins bílalán sem gæti borgað sig að taka. EFNAHAGSMÁL Ísland er úti í kuld- anum á alþjóðlegum fjármála- mörkuðum á meðan peningar streyma aftur til annarra landa sem urðu illa úti í alþjóðlegu fjár- málakreppunni. Á þetta er bent í nýrri umfjöll- un International Financing Review (IFS). Staða Íslands er borin saman við Írland, Portúgal og Grikkland. Hér er þróunin rakin til stjórnarskiptanna og ósveigj- anleika stjórnvalda í viðræðum við kröfuhafa föllnu bankanna. „Fyrir um ári virtist sem þíða væri komin í deilu Íslands og kröfuhafa og samkomulag talið á næsta leiti,“ segir í umfjöllun IFS. „En kjör Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, formanns Fram- sóknarflokksins, sem forsætisráð- herra með popúlísku loforði um að lækka húsnæðisskuldir fólks, að hluta með því að leggja afturvirk- an skatt á eignir föllnu bankanna, hefur blásið hita í deiluna á ný.“ Bent er á að frá því að ný rík- isstjórn tók hér við völdum hafi vextir á fimm ára skuldabréf rík- isins farið úr 4,1% í 6,4% fyrr í þessum mánuði. „Á sama tíma hafa sambærileg kjör á írska rík- ispappíra náð nýju lágmarki á evr- usvæðinu frá því að Írland sneri aftur á fjármálamarkaði með 1,8% vöxtum. Og fimm ára vextir Portú- gals, sem einnig hefur sótt sér fé á markaði á ný, hafa farið niður í 3,8%.“ Í umfjöllun IFR er staðan sögð hafa verið afar vænleg fyrir Ísland fyrir tveimur árum. Þá hafi land- ið lokið efnahagsáætlun sinni með Alþjóðagjaldeyrissjóðnum á undan áætlun og snúið aftur á alþjóðleg- an verðbréfamarkað með vexti á milljarð dollara skuldabréf til fimm ára sem ekki voru nema fimm prósent, auk þess sem Ice- save-deilan hafi verið að baki. Katrín Ólafsdóttir, lektor í hag- fræði við viðskiptadeild Háskól- ans í Reykjavík, segir erfitt að fullyrða um hvaða þættir hafi áhrif á kjörin sem ríkinu bjóðast í skuldabréfaútgáfu erlendis. Lík- lega hafi öll óvissa mest áhrif í þeim efnum. „Vissulega er óvissa tengd þess- ari aðgerð að skattleggja þrotabú bankanna, sumir telja þá leið færa og aðrir ekki,“ bendir hún á. Eins kunni að spila inn í áhyggjur af því að fyrirhuguð skuldaniðurfelling lengi í gjaldeyrishöftunum. „Þann- ig að mögulega er verið að horfa til þess líka.“ olikr@frettabladid.is Ísland úti í kuldanum á fjármálamörkuðum Óvissa vegna hnúts sem er á deilu íslenskra stjórnvalda og kröfuhafa föllnu bank- anna um uppgjör kann að rýra kjör þau sem ríkinu bjóðast í erlendri skuldabréfa- útgáfu. Meðan vextir á bréf Íra og Portúgala lækka hafa vaxtakjör Íslands versnað. Í frétt IFS er einnig frá því greint að fulltrúar kröfuhafa bankanna reyni hvað þeir geti að draga stjórnvöld á Íslandi að samningaborðinu og hafi lagt fram tilboð um gjaldeyrisskipti í tengslum við uppgjör þrotabúanna. Barry Russell, lögmaður og meðeigandi lögmannsstofunnar Binham McCuthcen, og Matt Hinds, lögmaður og meðeigandi Talbot Hughes McKillop, sem unnið hafi fyrir kröfuhafa, eru sagðir langþreyttir á erfiðum samskiptum við stjórnvöld. Báðir telja samkomulag hljóta að vera allra hag. Hvorugur hefur þó fengið boð um að ræða tilboð kröfuhafa, hvorki frá Seðlabanka né fjármálaráðherra. „Við höfum sem stendur engin svör fengið,“ hefur IFS eftir Hinds. Stjórnvöld svara ekki kröfuhöfum FRÉTTAVEFUR IFR Fjallað um Ísland á www.ifre.com. Í fréttinni kvarta kröfuhafar undan því að Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra svari ekki tilboði þeirra. Þá segir að stefna Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar forsætisráðherra hafi blásið í glæður deilu við kröfuhafa. MYND/SKJÁSKOT Vissulega er óvissa tengd þessari aðgerð að skattleggja þrotabú bankanna, sumir telja þá leið færa og aðrir ekki. Katrín Ólafsdóttir lektor við viðskipta- fræðideild Háskólans í Reykjavík ALÞINGI Frosti Sigurjónsson, for- maður efnahags- og viðskipta- nefndar Alþingis, segir ekki með öllu ljóst hver hafi fyrst komið fram með þá hugmynd að frí- skuldamark bankaskatts yrði fimmtíu milljarðar króna. Frosti sagði eftir fund nefnd- arinnar í gær að þessi tala hefði orðið til í óformlegum samskipt- um nefndarinnar og fjármála- ráðuneytisins. „Já, það er alveg ljóst að nefnd- armeirihluti í nefndinni biður fjármálaráðuneytið um tölu sem nær því mark- miði að undanskilja minni bankastofnanir þessum skatti og gerir það með ákveðnum rökum. Við sjáum ekkert að þessari tölu. Við reiknum bara með að þetta sé ágætis slumptala,“ sagði Frosti. Áður höfðu fulltrúar ráðuneytisins hafnað því að upphæðin hefði komið frá ráðu- neytinu. „Það er auðvitað mjög mikilvægt að við fáum að vita það þannig að við sjáum skýrt hverjar eru hinar efnislegu forsend- ur fyrir þessu frískulda- marki, sérstaklega í ljósi þeirra miklu tengsla sem eru á milli MP Banka og forystumanna ríkis- stjórnarinnar,“ sagði Árni Páll Árnason, for- maður Samfylkingarinnar. - hh Formaður þingnefndar segir tilurð upphæðar skattleysismarka enn óljósa: Vísar í óformleg samskipti FROSTI SIGURJÓNSSON DÓMSMÁL Mál Baldurs Guðlaugs- sonar, fyrrverandi ráðuneytisstjóra, mun ekki njóta brautargengis fyrir Mannréttindadómstóli Evrópu. Mál- inu var vísað frá dómstólnum í gær. Þetta staðfestir lögmaður Bald- urs, Karl Axelsson hæstaréttarlög- maður. Hann segir að málinu sé þar með lokið. Forsaga málsins er sú að Baldur var ákærður fyrir innherjasvik og brot í opinberu starfi fyrir að hafa nýtt sér innherjaupplýsingar við sölu á hlutabréfum í Landsbank- anum 17. og 18. september 2008. Baldur sat þá í samráðs- hópi íslenskra stjórn- valda um fjármálastöð- ugleika og var einnig ráðuneytisstjóri í fjár- málaráðuneytinu. Baldur var bæði sak- felldur í héraði og að lokum í Hæsta- rétti árið 2012 fyrir inn- herjasvik og brot í opinberu starfi. Dómurinn þótti umdeildur og lýsti Baldur yfir miklum von- brigðum á sínum tíma vegna niðurstöðunnar. Baldur kærði málið til Mann- réttindadómstólsins í ársbyrjun 2012, en dómstóllinn hefur nú vísað málinu frá. - js Mannréttindadómstóll Evrópu tekur ekki fyrir mál Baldurs Guðlaugssonar: Máli Baldurs vísað frá dómi BALDUR GUÐLAUGS- SON Mál Baldurs mun ekki njóta brautargengis fyrir Mannréttindadóm- stólnum.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.