Fréttablaðið - 21.01.2014, Side 32

Fréttablaðið - 21.01.2014, Side 32
21. janúar 2014 ÞRIÐJUDAGUR| MENNING | 28 Ungir jafnaðarmenn standa fyrir áskorun í þessari viku sem nefn- ist Hungurleikar LÍN. Þátttak- endur í Hungurleikunum þurfa að lifa á 2.050 krónum á dag, sem eru ráðstöfunartekjur náms- manna á lánum frá LÍN að und- anskildum húsnæðiskostnaði. Áskorunin stendur frá miðnætti aðfaranótt 20. janúar til miðnætt- is viku seinna. Þátttakendum er gert að taka myndir af útgjöld- um sínum meðan á áskoruninni stendur og merkja myndirnar á Instagram með kassmerkinu #HungurleikarLÍN. Inga Auðbjörg Kristjánsdóttir, varaformaður Ungra jafnaðar- manna, ætlar að taka þátt. Henni hefur gengið ágætlega í áskorun- inni hingað til. „Leikarnir hóf- ust á miðnætti og ég er ekki búin að eyða neinu í dag.“ Hún spáir því að gamanið kárni síðar í vik- unni. „Skórnir mínir eru að detta í sundur. Þegar það gerist neyð- ist ég til að kaupa mér nýja skó vegna þess að þetta er síðasta skóparið mitt. Svo sé ég fram á að kaupa mér getnaðarvarnir á mið- vikudaginn. Þá er helmingurinn af vikupeningunum farinn.“ Hún segist þó eiga fyrir þess- um útgjaldaliðum sjálf alla jafna. „Ég kemst upp með þetta í lífinu. Ég er ekki á lánum frá LÍN og er ekki í námi, en ég myndi þurfa alla þessa hluti ef ég væri í námi.“ Í reglunum kemur fram að engin útgjöld nema húsnæðis- gjöld séu undanskilin í leiknum. „Það er bannað að birgja sig upp af vörum áður en leikurinn hefst, og það er líka bannað að svindla og fresta til dæmis tannlækna- tímum þangað til í vikunni á eftir.“ Grunnframfærsla LÍN þetta skólaár er 144.867 krónur á mán- uði. „Stúdentaráð hefur reiknað út að námsmenn hafi aðeins 1.300 krónur í mat á dag og 750 krónur í allt annað að undanskildu hús- næði, og við miðum við þeirra útreikninga. Þessi upphæð dugir ekki til að lifa mannsæmandi lífi. Ég er búin að fara bæði til tann- læknis og augnlæknis í þessum mánuði. Læknisheimsóknirnar kostuðu mig sextíu þúsund krón- ur. Ef ég þyrfti að lifa á námslán- um gæti ég ekki borðað í rúman mánuð eftir þetta, nema með því að taka yfirdrátt.“ Tuttugu manns hafa skráð sig fyrirfram til þátttöku í Hungur- leikum LÍN. Öllum er þó heim- ilt að taka þátt á Instagram. „Við vonum að sem flestir taki þátt, og sérstaklega yfirvöld. Það væri gaman að sjá menntamálaráð- herra reyna að lifa á 2.050 krón- um á dag.“ ugla@frettabladid.is Áskorun að lifa á tekjum námsmanna í eina viku „Það væri gaman að sjá menntamálaráðherra reyna að lifa á 2.050 krónum á dag,“ segir varaformaður Ungra jafnaðarmanna sem er einn af skipuleggjendum Hungurleika LÍN. SLITNIR SKÓR Inga með skó sem hún þarf líkast til að skipta út í vikunni. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Svo sé ég fram á að kaupa mér getnaðarvarnir á miðvikudaginn. Þá er helmingurinn af vikupening- unum farinn. Inga Auðbjörg Kristjánsdóttir Rapparinn Kanye West prýðir forsíðu tímaritsins Interview en það er leikstjóri myndar- innar 12 Years a Slave, Steve McQueen, sem tekur viðtalið. Kanye segir fólk oft vilja þagga niður í sér. „Fólk reynir að gera hluti til að þagga niður í mér og láta mig líta út eins og brjálæðing til að beina kastljósinu frá því sem ég er að reyna að segja,“ segir Kanye. Hann er óhræddur við að taka áhættu. Rapparinn vakti óskipta athygli á MTV-tónlistarverð- laununum árið 2009 þegar hann fór upp á svið og truflaði þakk- arræðu kántrísöngkonunnar Taylor Swift. Hann segist hafa verið lengi að jafna sig eftir það. „Ég þurfti Guð, kynlíf og áfengi … mikið af kynlífi.“ - lkg Ég þurft i mikið af kynlífi BAKÞANKAR Söru McMahon Ævikvöldið sem ég óskaði mér? DAGURINN sem ég uppgötvaði mitt fyrsta gráa hár er mér enn í fersku minni. Það var haustið 2008 og ég var stödd inni á salerni á Þjóð- arbókhlöðunni. Í miðjum hand- þvotti tók ég eftir einu hári sem stakk í stúf við hin. Til að vera alveg viss í minni sök kippti ég hárinu úr höfðinu og við nánari skoðun varð mér ljóst að ekki var um að villast, hárið var silfurgrátt að lit. Þetta var tilfinningaþrungin stund því ég vissi sem var; nú var ég loks komin í fullorð- inna manna tölu. Síðan þá hefur gráu hárunum fjölg- að talsvert, eðli málsins samkvæmt. ÞRÁTT fyrir að taka gránandi kolli af nokkru æðruleysi, slæddust inn nokkrir dagar þar sem mér þótti þessi þróun heldur yfirþyrmandi. En það var enga samúð að fá, hvorki hjá ættingjum né vinum og sér í lagi ekki hjá móður minni sem benti mér á að mér bæri að taka hækkandi aldri fagnandi, nýtt ár þýddi að ég væri enn á lífi til að njóta alls þess sem heimurinn hefur upp á að bjóða. Og hún hefur vissulega lög að mæla. ÞAÐ að fullorðnast er því ekkert til að hræðast. En eitt hefur mér þó ekki tekist að hrista af mér; hina nagandi tilhugsun að einn góðan veðurdag verði ég of gömul til að sinna daglegum störfum hjálpar- laust. Amma mín dvaldi síðustu ár ævi sinnar á hjúkrunarheimili og íbúar þess sátu sumir aðgerð- arlausir inni í herbergjum sínum heilu dagana án nokkurs konar örvunar. Blessunarlega átti amma mín aðstandendur sem heimsóttu hana daglega og voru tilbúnir að taka fyrir hana slaginn þegar þess þurfti. FYRIR helgi fluttu fjölmiðlar fréttir af því að vegna niður- skurðar á hjúkrunarheimilinu Sól- vangi í Hafnarfirði sé þjónusta við íbúa heimilisins nú ófullnægjandi. Sökum manneklu liggur heimilis- fólkið stundum í rúmi sínu fram eftir degi án þess að nokkur skipti sér af því. ÖLL eldumst við, þó sumir nái hærri aldri en aðrir, og því ber að spyrja: er þetta ævikvöldið sem við óskum okkur? Sé spurningunni svarað neitandi getur ekki verið rétt að aldraðir ástvinir búi í dag við aðstæður sem okkur þykir sjálfum óviðunandi. SJÁ FLEIRI SÝNINGAR Á WWW.BIOPARADÍS.IS - Miðasala: 412 7711 - Hverfisgata 54 - bioparadis.is - Hluti af Europa Cinemas 47 RONIN 8, 10:30 LONE SURVIVOR 8, 10:30 SKÝJAÐ MEÐ KJÖTBOLLUM 2 6 HOBBIT 2 5:30, 9 SECRET LIFE OF WALTER MITTY 5:30 FÓR BEINT Á TOPPINN Í USA! þriðjudagstilboð þriðjudagstilboð ÁLFABAKKA AKUREYRI EGILSHÖLL KRINGLUNNI KEFLAVÍK ENTERTAINMENT WEEKLY TIME m.a. Besta Mynd, Besti Leikstjóri, Besti Leikari, Besta Leikkona, Besta Handrit m.a. Besta Mynd, Besti Leikstjóri, Besti Leikari, Besti Aukaleikari, Besta Handrit THE TIMES THE NEW YORK TIMES m.a. Besta Mynd, Besti Leikstjóri, Besti Leikari, Besti Leikari í aukahlutverki Ý ÖSK JAÐ MEÐ KJ TBOLLUM ...2 2D SKÝJAÐ MEÐ KJÖTBOLLUM ...2 3D 47 RONIN 3D BELIVE LONE SURVIVOR SECRET LIFE OG WALTER MITTY SECRET LIFE OG WALTER MITTY LÚXUS THE HOBBIT 3D48R THE HOBBIT 3D48R LÚXUS RISAEÐLURNAR 2D ÍSL. TAL VENUS Í FELDI EYJAFJALLAJÖKULL ÉG UM MIG OG MÖMMU EINN Á BÁTI SAMÞYKKTUR TIL ÆTTLEIÐINGAR KONURNAR Á 6. HÆÐ SKÝJAÐ MEÐ KJÖTBOLLUM ...2 2D 47 RONIN SECRET LIFE OG WALTER MITTY KL. 3.30 - 5.40 KL. 3.30 KL. 8 - 10.30 KL. 3.30 - 5.40 KL. 8 - 10.35 KL. 5.30 - 8 - 10.30 KL. 8 - 10.30 KL. 5.40 - 9 KL. 4.30 KL. 3.30 ÞRIÐJUDAGSTILBOÐIN GILDA EKKI Í BORGARBÍÓ KL. 10 KL. 10 KL. 8 KL. 8 KL. 6 KL. 5.50 KL. 5.40 KL. 10.30 KL. 5.30 - 8 - 10.30 NÁNAR Á MIÐI.IS Ý ÖSK JAÐ MEÐ KJ TBOLLUM ...2 3D LONE SURVIVOR 47 RONIN3D SECRET LIFE OG WALTER MITTY THE HOBBIT 2 3D KL. 5:50 KL. 5:50 KL. 8 - 10.15 KL. 8 KL. 10.15 31.000 GESTIR! ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.